Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 10
Brú á Hvítá í Borgarfirði.
w
Verkfræðiafrek 20. aldarinnar á Islandi
1901-1910
Símalögnin Seyðisfjörður -
Reykjavík 1906
Um aldamótin 1900 var rætt um þörf á
tengingu við útlönd með sæstreng fyrir
ritsíma, en ekkert varð úr ákvörðunum
fyrr en þjóðin hafði fengið heimastjóm.
Árið 1904 var gerður samningur við Stóra
norræna ritsímafélagið um að tengja
landið við umheiminn með sæstreng.
Miklar deilur risu í kjölfarið þar sem tek-
ist var á um loftskeyti og sæstreng. Sæ-
strengurinn varð ofan á og var hann
tengdur í land á Seyðisfirði í ágúst 1906.
Einangrun landsins var rofin.
Símalína milli Reykjavíkur og Seyðis-
fjarðar, um 614 km leið, var lögð árið 1906.
Olav Forberg var falin skipulagning og
stjómun verksins. Hann varð síðar fyrsti
landssímastjórinn og einn af stofnendum
Verkfræðingafélags íslands. Sumarið 1905
var unnið að undirbúningi verksins með
merkingu línustæðis og í framhaldi vom
staurar, alls um 14000 talsins, fluttir á hest-
um og dregnir út á línustæði veturinn eftir.
í júní 1906 hófst þygging loftlínunnar og
tókst að Ijúka verkinu 29. september sama
ár. Þann dag var opnað fyrir talsímasam-
band milli nítján símstöðva á vestur-,
norður- og austurlandi. Þar með tók
Landssími íslands til starfa.
Þessi línulagning var hið mesta afreks-
verk bæði hvað varðar skipulagningu og
framkvæmd.Verkinu var lokið á ótrúlega
stuttum tíma við erfiðar aðstæður. Þá
voru fallvötn lítt brúuð og flytja varð allt
efni á hestum um vegleysur. Þar við
bættist að þetta ár voru mikil harðindi og
snjóaði jafnvel í júlí á heiðum norðan-
lands. Þessi nýja tækni og þjónusta olli
straumhvörfum í íslensku þjóðlífi og
lagði stóran skerf til framfara og efna-
hagslegs sjálfstæðis.
Einnig tilnefnd: Vífilstaðaspítali og
Vatnsveita úr Gvendarbrunnum.
1911-1920
Reykjavíkurhöfn
í maí 1912 bauð bæjarstjórn Reykjavíkur
með aðstoð landsverkfræðings út gerð
hafnar í Reykjavík. Útboðið byggðist á
uppdráttum Gabriel Smith, hafnarstjóra í
Kristaníu ogThorvald Krabbe, landsverk-
fræðings. Samið var við danskt verktaka-
fyrirtæki N.C. Monberg.
Vélum og búnaði sem nota átti við
hafnargerðina var skipað upp við gufu-
skipabryggjuna íViðey en flutt þaðan í
land á tveim prömmum, sem hvor um