Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 23

Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 23
Guð skapaði Adam og E\ru, þá var Guð búinn að skipuleggja frelsun okkar! Okkur hefur verið gefið líf sökum þess að Kristur dó fyrir okkur. Kristur hefur vissulega úthellt kær- leika sínum yfír okkur. Guð virkilega elskar þig, er það ekki? TIL UMRÆÐU Hvað gerir þú þegar þú breytir rangt og syndgar gegn frelsaranum? Guð og Kristur voru tilbúnir með áætlun ef eitthvað myndi gerast. Hvaða ráðstafanir hefur þú gert ef eitthvað kemur upp á? Hefur þú skipulagt hvernig þú átt að komast út úr húsi ef það kviknar í? TIL ATHAFNA Farðu yfír neyðaráætlun þína með fjölskyldunni - þetta verður brunaæf- ing fjölskyldunnar og hvernig á að bregðast við ef einhver meiðist. SUNNUDAGUR Hversu nálægur vill Guð vera? MINNISVERS: „Og þeir skulu gjöra mér helgidóm, ad ég búi mitt á meðal þeir- ra. “ 2M 25.8 Hversu nálægur heldur |)ú að Guð vilji vera þér? Þegar þú elskar ein- hvern þá er eðlilegt að vilja vera þeim einstaklingi nálægur. Aður en Kerri og Adam voru orðin nógu gömul til að fara í skólann þá fylltust þau eftirvæntingu í hvert sinn sem það kom bíll að húsinu heima hjá þeim. Þau vissu að þá var pabbi að koma heim. Þeim joótti vænt um pabba og því var jaetta gleðistund. Þau hlupu á móti honum um leið og hann steig inn í stofuna. Oftar en ekki veltust þau svo um gólfið með pabba í leik, eða þá að pabbi sat með þau bæði í fanginu segjandi sögur eða bara talaði við þau. Þegar börnin urðu eldri þá hlakk- aði þau enn til sögustundarinnar með pabba. Hann ræddi við þau um það sem hafði gerst um daginn, bæði gott og slæmt. Hann las og bað bæn- ir með þeim. Oftast reyndu þau að fá hann til að vera örlítið lengur. Hvað fannst svo pabba um þetta? Sannleikurinn er sá að hann gat varla beðið eftir því að komast heim. Hon- um þótti svo vænt um að Kerri og Adam buðu hann svona velkominn heim. Honum fannst hann svo sér- stakur og elskaður. Það var honum nautn að eyða tíma sínum í leik með börnunum. KRISTUR ER OKKUR NÆR Það er satt. Þegar þú elskar ein- hvern þá vilt þú vera þeim nær. Þegar Ki istur var á jörðinni |)á sagði hann við föðurinn: „Faðir, ég vil að þeir, sem |)ú gafst mér, séu hjá mér, j)ar sem ég er“ (Jh 17.24). Kristur vill vera okkur nær. Hversu nálægur vill hann vera? I sömu bæn til Guðs bað Kristur einnig: „að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur“ (Jh 17.21). Hann sagði líka: „Eg er vínviðurinn, þér eruð grein- arnar“ (Jh 15.5). Þetta þýðir að við erum öll hluti af sama tré. Svona ná- lægur vill Kristur vera okkur. Þegar Guð frelsaði börn sín úr höndum Egypta og hræðilegum þrældómi þeim sem þau voru í þá sagði hann: „Og þeir skulu gjöra mér helgidóm, að ég búi mitt á meðal þeirra" (2M 25.8). Þú skilur, Guð hafði verið með Isra- el alla ferðina. Manstu eftir skýinu sem Guð sendi til að leiða Israels- menn á daginn? Þetta var í eyðimörk- inni og Guð sendi ský til að skýla Isr- ael frá sólinni og hættulegum geisl- um hennar og hita. A nóttunni sendi hann eldstólpa. Hvaða gagn gerði hann? Eyðimörkin getir orðið köld á nóttunni, svo eldur- inn gerði alveg öfugt við skýið, hann hlýjaði Israelsmönnum. Guð hugsaði fyrir öllu, er það ekki? Skýið jafnvel leiddi ísraelsmenn þangað sem ferðinni var heitið á dag- inn. Ef skýið stoppaði þá áði fólk Guðs þar. En veistu hvað? Þetta var ekki nóg fyrir Guð. Hann sagði: „Eg vil búa meðal þeirra. Eg vil sjá um þau, láta þau upplifa mig og skilja frelsunará- formið. Svona mikið elska ég þetta fólk.“ FÓLKIÐ BYGGÐI MUSTERI Guð bað Móse unt að segja fólkinu að koma með gjafír svo hægt væri að byggja musteri - helgidóm. Það þurfti verðmætar gjafír svo sem gull, silfur, kopar og fint klæði. Þó vildi Guð ein- ungis þær gjafir sem gefnar voru af fúsum og frjálsum vilja. Hvað haldið þið? Fólkið kom með svo margar gjaf- ir að Móse varð að frábiðja sér fleiri. Guð hlýtur að hafa verið hamingju- samur! Að þessu loknu kallaði Guð Móse upp á fjall til að tala við hann og sagði honum að byggja jarðneskt musteri. Musterið átti að vera byggt eftir þeir- ri fyrirmynd sem Guð sýndi honum. Móse fylgdi fýrirskipun Guðs nijög nákvæmlega. Það tók sex mánuði að byggja musterið. Það var svo fagurt að orð okkar megna vart að lýsa því. Samt er jarðneska musterið einungis máð eftirmynd þess himneska. Vilt þú koma með mér í ferðalag liugans á morgun? Þá skulum við ganga um musterið og skoða fjársjóði Guðs sem þar er að finna. Saman lær- um við þá eitthvað nýtt um kærleika hans til okkar. TIL UMRÆÐU Hvað fínnst þér gaman að gera með þeim sem þér þykir vænt um? Hvaða gjafir getum við gefið Guði af heilum hug í dag? Getur þú upphugs- að áætlun sem væri gaman að hrinda í framkvæmd fýrir Guð? TIL ATHAFNA Hvernig getur þú búið til módel af musterinu? Kannski getur þú notað skókassa eða spónaplötur. Þú getur líka notað leir. Kannski væri gaman að teikna grunnteikningu af muster- inu líka, eftir því sem við rannsökum það nánar. Kannski er nóg að teikna fjársjóði musterisins á blað. AðventFrÉttir 23

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.