Vísbending - 22.12.2008, Side 3
BENEDIKT JÓHANNESSON
Is the ice safe?
„Ertu vitlaus að láta þetta út úr þér?“ spurði ferðafélagi minn. Við
vorum á veitingahúsi á Indlandi og þjónninn hafði komið með
gosdrykk á borðið, fullan af klökum. Ég var smátíma að átta mig
á tengingunni við ástand mála. A Indlandi er allt annar heimur en
við eigum að venjast. Heirnur andstæðna þar sem fátækt og auðlegð
kallast á. Þar er ekki einu sinni skipulagt kaos á götunum. Fonnlega
er þar vinstri umferð, en það þýðir ekki að menn aki ekki stundum
hægra megin, jafnvel á hraðbrautum. Gulgrænir leigubílar, vörubílar,
mótorhjól þar sem heimilisfaðirinn situr með hjálm og reiðir ástkæra
eiginkonu sína klædda í litríkan sarí og tvö, þrjú böm, allt eftir
aðstæðum. Blessaðar kýmar ráfa stundum inn á veginn og enginn
stuggar við þeim. Stundum sér með menn draga handvagna fúlla af
heyi, einu sinni var fíll á veginum. Svona var Indland.
Areitið var stöðugt frá því að maður steig út á götuna. Hjálpsamir
menn buðust til þess að vísa okkur veginn, betlarar réttu fram höndina,
einfættir, eineygir, fótalausir, mæður með skítug böm. Allir vildu fá
tíu rúpíur. Einhver hafði sagt mér að horfa aldrei í augun á neinum.
Eftir nokkra daga haföi ég komið mér upp því fasi að enginn þorði
að nálgast mig. Svona var lífið í Dehli. I smærri borgunum var fólk
gjöróh'kt. Þar gat maður gengið um óáreittur og fólkið brosti þegar
maður gekk hjá. Indveijar em fallegt fólk. Jafhvel fátækar konur
ganga um í litklæðum hvem einasta dag. Þó að fátæktin sé sláandi
er ógleymanlegt að sjá glæsilegar byggingar fyrri tíma. Oneitanlega
spyr maður sig hvers vegna þessi Ijölmenna þjóð hafi ekki lagt
hraðbrautir þvers og kmss um landið fyrir löngu.
Maturinn sem ferðamenn óttast öðm fremur á Indlandi er afar
ljúffengur. Ekki borða neitt hrátt og ekki ferskt grænmeti. Alls ekki
klaka. Þess vegna var það sem mér brá við þegar þjónninn kom
með svaladrykkinn fúllan af ísmolum. Hann sagði að þessi klaki
væri algjörlega gerilsneyddur. Ég horföi á hvítan jakka þjónsins,
glæsilegan veitingasalinn og broshýra gesti, sem allir virtust súpa af
sínum glösum af bestu lyst. Svo brosti ég, kinkaði kolli og þakkaði
þjóninum fyrir. Þegar hann fór hellti ég úr glasinu í blómapottinn við
hliðina á borðinu. Allir vom glaðir.
EFNISYFIRLIT
t
Frá rítstjóra..................................................3
Vitnið.........................................................4
— Frásögn ejiir Benedikt Jóhannesson
Fyrri kreppan á Islandi.....f.................................8
— Guðmundur Magnússon
Nokkrar skilgreiningar........................................10
—Einar Már Guðmundsson
Hœttum að trúa á helgisagnir um Jrelsið.......................12
—Páll Asgeir Ásgeirsson rœðir við Davið Scheving Thorsteinsson
Efnahagskreppur á Islandi í sögulegu Ijósi....................17
— Guðmundur Jónsson
Skagenmálaramir...............................................20
~Jónína Oskarsdóttir
heimur
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Heimurhf., Borgartúni 23,105 Reykjavík.
Sími: 512 7575. Myndsendir: 561 8646.
Netfang: visbending@heimur.is
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofhun Háskólans
Umbrot og hönnun: Siguijón Kristjánsson, sjonni@heimur.is
Prentun: Oddi. Upplag: 5.000 eintök.
Forsíðumynd: Páll Stefánsson.
Baksíðumynd: Páll Kjartansson.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda.
VÍSBENDING I 3