Vísbending


Vísbending - 22.12.2008, Side 13

Vísbending - 22.12.2008, Side 13
PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON Þetta segir Davíð Scheving Thorsteinsson fyrrverandi iðnrekandi, ráðgjafi, félagsmálatröll og “sólkonungur” l[ samtali við blaðamann Vísbendingar. Það er aðventa og myrkur, en við sitjum í fallegu húsi í Garðabæ yfir kaffi og jólakökum og Davíð heldur sérstaklega að gesti sínum fíngerðri randalín með mikilli sveskjufyllingu og sérstæðu kardimommubragði. Mögnuð kaka. „Þessi terta er bara bökuð á aðventunni. Þetta er eldgömul uppskrift vestan úr Æðey, uppáhaldið mitt,“ segir Davíð brosandi. Ævisagan í nokkrum vörumerkjum Ef segja ætti ævisögu Davíðs Scheving Thorsteinsson væri það ekki auðvelt í fáum orðum. Ævi hans er á einhvem undarlegan hátt spegilmynd af þroskasögu lýðveldisins Islands, og endurspeglar atvinnusögu þess og baráttu fyrir frelsi og sjálfstæði. Davíð er sonur bankastjóra sem yfirgaf tryggt sæti góðra launa og sneri sér að iðnframleiðslu. Nánar tiltekið smjörlfkisgerð. Þar byrjaði Davíð bamungur að þvo smjörlíkiskassa og smíða þá, síðan í afleysingum á lager og útkeyrslu. Rúmlega tvítugur tók Davíð svo að vinna í verksmiðjunni í stað þess að halda áfram í læknanámi. Sennilega hefði hann orðið ágætur iæknir því hann kann að hlusta af umhyggju og samúð og lætur sér annt um fólk. Ferill Davíðs sem smjörlíkisframleiðanda hefði sjálfsagt getað orðið farsæll og hljóðlátur, en það er ekki hans stíll. Hér mætti rekja þá sögu með tilþrifum en verður ekki gert því jretta er ekki svoleiðis blað. Er ekki nóg að nefna Sólblóma- og Jurtasmjörlíki, Sól-grænmeti, Trópícana, Brazza, Svala og Sodastream? Allt em þetta vörumerki sem allir núlifandi Islendingar þekkja og ólust upp við og Sól hf. var eitt af þekktustu fyrirtækjum landsins á áttunda og níunda áratugnum þegar hann var stundum kallaður Sólkonungurinn í hálfkæringi. Hér mætti líka nefna þátttöku Davíðs í félagslífi fyrir hönd iðnrekenda og atvinnurekenda í áratugi, setu hans í nefndum, stjómum og ráðum í tugatali, aðkomu hans að samningu laga og reglna og þá verður manni ljóst að hér situr maður sem hefur átt þátt í að búa til það ísland sem við jx'kkjum. Davíð tók þátt í að semja starfsreglur Kauphallarinnar og Sonne-Iögin, sem er gmndvöllur laganna um Samkeppnisstofnun svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er maðurinn sem fór í stríð við löggjafarvaidið með því að koma með sex bjóra til landsins og neita sátt um að hann hefði gert tilraun til smygls og þeir bjórar vom sennilega hálmstráið sem hryggbraut úlfaldann sem enn var eftir af áfengisbanninu og 1. mars 1989 var bjór leyfður aftur á íslandi eftir rúmlega hálfrar aldar bann. Fátt hefur breytt íslandi hversdagsins meira á seinni ámm en aflétting jtessa banns. Ættum við kannski að tíunda að undir handleiðslu Davíðs í rúmlega 30 ár stækkaði verksmiðjan Smjörlíkis / Sólar úr 350 fermetrum í meira en 10 þúsund fermetra. Þannig væri hægt að segja ævisögu Davíðs Scheving í gegnum ársreikninga fyrirtækisins og enda á því þegar reksturinn fór í þrot snemma á tíunda íiratugnum og Davíð missti nánast allar eigur sínar og byrjaði því á gamals aldri með tvær hendur tómar eins og sagt er. En þetta er ekki ævisaga Davíðs, jafnskemmtileg og litrík og slík VÍSBENDING I 13

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.