Aðventfréttir - 01.03.1996, Blaðsíða 25

Aðventfréttir - 01.03.1996, Blaðsíða 25
sérstökum stundum stökkva þeir blóði fórnardýranna á hornin á þessu altari. Brennandi reykelsið fyllir allt musterið af lykt. ÞAÐ ALLRA HELGASTA Nærvera Guðs er í hinu allra helg- asta. Þetta er svo heilagur staður að aðeins prestarnir fá að fara þar inn og það bara einu sinni á ári! Þar inni er sáttmálsörkin. Hún er búin til úr akasíuvið og þakin gulli að innan og utan. Það er kóróna úr gulli ofan á henni. Ork þessi geymir boð- orðin tíu sem Guð skrifaði með eigin fingri, skál af manna, staf Arons sem laufgaðist og lögmálsbókina. Lok arkarinnar er kallað náðarstóll. Það er einnig búið til úr einu stóru gullstykki. Tveir kerúbar standa á hvorum enda arkarinnar og snúa gegnt hvor öðrum, en horfa báðir niður á örkina af lotningu. Hver eng- ill teygir annan vænginn upp á með- an hinn hylur líkamann. Þetta gera þeir af virðingu og lotningu. Það fyll- ir okkur lotningu að sjá þetta. Yflr náðarstólnum er Shekinah, djrð og nærvera Drottins í skýi. Guð talar við æðsta prestinn með rödd í skýinn. Þegar við ferðumst svona gegnunt musterið þá verður okkur að orði: „Hvað merkir þetta allt?“ A morgun ætlum við að kanna hvað þessir fjár- sjóðir segja okkur um Guð. ÞRIÐJUDAGUR 2+3+2= einn MINNISVERS: „Honum er þad að þakka ad þér erud í samfélagi við Krist Jesú. Hann er orðinn oss vísdómur frá Guði, beeði réttlceti, helgun og endur- lausn. “ lKor 1.30 HVAÐ ER SKUGGI? Ég man þegar ég var barn að reyna að ná skugganum mínum á jörðinni. Stundum reyndi ég að stökkva burt frá honum. Það reyndist ómögulegt. Biblían segir að jarðneska musterið hafi verið eftirmynd eða skugginn af því raunverulega musterinu á himn- um (Heb 8). Þegar ísraelsmenn komust undan oki Egypta þá komust þeir í burtu frá erfiðu lífi þrælsins. Þeir áttu engar bækur svo sögurnar lifðu sem munn- mælasögur. Jarðneska musterið sem Guð gaf og Israelsmenn byggðu var í því sem má kalla myndbókarstíl. Allt sem inni í musterinu var voru litlar táknmyndir sem Guð gaf börnum sínum. Táknin notaði svo Guð til að segja fólkinu hvernig hann ætlaði að frelsa það. Manstu hvernig herbergi Kimber- leys og Ryans sögðu okkur eitthvað um þau? Nú skulum við skoða must- erið og reyna að sjá hvað Guð er að reyna að segja okkur um hann. SKOÐUM GUÐ I FORGARÐINUM I gær tókum við eftir þvottakerinu í forgarðinum þar sem prestarnir þvo hendur og fætur áður en þeir ganga inn í musterið. Af hverju þvoðu þeir sér? Hvað seg- ir það okkur um Guð? Manstu þegar Móse sá runnann sem brann? Hann var svo hissa þegar runninn brann ekki. Guð var í runnanum - alveg eins og hann er í skýinu og musterinu. Við runnann brennandi þá sagði Guð Móse að fara úr sandölunum vegna þess að hann stóð á helgri jörð. Musterið var líka heilagt af því að Guð var þar. Þess vegna fóru prest- arnir úr sandölunum og þvoðu á sér fæturna svo þeir saurguðu ekki þenn- an helga stað. Þetta kennir okkur að Guð er heilagur og ekkert skítugt er liðið í návist hans. EF KOPARALTARIÐ GÆTI TALAÐ Hugsaðu þér ef altari gæti talað! Það gæti sagt eitthvað þessu líkt: „Kvölds og morgna er fórn brennd á mér. Þetta flekklausa lamb, sem er fullkomið og saklaust, minnir ísrael á frelsarann sem koma skal, Jesús Krists - Messías. Þessi fórn minnir á að það verður að treysta á Jesús, lamb Guðs, til að fólkið geti frelsast.“ INNANSTOKKSMUNIR HINS HEILAGA Manstu hvað þrennt er að finna í hinu heilaga? Skoðunarbrauðsborð- ið, ljósastikuna og reykelsisaltarið? Hvað segja þessir munir okkur um Guð? SÖCIIR Prestarnir höfðu stöðugt brauð á borðinu og kölluðu það brauð nær- veru Guðs vegna þess að það var ávallt frammi fýrir Guði. Af hverju heldur þú að brauðin liafi verið tólf? Talan tólf minnir okkur á tólf kyn- kvíslir ísraelsmanna sem táknuðu allt fólk Guðs. Guð gefur öllum, sem honum treysta, bæði raunverulega og andlega fæðu. Skoðunarbrauðið minnti á Krist sem er hið lifandi brauð og stendur frammi fyrir Guði fyrir okkar hönd. Reykelsið táknað dásamlegt líf Krists sem var Guði þóknanlegt. Jesús sagði: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur“ (Jh 6.35). Ljósið á stikunni var aldrei slökkt. Þetta segir okkur að Ijós er mikilvægt. Ljós hjálpar okkur að villast ekki af veginum. Ert þú myrkfælin/n? Hefur þú einhvertíma verið myrkfælin/n? Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins“ (Jh 8.12). Alveg eins og ljósastikan var eina ljósið í musterinu j:>á er Kristur eina ljós heimsins. Hann er eina ljósið sem við þurfum til að rata. Hann mun aldrei skilja okkur eftir í myrkri. Hvað með reykelsisaltarið? Þegar presturinn færði reykelsisfórn tvisvar á dag komst hann næst Guði. Hafðu í huga að fortjaldið náði ekki alveg upp í loft. Presturinn gat því horft upp á þetta pínu bil þó hann mætti ekki fara inn í hið allra helgasta. Þeg- ar reykelsið brann fylltist báðar búðir musterisins af ilmandi reyk. Hvað segir reykelsið okkur um Guð? Vissir þú að Guð gaf Móse upp- skriftina af reykelsinu? Þetta var sér- stök uppskrift sem ekki var heimilt að nota annars staðar. Við eigum að hugsa reykelsið sem bænir sem svífa upp til Guðs. Þetta sérstaka reykelsi táknar verð- leika Jesú Krists og óendanlegan góð- leik hans. Kristur blandar sínu full- komna lífi við bænir okkar og til- beiðslu. Það er vegna hans að bænir AðventFréttir 25

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.