Dagfari - 01.02.1979, Qupperneq 16
16
Framkvæmdanefnd ályktaði um bón-
orðsför Benedikts Gröndal á fund sendi-
herra Bandaríkjanna ogsendi mótmæli sín
til fjölmiðla.
í desember var byrjað að undirbúa
fundi úti á landi. Slæmt veður tafði að
þessir fundir hæfust, en nú hafa tveir
fundir verið haldnir, á ísafirði og á Akur-
eyri. Útsendari miðnefndar komst þó á
hvorugan fundinn sökum veðurs. Beiðnir
hafa borist um fundi víðar og verða þeir
líklegaá næstunni.
Miðnefnd hyggst senda bréf til þing-
flokka og óska eftir viðræðum við þá um
hermálið í tengslum við endurskoðun
stjórnarsáttmálans.
Útgáfuhópur hefur sett fram ýmsar
hugmyndir um útgáfuefni. Má þar nefna
útgáfu á skýrslum Þórs Whitehead og
greinar sem birst hafa í Dagfara að undan-
förnu eftir Gils Guðmundsson og Arna
Björnsson um sögu baráttunnar gegn her-
setunni innan þings og utan. Einnig hefur
hópurinn áætlun sem honum hefur verið
falin að vinna nánar, um útgáfu ársskýrslu
SHA, er verði heimildarrit með marg-
víslegum beinum upplýsingum, töflum og
fleiri fróðleik. Á rit þetta að geta komið að
góðum notum við margs konar ritgerðar-
smíð og I áróðursstarfi.
Ólafur Ragnar Grimsson kynnir á mið-
nefndarfundi 16. janúar, starf og svið ut-
anrikismálanefndar Alþingis. Mun nefnd
þessi kanna margvísleg’ áhrif hersetunnar
og leita til sérfræðinga og stofnana og ráða
starfslið til þessa. Þá á nefnd þessi að fjalla
um hver utanríkisstefna íslands eigi að
vera, í eða utan NATO. Verður fróðlegt
að fylgjast með niðurstöðum nefndarinnar
og eflaust hægt að notast við margar af
rannsóknum hennar.
Á framkvæmdanefndarfundum hafa
verið tekin fyrir ýmis önnur mál, svo sem
staða fjármála hverju sinni, gangur und-
irbúnings þeirra verkefna sem fyrir liggja
og samþykktir á tillögum frá starfshópum
sem eru að vinna að sérstökum verkefnum
eins og t.d. 30. mars. Þá hafa fundir mið-
nefndar alltaf hafist á því að fram-
kvæmdanefnd gefur skýrslu um starf sitt
og stöðu mála. Fram til 30. mars mun
miðnefndin halda fundi 1/2 mánaðarlega
enda liggja mikil verkefni fyrir og margar
ákvarðanir þarf að taka. Soffia.
VESTURBÆJARHÓPUR
Vcsturbæingar á ruslahaug ,,Verndarans”.
1 Vesturbæ hefur verið haldið uppi nokkuð reglulegu starfi siðan frá lands-
ráðstefnu. Fundir voru haldnir tvisvar i mánuði. Tíminn fram að jólum fór
að mestu í gerð dreifirits um olíumengun á Keflavíkurfiugvelli og þá hættu,
sem vatnsbólum Suðurnesjamanna stafar af henni. Verkið reyndist seinunn-
ara en gert hafði verið ráð fyrir, þvi mikill tími fór í hlaup milli Pilatusa og
Heródesa embættismannakerfisins. Að lokum tókst þó að safna saman
nægilega miklum heimildum til að úr mætti vinna dreifirit. Afrakstur þessa
starfs varð svo dreifiritið „Brunnmígar Suðurnesjamanna”, sem út kom fyrir
jólin. Til að efia enn frekar skilning okkar á þessum málum gerðum við ferð
til Kefiavíkur til að berja ósköpin augum. Nutum við þar ágætrar leiðsagnar
herstöðvaandstæðinga í Kefiavík. Við hlið herstöðvarinnar brostum við okk-
ar bliðasta til lögregluþjónanna í hliðinu og þeir hleyptu okkur óáreittum í
gegn. Með kænskubrögðum gátum við snuðrað þar um að vild án þess að
nokkur gerði við það athugasemd. Að því búnu héldu Keflvíkingar okkur
kaffisamsæti. Ferðin var hin fróðlegasta í alla staði ekki síst fyrir það að
þarna gafst kærkomið tækifæri til að ræða við þá Kefivíkinga, kynnast skoð-
unum þeirra og sérstöðu vegna nálægðar byggðarlagsins og tengsla við her-
stöðina. Of lítið hefur verið gert að því hingað til að koma á slíkum kynnum
milli herstöðvaandstæðinga viðs vegar um landið. Þau eru til þess fallin að
efia innviði samtakanna og létta af þeirri einangrun, sem ríkt hefur hingað til.
Dreifiritinu varsvo att að vegfarendum sem áttu leið um miðbæinn þann
19. og 23. des. Samhliða því voru seldar veitingar og fjölbreytt söluefni sam-
takanna I tjaldi á útimarkaðinum. Til stóð að fiytja ávörp til að vekja enn
frekari athygli á okkur, en lögreglan hafði stöðvað allt slikt fyrr um daginn
vegna hættu á umferðatrufiunum.
Eftir jólin tók eins og oft vill verða nokkurn tima að komast í gang aftur.
En nú hafa Vesturbæingar dreift sér í ýmsan undirbúning fyrir 30. mars og
verður það sjálfsagt ærið verkefni þangað til.
Hér til hægri gefur að líta texta dreifibréfs þeirra
Vesturbæinga; „Brunnmígar Suðurnesjamanna”.