Verktækni - 01.04.2002, Síða 26
RAFORKUNOTKUN LOFTRÆSTIKERFA
í þessari grein er leitast viö aö færa fyrir því rök, að loftræstisamstæöur séu í allt of mörgum tilfellum valdar of litlar/orkufrekar fyrir sitt
verkefni. Ástæður eru tilgreindar, slegið er á aö fjárhagslegt tap samfélagsins geti numiö milljöröum króna og gerðar eru tillögur um úrbætur.
Þeir sem kosta rekstur loftræstikerfa kvarta
gjaman yfir því að rafmagnsreikningurinn
sé hár. Víst er hann það, en þetta er líka oft
á tíðum þeim sjálfum að kenna. Meira um
það á eftir.
Það sem kannski er ekki eins ljóst er sú
staðreynd að það kostar oft sáralítið að
lækka raforkureikninginn vemlega með
því að standa rétt að verki á hönnunar-
stigi.
Hér er ekki til umfjöllunar sjálf hönnun
kerfisins, loftmagn o.s.frv., heldur einungis
val á loftræstisamstæðum fyrir gefið loft-
magn og raforkunotkun því samfara.
í dag em flest kerfi búin varmaendur-
nýtingu og góðum loftsíum, auk innblás-
ara og útblásara og fleiri fylgihluta og mið-
ast framhald þessa greinarkoms við slíkar
samstæður.
Útboðslýsingar tilgreina oftast ákveðnar
lágmarkskröfur til þessa búnaðar, t.d. í
formi blásaranýtni, þrýstifalls í loftsíum,
lofthraða í hitaelementum, afltöku
(kW/m3/s) o.s.frv.
Teikningar sýna síðan hvernig búnaðinum
er komið fyrir í því rými, sem tiltækt er. Þessi
atriði mynda rammann um þær samstæður
sem hinir ýmsu bjóðendur geta boðið.
Tekið skal fram að lágmarkskröfumar em
nokkuð misjafnar, eftir viðteknum „praxis"
hvers hönnuðar eða hans fyrirtækis.
Það er gömul saga og ný að hönnuðir
loftræstikerfa lenda oft(ast) í því að rými
fyrir stokka / samstæður (tæknirými) er
skorið við nögl og neyðast því til að notast
við óþarflega litlar samstæður. Á fyrstu
stigum húshönnunar virðast þessir hlutir
kannski í sæmilegu lagi, en á síðari stigum
hönnunar eykst loftmagnsþörfin, fremur
en hitt, vegna ýmissa breytinga og þá er
gjaman örðugt/illmögulegt um vik með að
fá aukið pláss.
Þetta er stór hluti vandans.
Með of litlum samstæðum er ekki átt við
of lítið loftmagn, heldur of litla hæð /
breidd samstæðu fyrir tiltekið loftmagn.
Stærri samstæður veita minni loftmót-
stöðu og oftar en ekki er nýtni blásara
einnig meiri, sem aftur þýðir minni raf-
orkunotkun.
í öðm lagi setur verkkaupi hönnuði al-
mennt ekki nein fyrirmæli um að hann
skuli hanna kerfið með það að markmiði
að lágmarka „líftímakostnað" kerfisins,
þ.e. lágmarka kaupverð + rekstur, heldur
nánast þvert á móti, hann biður um að
hannað sé kerfi sem uppfylli viðteknar
lágmarksforsendur og kosti sem allra
minnst í innkaupi, þ.e.lágmörkun bygg-
ingarkostnaðar.
Þegar kemur síðan að útboðum, byggð-
um á þessu verklagi, þá er ljóst að sá
samstæðuseljandi fer með sigur af hólmi,
sem boðið getur Iægst verð, að uppfylltum
áðumefndum lágmarksskilyrðum.
Rekstrarkostnaðurinn er bara afgangs-
stærð, sem ekki er tekin með við saman-
burð..
Það er gjaman blikksmiður sem aflar til-
boða í samstæðumar og skilar tilboði í
fullbúið kerfi til aðalverktaka, að sjálfsögðu
í samkeppni við aðra blikksmiði. Hann
hugsar auðvitað um það eitt að skiia inn
sem lægstu tilboði, að uppfylltum lág-
markskröfum.
Aðalverktakinn er í sömu stöðu og
blikksmiðurinn. Hans vinningsmöguleikar
velta á heildartilboðsverðinu.
Við höfum gert ítrekaðar tilraunir til að
bjóða „frávikstilboð", t.d. næstu (stærri)
samstæðustærð og/eða nýtnihærri blásara
og / eða nýtnihærri mótor, sem kostar eitt-
hvað meira, en er samt deginum ljósara að
margborgar sig upp á skömmum tíma, en
svarið er alltaf það sama:
Já, já, þetta getur vel verið satt og rétt,
en því miður, í fyrsta lagi leyfa útboðsregl-
umar ekki að rafrnagnsreikningurinn sé
tekinn með í samanburðinn og svo er ekki
pláss fyrir stærri samstæðu, eða, svo kost-
ar þetta breytingar á teikningum, tómt
vesen.
Þetta ferli gerir þáð að verkum að sá
sem borgar brúsann, húsrekandinn, fær að
vísu eins ódýrt kerfi í hendumar og kostur
er, en hann veit bara ekki (eða gefur því
ekki gaum) að hann kunni í leiðinni að
hafa bakað sér rekstrarkostnað, sem á
komandi ámm nemur margföldu andvirði
„ódým" samstæðunnar.
Hvaða upphæðir er þá um að ræða, á
landsvísu ?
Þessari spumingu er hreint ekki
auðsvarað. Til þess þarf vemlega yfirlegu,
en hér er þó gerð tilraun til að finna
stærðargráðu:
Á landinu hafa að meðaltali (síðustu tíu
árin) verið byggðir ca. 700.000 m3 atvinnu-
húsnæðis, árlega. Þetta er samkvæmt upp-
lýsingum frá Hagstofunni.
Setjum sem svo að u.þ.b. 50% séu búin
loftræstikerfum með fimm loftskiptum að
jafnaði. Þetta svarar til 500 m3/s pr. ár. Gef-
um okkur síðan að meðalsamstæðan sé
ú.þ.b. 4 m3/s (hún er væntanlega enn
minni í reynd, en það skiptir ekki öllu),
sem aftur þýðir 120 nýjar samstæður, ár-
lega.
Slík samstæða kostar u.þ.b. eina milljón
króna þannig að fjárfestingin í þessum
hluta loftræstikerfanna gæti verið ca. 120
milljónir kr/ár. Þessir tala er ekki fjarri því
sem lesið verður úr innflutningstölum skv.
viðkomandi tollanúmerum.
í þessu sambandi er rétt að geta þess
einnig, að kaupverð loftræstisamstæðu er
einungis um 5-10% af af heildarstofn-
kostnaði við kerfið allt.
Gefum okkur síðan að loftræstiflotinn í
dag svari til u.þ.b.. 15 ára innflutnings, þ.e.
u.þ.b. 1.800 samstæður alls.
Það hafa ekki orðið neinar umtalsverðar
breytingar á útboðslýsingum í langan tíma,
þannig að samstæðumar hafa almennt
verið valdar eins litlar (ódýrar) og með
eins lágri nýtni og kostur er. Þess vegna er
viðbúið að afltaka allra þessara samstæðu-
mótora geti numið allt að 25 MW.
Gefum okkur einnig að kerfin séu að
jafnaði ekki rekin nema hálfan sólarhring-
inn (oftar en ekki keyra kerfin þó mun
lengur, jafnvel allan sólarhringinn). Sam-
anlagður orkureikningur yrði þá ekki undir
750 milljónum kr/ár eða 7.500 milljónir kr.
á tíu árum. Fjárfestingin var sem sé 1.800
milljónir kr. og rekstur fyrstu tíu árin fjór-
föld sú upphæð.
Ef samstæðurnar hefðu verið valdar einu
númeri stærri og með hánýtni blásur-
um/mótomm, þá yrðu tölumar 15 MW,
450 milljónir kr./ár, 4.500 milljónir kr./lO
ámm.
Rekstrarpamaðurinn gæti sem sagt numið
allt að 3 milljörðum króna á 10 ára tímabili
eða heil 40 %.
Þennan þriggja milljarða sparnað hefðu
menn getað fengið fyrir fyrir 300 - 400
milljóna kr. viðbótarfjárfestingu, hefðu þeir
kært sig um.