Vísbending


Vísbending - 22.12.2008, Blaðsíða 20

Vísbending - 22.12.2008, Blaðsíða 20
Listamenn, bækur, módel og gúanóilmur - þar sem höftn fallast í faöma! JÓNÍNA ÓSKARSDÓTTIR Höfundur framan við Skagens Museum sem er 100 ára í ár. I baksýn sjást Anker og Kröjer, stofnendur safnsins. Þetta er ferðasaga sem byggir á málshættinum „oft veltir lítil þúfa þungu hlassi“. l Þúfan er í þessu tilfelli tinaskja undir sígarettur. Dósina fann ég í verslun í Árósum þar sem ég bjó íyrir 25 árum á þeim tíma þegar ég reykti. En, nú má ég ekki sökkva niður í dagdrauma um sígarettureyk og hringi; sem svo gaman var að móta með stút á munni og þykjast veraldarvanur. Það sem ég féll íyrir og heillaði mig var að á tindósinni var mynd af konu klæddri rómantískum hvítum kjól í tjómagulum fjömsandi með hatt milli krosslagðra fingramia umvafin bláum himni; og hvítt tunglsljósið gárast í bláu hafinu allt um kring. Það var eitthvað við þessa mynd á boxinu sem höfðaði svo sterkt til mín, fjaran var einhvem veginn svo íslensk og svo var þessi fallega kona í kjól sem hæfði betur hallarsölum en Ijörulalli. Eg varð eitthvað svo forvitin um fyrirsætuna og þetta allt. Og, þá er komið að hlassinu. Hlassið er Skagen. Eg komst að því að myndin á dósinni var eftir einn ffægasta Skagensmálarann P.S. Kröjer og er af Maríu Triepcke Krojer konu hans sem talinn var ein fegursta kona Danmerkur á sinni tíð. Hún var aðalfyrirsæta Kröjers á ótal myndum, nokkurs konar súpermodel þess tíma. Dósin kveikti áhuga og smám saman fór ég að kynna mér ýmislegt sem ég komst yfir um Skagen og listamannagengið þar og hef lengi verið á leiðinni þangað. í vor komst ég svo loksins til Skagen, umvafin fortíðarljóma á skýjuðum miðvikudegi í byijun maí og vissi að ég nálgaðist áfangastað, þegar landslagið varð undarlega kunnuglegt sambland 20 | VÍSBENDING

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.