Verktækni - 01.04.2002, Qupperneq 14

Verktækni - 01.04.2002, Qupperneq 14
Tækniháskóli íslands Samkvæmt frumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi er gert ráð fyrir aðTækni- háskóli íslands taki til starfa haustið 2002. í frumvarpinu kemur m.a. fram að með því sé verið að staðfesta stöðu skólans á háskólastigi. Auglýst verður eftir pró- fessorum , adjunktum og lektorum við skólann í vor. Þá verður núverandi staða rektors lögð niður og auglýst eftir nýjum rektor. Þeim kennurum sem ekki uppfylla kröfur um kennsluréttindi við THÍ verður gefínn kostur á að afla sér viðbótarmennt- unar á næstu þremur árum. Frumgreina- deildin verður áfram starfrækt við skól- ann. Árlegt framlag á hvern nemanda verður um 800 þúsund á ári, breytilegt eftir deildum. Þess er vænst að boðið verði nám á öllum sviðum tæknifræðinnar við skólann og fagnar stjóm TFÍ frum- varpinu. Stjóm TFÍ hefur sent inn athuga- semdir vegna frumvarpsins og væntir þess að það verði afgreitt fyrir þinglok Vísindagarðar í Vatnsmýrinni Fyrir aðalfund TFÍ 22. mars s.l. flutti Stefán Ólafsson prófessor við HÍ erindi sem hann nefndi „Þekkingarþorp - nýja hagkerfið". Stefán rakti aðdraganda að stofnun fyrstu vísindagarðanna í Bandaríkjunum, tilgang þeirra og hvemig þeir hafa eflt rannsóknir og framgang fjölmargra fyrirtækja í þekk- ingariðnaði. Kynntar voru áætlanir um byggingu slíkra garða á svæði Háskóla ís- lands þar sem gert er ráð fyrir allt að 50.000 fermetra húsnæði undir slíka starfsemi. Ef fram fer sem horfir verður hafist handa við byggingu fyrsta áfanga í lok þessa árs. Aðalfundur TFI Föstudaginn 22. mars s.l. var aðalfundur TFÍ haldinn að Engjateigi 9. Rekstur og gjöld félagsins árið 2001 voru sem næst á- Frá 50. fundi löggildingarnefndar. ætlun. Stærstu verkefni næsta starfsárs, auk hefðbundinna félagsstarfa, er aðkoma félagsins að stofnun Tækniháskóla íslands. Þá geta hugmyndir um nánara samstarf við tölvunarfræðinga leitt af sér breytingar á starfsemi félagsins. í stjóm vom kjömir Erlendur Geirdal og Einar H. Jónsson. Varamaður var kjörinn Guðmundur Már Kristinsson. Fyrir í stjóm em Anna Guðrún Gylfadóttir, Jóhannes Benediktsson og Þorsteinn Birgisson. Full- trúi KT'ir'í í stjóm er Bjami Bentsson og full- trúi STFI Magnús Þór Karlsson. Þá var einnig kosið í ýmsar nefndir og ráð á vegum félagsins. Fundinn sóttu tæplega 40 tækni- fræðingar. Fram kom að félögum íTFÍ hef- ur fjölgað úr tæplega 600 árið 1996 í um 860 vorið 2002. Fé- lagsgjöld ársins 2002 verða 22.900 krónur. Hægt er að nálgast árs- ' skýrslu stjómar á heimasíðu TFÍ: www.tfi.is 50. fundur löggildinganefndar Löggildinganefnd TFÍ hélt sinn 50. fund 13. mars s.l Meginhlutverk nefndarinnar er að afgreiða umsóknir vegna löggilding- ar tæknifræðinga til sémppdrátta á sviði burðarþols og lagna. Tæknifræðingum sem ekki hafa sótt um þessi réttindi er bent á að afla sér þessara réttinda hjá nefndinni. Nefndina skipa Ragnar Gunn- arsson formaður, Ragnar Kristinsson og Ámi Guðni Einarsson. Kynning fyrir tæknifræöinema Föstudaginn 26. apríl s.l. var þriðja árs nemum í tæknifræði við Tækniskóla ís- lands boðið á kynningu félagsins að Engjateigi 9. Á fundinn mættu um 40 af þeim 50 nemendum sem em á þriðja námsári. Undirritaður gerði grein fyrir meginstarfsemi félagsins, Gústaf Hjalta- son kynnti kjaramál og Guðmundur Már Kristinsson sagði frá fyrstu ámm sínum í starfi sem tæknifræðingur. Tæknidagar vel sóttir Jónas Már Gunnarsson verkfrœOingur hjá Fjarhitun. TæknidagarVFÍ ogTFÍ vom haldnir í Smáralind dagana 8. -12. aprfl s.l.Viðfangs- efnið var Smáralindin frá sjónarhóli verk- fræðinga og tæknifræðinga. Samkvæmt talningarkerfi hússins sóttu um 300 manns hádegisverðarfundina. Auk þess mættu um eitt hundrað nemendur úr Lindaskóla og hlýddu á kynningu á viðfangsefnum verk- fræðinga og tæknifræðinga. Auk undirbúnings framkvæmda, hönn- unar og eftirlits, vom í fyrirlestrunum teknir fyrir hinir ýmsu tæknilegu þættir þessa mikla mannvirkis, s.s. orkuþörf, bmnavarnir, símakerfi, lýsing öryggis- kerfi, stýringar o.s.frv. Flesta fyrirlestrana má nálgast á pdf-formati á heimasíðum VFÍ ogTFÍ: www.vfi.is og www.tfi.is Samstarf við Tækniháskólanri í Horsens Á fundi fulltrúa TFÍ með Eli Ellendersen námsráðgjafa hjáVitus Bering uddanles- ecenter í Horsens (áður: Ingeniörhöjskolen í Horsensjí Damörku um miðjan aprfl s.l var farið yfir námsframboð við skólann og þá sérstaklega á sviði endurmenntunar. Ákveðið var að taka upp formlegt samstarf við skól- ann þannig að félagar íTFÍ geti sótt nám- skeið við skólann og mun skólann útvega húsnæði fyrir nemendur. Þá verður athugað með að skólinn haldi eitt eða fleiri námskeið hérlendis næsta vetur fyrir tæknifræðinga. Nánar verður greint frá þessu í næsta blaði. Jóhannes Benediktsson, form. TFÍ

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.