Aðventfréttir - 01.03.1996, Qupperneq 26
okkar verða fallegar og Guði þóknan-
legar. Við þurfum á fullkomleika
hans að halda af því að við erum
ófullkomin.
HIÐ ALLRA HELGASTA
Hið allra helgasta geymdi sátt-
málsörkina og náðarstólinn. Hvað
segir það okkur um Guð?
Orkin hafði að geyma boðorðin tíu,
skál af manna og staf Arons sem
laufgaðist. Manna minnir okkur á að
Guð sér fyrir þörfum okkar. Hann
segir: „Hafið engar áhyggjur, ég skal
sjá um allt.“
Stafur Arons minnti á að Guð hafði
valið Aron og fjölskyldu hans til að
sinna prestþjónustunni. Guð er að
segja okkur að við getum treyst hon-
um og leiðtogum okkar.
Boðorðin tíu minna á mikilvægi
lögmáls Guðs - lögmál réttlætis hans.
Guð skrifaði |)au með eiginn fingri
og gaf Móse til varðveislu. Guð vissi
að ef við fylgdum lögmáli kærleika
hans þá yrðum við hamingjusöm.
Lögmál hans er fullkomið, sannleik-
ur og heilagt. Engin getur syndgað
gegn því og lifað í návist Guðs.
Það sorglega er að við höfum öll
syndgað gegn Guði. Góðu fréttirnar
eru þær að náðarstóllinn lokar örk-
inni. Náðarstóllinn merkir nærveru
Guðs og segir okkur að vegna fórnar
Jesú Krists á krossinum þá er fyrir-
gefningu að fá fyrir syndir ef við sjá-
um eftir jwí sem við höfum gert -
iðrumst.
Biblían segir: „Göngum því með
djörfung að hásæti náðarinnar, til
þess að vér öðlumst miskunn og hljót-
um náð til hjálpar á hagkvæmum
tíma“ (Heb 4.16).
2+3+2 = EINN
Við erum nú búinn að skoða must-
erið vel. Hvað segir það þér um Guð?
Þú ert búinn að heyra um þvottaker-
ið og altarið í forgarðinum, um jtað
þrennt sem er að finna í hinu heilaga
og um sáttmálsörkina og náðarstól-
inn í hinu allra helgasta. Ef [>ú sæir
aðeins eitthvað eða hvern mundir þú
sjá? Hver er fórnin, brauðið, ljósið og
reykelsið? Hver skrifaði lögmálið með
sinni eigin hendi og lifði svo full-
komnu lífi fyrir mig og þig? Hver er
náðarstóllinn? Já, það er rétt. Það er
Kristur, frelsari okkar og herra. Þegar
allt sem er að finna í musterinu er
lagt saman þá er útkoman EINN,
nefnilega Jesús Kristur - sonur Guðs
eingetinn.
Aform Guðs er svo fallegt og hann
hefur gert þetta allt fyrir þig. Við eig-
um vin fyrir framan hásæti Guðs. Það
er þetta sem musterið kennir okkur.
TIL UMRÆÐU
Getur j)ú lýst innanstokksmunum
musterisins og sagt svo hvað þeir
tákna? Skiptist á að segja frá í fjöl-
skyldunni hvað það er sem þið hafið
lært um musterið.
MIÐVIKUDAGUR
Tvö lömb -
Einn frelsari
MINNISVERS: „Og svo er pví farid
um hvern prest, að hann er dag livern
bundinn víb helgipjónustu sína og ber
fram margsinnis hinar sömu fórnir, pær
sem pó geta aldrei afmáb syndir. En Jesús
barfram eina fórn fyrir syndirnar og sett-
ist um aldur viö hcegri hönd Guðs. “ Heb
10.11, 12.
VERÐMÆT EIGN
Hefur þú misst eða týnt einhverjum
eða einhverju sem þér þótti vænt um?
I bókinni The Blue Bonnet (Blái hár-
borðinn) eftir Tommy De-paola, má
lesa goðsögn um stelpu af ættbálki
Connnanche índíána. Hún-Sem-Er-
Ein var eini eftirlifandi meðlimur fjöl-
skyldu sinnar. Foreldrar, ömmur og
afar höfðu öll soltið í hel sökum
langvarandi þurrks (langur tími án
regns). Þeir sem eftir lifðu í hennar
ættbálki ættleiddu hana. Hún átti
eina verðmæta eign. Það var taudúk-
ka með bláar fjaðrir í hárinu. Sam-
kvæmt goðsögninni þá gaf hún fús-
lega jjessa einu eign sína til að bjarga
fólkinu sínu.
Att þú svona verðmæta eign?
Kannski uppáhalds leikfang sem þú
hefur átt lengi eða þá eitthvað sem
þú hefur búið til?
í gær töluðum við um musterið og
hvernig öll þjónusta þar bendir á
einn mann - Jesú Krist, sem er bæði
Guð og maður. I dag ætlum við að
fjalla um Krist við fórnaraltarið og
rannsaka hvað það merkir allt.
KRISTUR ER HIN
RAUNVERULEGA FÓRN
Hafið hugfast að jDrestarnir fórn-
uðu öllu við altarið. Fyrir utan dag-
legar syndarfórnir Israelsmanna og
aðrar sérstakar fórnir þá var eins árs
gömlu lambi fórnað kvölds og
morgna. Þetta var til tákns um að
Israelsmenn treystu algjörlega á fórn
Jesú Krists. Lambið varð að vera flekk-
laust (2M 12.5). Presturinn rannsak-
aði hvert lamb og afþakkaði öll sem
voru örótt eða öðruvísi gölluð. Hvað
heldur þú að flekklaust lamb merki?
Jú, það er rétt. Fullkomið líf og dauði
Jesú Krists fýrir mig.
Það kann að vera að þú munir að
])egar Ki istur dó var páskahátíð Isra-
elsmanna í fullum gangi. Kristur dó
um kl 15.00 á föstudagseftirmiðdegi.
Það var á þeim tíma sem eftirmið-
dagsfórnin var færð í musterinu.
Þegar Kristur dó þá myrkvaðist
jörðin. Fólk heyrði þrumur, sá elding-
ar og fann jörðina á reiðiskjálfi. I
musterinu var presturinn að reisa
höndina til að slátra lambinu þegar
hann fann jörðina hristast. Svo sá
hann dálítið sem fékk hárin til að rísa
á höfðinu á honum. Það var eins og
ósýnileg hendi rifi fortjaldið milli
hins heilaga og hins allra helgasta í
tvennt.
Presturinn reis skjálfandi á fætur og
missti hnífinn. Lambið komst í burt
og slapp við að deyja. Eg heyri þig
segja „Vei“ þegar lambið slapp. En á
sama tíma dó annað lamb. Þú veist
hvaða lamb |>aö var, er |>aö ekki? Það
var Jesús. Hann dó í stað lambsins í
musterinu. Drengir og stúlkur, við
erum á vissan hátt þetta lamb. Eg á
ekki við að við séum flekklaus eða
fullkomin. Við vitum að svo er ekki.
En við göngum frjáls vegna þess að
lamb Guðs dó fýrir okkur.
Þegar Jesús dó þá fullkomnaðist
])að áform sem Guð og hann lögðu á
ráðin um fýrir löngu síðan. Manstu
þegar Kristur dó þá sagði hann „það
er fullkomnað“? Þá lauk hann verki
sínu. Hann var kallaður hinn annar
Adam og hann er búinn að vinna aft-
ur það sem hinn fýrsti Adam glataði.
MUSTERIÐ ER MYND
Þið sjáið það, piltar og stúlkur, að
Guð gaf musterið tímabundið til að
26
AðventFréttir