Dagfari - 01.02.1979, Page 11

Dagfari - 01.02.1979, Page 11
11 Haukur Sigurdsson: ÉG MUN SÝNA YÐUR ALLA DÝRÐ MÍNA Leyniskýrslur Bandaríkjanna um ísland 1950 og nokkur áhrif Leirra Ýmislcgt fróiMcgt og lærdómsríkt má sjá í skýrslum Bandarikjastjörnar um utanríkis- mál áriö 1950. Kins og vænta má cru skýrslurnar um samskipti íslands og Bandaríkjanna 1950 mun styttri cn þær scm náðu yfir 1949, þegar clsku Nato var stofnað. I’ýðing á skýrslunum hirtist í Þjóðviljanum 7. júni siöastliöinn, cn að vísu ónákvæm á nokkrum stöðum. Skal í fyrstu staldrað við nokkur athyglisvcrð atriði í þcssum skýrslum: Kommúnistar hrifsa völdin Skýrsla utanríkisráðherra (Webb) til framkvœmdastjóra öryggisráðsirts (Lay). Washington, I. maí 1950 Algjört trúnaðarmál Utanríkisráðuneytið hefur samið og komið á framfæri við viðeigandi aðila bæði hér og á vettvangi (þ.e. á íslandi) áætlun sem miðar að þvi að styrkja rikis- stjórnina gagnvart valdatöku kommún- ista”. Enda hafði Bjarni Benediktsson lagt áherslu á það í viðræðunum við inngöngu íslands i Nato hversu lögreglan væri fámenn og illa búin. „Þörfin, gagnið og tímasetning stefn unnar i NSC 40/I1’ hafa ekki breyst frá því þau voru samþykkt, en Norður-Atlants- hafssamningurinn hefur bætt stöðuna". „(Wash.). 25. nóv. 1949 Algjört trúnaðarmái Áætlun til að styrkja stöðu íslcnsku ríkisstjórnarinnar gagnvart valdatöku kommúnista. (Gert af utanríkisráðuneytinu i samræmi við „NSC 40/1) 1. Ráðstafanir til að hvetja tslendinga til sjálfshjálpar. Ameríski sendiherrnn ætti að stinga upp á ráðstöfunum með óforrn- legum viðræðum við utanrikisráðherra („þ.e. Bjarna Benediktsson). Skynsamlegt; hjá þeim Ameríkumönn- um, enda hafði Bjarni reynst námfús nem andi. „Þessar viðræður ættu að fara fram svo fljótt sem sendiherrann tclur heppilegt. Hann gæti einnig rætt við aðra islenska embættismenn og cinn eða fleiri starfs- bræður frá Natoríkjum. Þessar viðræður ættu að vera óformlegar — ekki mcð 1) Skýrsla lorsc' Öiygpisrfio .' andarlkjanna til Örygyis- ráösins um varnainugsmuni Bandarikjanna á Norður- Atlantshafi. ákveðinni, mótaðri dagskrá af hálfu sendi herra, heldur skal skipst á hugmyndum, vckja skal áhuga hjá æðstu cmhættis- mönnum rikisins. Lcggja bcr áhcrslu á frumkvæði Islcndinga, cn láta ckki bcra á stuöningsaögeröum utanaðkomandi aðila.” Þetta er alkunn, viðurkennd aðferð til að fá viðmælanda á sitt banda að læða að honum hugmyndum á þann hátt að áður en hann veit af telur hann þær vera sínar eigin hugmyndir. Gott að þykjast þá hvergi hafa komið nálægt máli. Siðan: „Þær ráðstafanir sem Islendingar hug- leiddu gætu verið eftirfarandi: a. Hvetja til stofnunaróformlegs heimavarnarliðs eða varnarsamtaka svip aðra hópum ungra íhaldsmanna sem hjálpuðu lögreglunni til að bæla niður mótmælaaögerðir kommúnista í mars síð- astliðnum. Þetta gætu verið íþrótta- eða æfingahópar". Frammistaða kylfaðra ihaldsdrengja 30. mars 1949 hefur greinilega vakið athylgi og vonir Bandarikjamanna. Einnig hefði mátt læra talsvert af reynslunni og æfingununi 1932. Hin íslenska CIA „b. Að koma á fót opinberri íslenskri gagnnjósnastöð. Skapa verður þær aðslæður að sendiherra okkar fái fyllstu upplýsingar scm islcnska rikisstjórnin hcfur varðandi fyriætlanir kommúnista”. Hinir hjálpsömu og greiðviknu Banda- ríkjamenn ætla þá líka að konia til aðstoð- ar, þegar ljóst verður hvaða áætlanir kommúnistar hafa á prjónunum. Svo virðist scm hér hafi ekki verið gerð tilraun til að koma þessari islensku stofn- un á fót, enda taka Bandarikjamenn af Islendingum ómakið. Á árunum eftir 1950 afla þeir sér nákvæmra upplýsinga um stjórnmálaskoðanir íslendinga. Þctta kom bcrlega i Ijós, þcgar mcnn sóttu um að komast til Bandaríkjanna. Róttækir menn og ættingjar þeirra fengu ekki landvistar- leyfi. „c. Að þjálfa og útbúta islenska lög- reglumenn til að vcrnda Keflavikurflug- völl gegn skemmdarverkum. Ef þarf að út- vega fé utan frá, má taka það úr Sjóði til hemaðaraðstoðar í samræmi við hversu mikil og hvers eðlis aðstoðin er. d. Að þjálfa nokkra lögreglumenn í bandariskum lögregluaðgerðum (einn hefur þegar fengið þjálfun í New York)”. En þessi lögregla sem íslendingar eiga að læra sem mest af hefur orðið fræg fyrir hrottaskap, lögbrot og mútuþægni. Draumur að vera með dáta Ráðstafanir varðandi amerískt starfslið í Keflavik. Sendiherrann ætti með viðeigandi móti að ræða við starfslið i Keflavík um: a. Árvekni gagnvart hugsanlegum skemmdarverkum. b. Að haga sér þannig að Amerikumenn vaxi i augum Islendinga”. Allir lslendingar verði upptendraðir af því að drauntur sé að vera með dáta, íslenskar stúlkur mega ekki draga siðprúða hermenn á tálar, og islenskir drengir skulu

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.