Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 27

Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 27
benda fram tíl komu Jesú Krists, sem er lamb Guðs. Þegar Kristur kom þá var hann hin raunverulega fórn sem batt enda á allar aðrar fórnir og þar með musterisþjónustuna (Heb 10.10). Eg skal segjaykkur sögu til að útskýra hvað ég á við. Pabbi Rondu var kallaður til að fara í stríð í Saudí-Arabíu. Hún og öll fjöl- skyldan söknuðu hans mjög. Ronda talaði ekki um annað en daginn sem pabbi kæmi heim. Þegar hann fór þá gaf hann Rondu mynd af sér og sagði: „Þegar þú skoðar þessa mynd þá manstu að ég elska þig og að ég kem aftur heim til þín.“ Rondu þótti vænt um myndina. Loks kom að því að pabbi kom heim og þau voru svo hamingjusöm. Nú ætla ég að spyrja ykkur. Þegar pabbi Rondu kom heim hvort heldur þú að myndin eða pabbi hennar hafi verið henni ofar í huga? Pabbi henn- ar að sjálfsögðu. Þannig er það einnig með musterið. Þegar Kristur kom þá endaði hann gamla fórnarkerfið. Kristur var sá sem fórnin benti fram til. Hann er hið raunverulega lamb Guðs sem fjarlægði syndir heimsins. TIL UMRÆÐU Hvað verðmætu eignir heldur þú upp á? Værir þú tilbúin/n að gefa það fyrir einhvern sem þér þykir vænt um? Fyrir Jesús? Hvernig hefur Guð sýnt þér elsku sína þessa vikuna? Hvað með í dag? FIMMTUDAGUR Hver talar þínu máli? MINNISVERS: „Þess vegna getur hann og tilfulls frelsád þá, sem Jyrir hann ganga fram fyrir Guð, þar sem hann ávallt lifir til ad biðja fyrir þeim. “ Heb 7.25 AUMINGJA KÖTTURINN Amad var hrokkinhærður og bjarteygur piltur í 2. bekk. Mér þótti vænt um ákefð hans og hann haíði skemmtilegan húmor og gott ímynd- unarafl. Hvern einasta morgun þegar morg- unbæninni var að ljúka þá komu krakkarnir með óskir um fyrirbænir. Amad hafði áhyggjur af kettínum sín- um. Hundur nágrannans hafði verið að ráðast á hann og hann bað okkur að biðja þess að því myndi linna. Við báðum aftur og aftur fýrir kisu en allt kom fyrir ekki, vandamálið var alltaf til staðar. Svo var það morgun einn að Amad sagði okkur eina söguna enn af árás á köttinn sinn. Saga varð lengri og ægi- legri eftir því sem hann komst lengra inn í hana. Allt í einu datt mér svolít- ið í hug. Eg gerði hlé og spurði Amad, „Att þú virkilega kött?“. Hann hengdi höfuð skömmustulegur og þorði ekki að horfa framan í mig. Eg sá krakkana gapa af undrun. Við höfðum beðið svo vikum skipti fyrir kisu sem ekki var til. Eg setti fingur á varirnar til að fá hljóð og sagði svo, „Amad, þig langar í kisu, er það ekki?“ Amad bjó nefnilega í blokk þar sem ekki mátti hafa dýr, en langaði svona óskaplega í kisu. Börnin sátu hljóð. Þau virtust skilja þetta. Það var komið að Kortney að biðja þennan dag. Þegar leið að lok- um bænarinnar sagði hann, „Gerðu það, kæri Guð, að blessa allar óskir Amads. Amen.“ Eg held að Heilagur andi hafi talað til hjarta hennar. Henni stóð ekki á sama um hvernig Amad leið. Getur þú ímyndað þér hvernig honum hef- ur liðið þegar hann heyrði hana biðja fýrir sér eftir að hafa setið þarna skömmustulegur. Kortney talaði máli Amads. SÖCUR EINHVER TALAR ÞINU MALI Hefur þú upplifað eitthvað erfitt og svo að einhver hafi talað þínu máli? I dag vil ég tala um einn sem talar okk- ar máli alltaf. Hvað kemur þetta musterinu við? Mjög mikið, skal ég segja. Guð hefur gefið okkur aðra mynd í æðsta prestinum í musterinu. Við skulum rannsaka störf hans og hvað það segir okkur um áform Guðs hvað varðar mig og þig. ÆÐSTI PRESTURINN - GLÆSILEGUR FATNAÐUR Æðstu prestarnir klæddust glæsi- legum fatnaði. Aðrir presta klæddust hvítum kyrtlum en klæðnaður æðsta prestsins var úr dýrmætu og fallegu klæði. Æðsti presturinn klæddist líka hvít- um kyrtli. Hann klæddist svo einum bláum yfir þann hvíta. Litlar gullbjöll- ur og granatepli úr bláu, fjólubláu og skarlatsrauðu garni héngu við faldinn neðanverðan. Yfir þessa kyrtla klæddist hann styt- tri kyrtli sem kallaðist ephod sem var úr gulli, bláu, fjólubláu og skarlats- rauðu. Þann kyrtíl batt æðsti prestur- inn með alveg eins litu belti. Erma- laus ephod kyrtillin var með gull- sauma á öxlunum og hver útsaumur var svo prýddur dökkum ónyx steini. A þessa tvo steina voru rituð nöfn tólf ættkvísla Israel sex á hvorum steini. Yfir jtessum klæðum var síðan brjóstbrynja. Hún var helgasti hluti klæðnaðarins. Hún hékk á öxlum prestsins á bláum borðum og var fest eins og vestí um prestinn miðjan. A brjóstbrynjunni voru tólf gullbrydd- aðir steinar í fjórum röðum, þrír steinar í hverri röð. Steinarnir voru nefndir eftír hinum tólf ættkvíslum Israel. A hægri og vinstri hlið brynjunnar voru tveir tindrandi steinar sem hétu Urím og Túmmím. Þegar æðsti prest- urinn spurði Guð spurninga þá svar- aði Guð með því að lýsa annan stein- AoventFrkttir 27

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.