Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 18

Aðventfréttir - 01.03.1996, Side 18
og virt aö vettugi kall Guðs til iðrunar og uppgjafar. Þó er gott til þess að vita að plág- urnar munu ekki falla á einn af Guðs útvöldu. Guð sjálfur hefur sagt svo: „Er ég sé blóðið, mun ég ganga fram hjáyður" (2M 12.13). Nú er rétti tíminn til að hlusta á orð af himni ofan. Kristur er enn í musterinu. Hann hefur sent okkur síðasta boðskap fagnaðarerindisins, um dóminn, í kærleika og náð. Hann er að biðja alla, konur og menn, stúlkur og drengi, um að snúa til Guðs og yfirgefa syndina. Þegar dómnum fyrir endurkomuna lýkur þá mun plágunum sjö verða hellt yfír jörðina og Kristur svo snúa aftur í dýrð sinni. Sigur hinna trúföstu er tryggður vegna þess að Kristi, herra þessa safn- aðar, lambinu, var fórnað og hefur því til að bera bæði verðleika og getu okkur til frelsunar. Loforð hans eru örugg. Hann bregst ekki. Megi dagur Drottins finna okkur örugg í skjóli al- mættisins. TIL UMRÆÐU Ef söfnuðirnir sjö lýsa kristinni kirkju á öllum tímum, hvaða söfnuð- ur á þá við þinn söfnuð? Hvaða söfn- uði líkist þinn mest? Hvað hyggst þú gera í málinu? Ef Kristur er þungamiðja Opinber- unarbókarinnar hvernig breytir það því hvernig ég kynni hana öðru fólki? Adekunle A. Alalade er rektor Gubfrœdiháskóla Sjöunda-dags aðventista í Nígeriu, V-Afríku. Hann er einnig prófessor í trúarbragba- og gub- frœbi vib sama skóla. Vegurínn tril Krrists Bókin vegurinn til Krists hefur komið út á meira en 100 tungumálum í tugum milljóna eintaka er nú til í nýrri íslenskri þýðingu. Þessi bók hefur fært miklum fjölda fólks um heim allan uppörvun og huggun og vísað þeim veginn til hans sem einn getur uppfyllt brýnustu þarfir mannkynsins. Af hverju ekki að eignast eintak! FRÆKORNIÐ BÓKAFORLAG AÐVENTISTA 18 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.