Verktækni - 01.04.2002, Síða 28
Nýbygging Orkuveitu Reykjavíkur
Tæplega 40 manna hópur úr Byggingar-
verkfræðingadeild VFÍ heimsótti nýjar höf-
uðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur við Rétt-
arháls, fimmtudaginn 21. febrúar s.l.
Heimsóknin hófst á því að Eysteinn Ein-
arsson hjá Línuhönnun kynnti meginatriði
í burðarþolshönnun byggingarinnar.
Húsið er um 14.200 m2 skrifstofubygging
og skiptist í austurbyggingu og vesturbygg-
ingu. Þessar byggingar eru tengdar saman
á tveimur neðstu hæðunum auk þess sem
kjallari er undir hluta byggingarinnar. Fyr-
irhuguð er 2.900m2 bílageymsla en hún
hefur enn ekki verið boðin út.
Burðarkerfi kjallarans og tveggja neðstu
hæðanna eru að langmestu leyti flatar
staðsteyptar plötur sem bornar eru uppi af
staðsteyptum súlum og skerveggjum.
Austurbyggingin er nokkuð stíf, þar sem
allir útveggimir em staðsteyptir skerveggir
og engar súlur eru í því húsi. Vesturhlutinn
er hins vegar mun sveigjanlegri bygging
þar sem fjölda skerveggja er haldið í lág-
marki. í suðurenda vesturhúss kragar
byggingin út, allt að 10 metrum á efstu
hæð. Burðarvirki þessarar útkrögunar
samanstendur af plötubitum og stálsúlum.
Plötur í þessum húsum eru úr samverkandi
stáli og steypu. Á stálbitum hvíla þar til
gerðar blikkplötur sem soðnar eru niður á
stálbitana með skúfnöglum sem eiga að
tryggja samvirkni að hluta. Plata, sem er
140mm þykk, er síðan steypt ofaná blikk-
plötumar. Ráðandi hönnunarkrafa við
plötuútreikningana var yfirleitt sveifla und-
an notálagi.
Þar sem ekki em skerveggir standa plöt-
ur vesturbyggingarinnar á jámbentum,
steypufylltum, stálsúlum. Stálsúlumar þarf
því ekki að brunaverja þar sem steypta súl-
an sér um burð í bmna.
Á milli austur- og vesturbygginganna
em nokkrar göngubrýr. Flestar brýrnar em
fastar við austurhúsið en sitja á legum á
vesturhúsinu. Þessú er snúið við í tveimur
tilvikum þar sem auðveldara var að koma
fyrir legu í austurhúsinu.
Milli bygginganna er hvolfrými úr stáii
og gleri. Límtré er aðalverktaki hvolfrým-
isins en spænska fyrirtækið LANIK hannar
og framleiðir burðarvirkið í það.
Helstu aðilar hönnunar em:
Arkitektar: Teiknistofa Ingimundar
Sveinssonar og Homsteinar
Burðarþol: Línuhönnun
Lagnir og loftræsing: Almenna verk-
fræðistofan og Fjarhitun
Raflagnir: Rafhönnun
Brunatæknileg hönnun: Verkfræðistofa
Snorra Ingimarssonar
Verkstýring: VSÓ Ráðgjöf
Eftirlit: Fjölhönnun, Lagnatækni og
Raftæknistofan
Eftir burðarþolskynninguna fór hópurinn
í skoðunarferð um húsið í fylgd Magnúsar
Bjamasonar byggingastjóra, ásamt Guðna
Eiríkssyni og Ómari Olgeirssyni sem sinna
eftirliti.
Aðalverktaki við uppsteypu er ÞG verk-
takar. Háfell sá um jarðvinnu en fyrsta
skóflustungan var tekin í janúar 2001. Að-
eins efnishluti klæðningar hússins var boð-
inn út. ÞG verktakar munu setja upp
megnið af klæðningunni. ÍAV hefur tekið
að sér allan frágang innanhúss. Áætluð
verklok skrifstofuhluta em í september
2002.
Orkuveitan bauð upp á kaffi og bakkelsi
á meðan burðarþolskynning fór fram.
Heimsóknin stóð frá kl. 8.30 til kl. 10.00.
Morgunheimsókn er nýbreytni í skoðunar-
ferðum deildarinnar sem virðist mælast vel
fyrir.
Stjóm BVFÍ vill nota tækifærið hér og
þakka fyrir góða og skemmtilega heimsókn.
Ari Guðmundsson, ritari BVFf.