Verktækni - 01.04.2002, Síða 23
Efni í Árbók VFÍ/TFÍ
Ráðgert er að gefa út ÁrbókVFÍ/TFÍ nr. 13 í
nóvember næstkomandi. Efni í hana þarf
því að berast tímanlega. Ákveðið hefur
verið að næsta árbók verði litprentuð.
Menn eru vinsamléga beðnir um að hafa
eftirfarandi í huga:
Vísindagreinar
VFI ogTFI er mikið kappsmál að á íslandi sé
gróska í tækniframförum og áhugi félags-
manna fyrir vísindum sé sem mestur. Árbók-
in er réttur vettvangur fyrir tækni- og vísinda-
greinar félagsmanna. Menn em hvattir til að
senda inn greinar og hvetja aðra til þess.
Vísindamönnum er gefinn kostur á að fá
birtar eftir sig ritrýndar greinar. Slíkar
greinar em ritrýndar af tveimur sérfræðing-
um á því sviði sem vísindagreinin nær til og
fást ekki birtar nema þeir telji þær birting-
arhæfar sem ritrýndar greinar. Þessar grein-
ar jafngilda vísindagreinum sem fást birtar í
virðulegum erlendum tímaritum.
Þættir úr sögu félaganna
Fróðlegt væri að fá frásagnir af mönnum
og málefnum frá fyrri tíð er varða tækni
eða sögu félaganna.
Kynning fyrirtækja og stofnana
í árbókinni er kafli þar sem fyrirtæki og
stofnanir fá tækifæri til að gefa yfirlit yfir
starfsemi sína og segja frá markverðum at-
burðum með tilliti til verkfræði og tækni-
fræði í víðum skilningi.
Auglýsingar
Auglýsingar í ÁrbókVFÍ/TFÍ er góð leið til
að nálgast tæknimenn. Markhópurinn er
skýr og afmarkaður og einfalt að koma
skilaboðum á framfæri.
Logó
Þeir sem aðeins vilja láta vita af sér nota
vörumerki til birtingar.
Styrktarlínur
Styrktarlínur eru vel þegnar.
Vinsamlegast gangið frá tækni- eða vís-
indagreinum sem ailra fyrst og alls ekki
síðar en í lok júlí næstkomandi. Sömu-
leiðis er æskilegt að kynningargreinar
eða auglýsingar berist sem fyrst. Ákveðtð
hefur verið að fækka blaðsíðum í Árbók-
inni og verður því takmarkað rými fyrir
greinar. Því má segja: Fyrstir koma,
fyrstir fá.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar
Ragnarsson, ritstjóri árbókarinnar.
Heimasími/fax: 5812687. Tölvupóstfang:
rara@simnet.is
Einnig er hægt að hafa samband við
skrifstofu VFÍ og TFÍ sem kemur skila-
boðum til ritstjóra.
Störbyggingar
einingar - betri byggingarkostur
Einingaverksmiðjan er framsaekið fyrirtæki sem sérhæfir
sig í framleiðslu forsteyptra eininga. Tækjabúnaður og
þekking gerir okkur kleift að afgreiða stór og smá
byggingaverkefni fljótt og örugglega.
Gæði framleiðslunnar er undir stöðugu eftirliti, bæói innra
gæðaeftirliti og opinberu eftirliti Rannsóknastofnunar
Byggingariðnaðarins, svo tryggt sé að framleiðsluvörur
fyrirtækisins uppfylli ávallt ströngustu kröfur.
Við veitum ráðgjöf og aðstoð við útfærslu teikninga og gerð
burðarþolsútreikninga. Auk þess veitum við þjónustu við
stærri framkvæmdir, s.s. flutninga, reistningu, öflun efnis
og leigu búnaðar.
Breiðhöfða 10
110 Reykjavik
Sími: 587 7770
Fax: 587 7775
e-mail: ev@ev.is
www.ev.is
EININGAVERKSMIÐJAN
SINVdOlSIMXaM