Aðventfréttir - 01.03.1996, Síða 2
Aðvent
FRÉTTIR
59. árg. - 3. tbl. 1996
Utgefandi: S.d. aðventistar á Islandi
Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík
Ritstjóri og ábyrgdarmaóur:
Eric Guðmundsson
Þýðandi:
Guðjón Snorri Björgvinsson
Setning: Sigríður Hjartardóttir
Umbrot: Bergsteinn Pálsson
Filmuvinna og prentun:
Offse tpren t/Geirspren t hf.
Guð vill dvelja
meðal okkar
Orbsending frá Aðalsamtökunum.
egar Guð skapaði Adam og Evu setti hann þau í garð sem
átti að vera heimili þeirra. Þau önnuðust blómin, dýrin og
hvort annað. Vissulega var þetta paradís. Okkar fyrstu for-
eldrar höfðu þar nærveru Guðs og upplifðu einlæga ham-
ingju. En þegar syndin saurgaði þennan heim voru þau
gerð brottræk af heimili sínu. Nýtt skjól varð þeirn nauðsynlegt. Þau
þurftu þak }fir höfuðið. Þau þurftu tjald eða hús til að verjast veðri og
vindum.
Líkt og við upphaf þessa heims vill Guð nú dvelja
meðal okkar, annast okkur og vernda. Hann vill dvel-
ja meðal okkar, okkur til hamingju. Sálmaskáldið
segir Guð dvelja á himnum (S1 123.1). Sannleikur-
inn er sá að þessi voldugi Guð vill vera okkar á með-
al. I 2M 25.8 segir „Og þeir skulu gjöra mér helgi-
dóm, að ég búi mitt á meðal þeirra.“
Orðið „helgidómur“ er þýðing á hebreska orðinu
„qodesh" sem þýðir helgað, eða frátekið til helgra at-
hafna. Þetta er fallegt orð og þetta samhengi bendir
til nærveru Guðs við fólk sitt og hvernig hann annast
það. I musterinu hitti Guð og talaði við fólk sitt.
Frekari boðskapur stofnunar musterisins var sá að Guð vildi stofna
sérstakan hóp fólks sem yrði frábrugðinn öðrum þjóðum, fólk sem
sýndi Guði hollustu og væri honum bundið með sáttmála. I gegnum
þetta fólk gæti vilji og blessun Guðs opinberast heiminum.
Páll segir okkur vera musteri Heilags anda (lKor 3.16). Guð vill dvelj-
ast í okkur. Þegar musterið í eyðimörkinni var tilbúið „þá huldi skýið
samfundatjaldið, og dýrð Drottins fýllti búðina“ (2M 40.34).
Þannig getur dýrð Drottins einnig fyllt okkur í dag. Guð vill að við
séum aðskilin heiminum. Hann vill að við lifum eins og fólk sem hef-
ur verið frelsað með blóði lambsins. Hann vill að við neytum hins dag-
lega brauðs. Guð vill að við séum stöðugt í sambandi við hann, að bæn-
ir okkar rísi eins og reykelsi að náðarstólnum. Hann vill að olía Heilags
anda smyrji allt okkar líf, heimili okkar og söfnuð. Guð vill að við upp-
lifum hreinsandi þvott náðarinnar og höfum stöðugt í huga þörf okk-
ar fyrir lamb Guðs sem var slátrað fyrir okkar syndir - Jesús Krist, frels-
ara vorn.
Nú þegar við rannsökum bænavikulestrana skulum við hafa það í
huga, að musterið er tákn um að Guð vill dvelja meðal fólk síns og í
hjörtum þeirra til að undirbúa það fyrir konungdæmi himinsins.
Leo Ranzolin
er varaforseti aðalsamtakanna.
2
AðventFréttir