Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 1
skoðun14 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Líkamsrækt og heilsa Átak með alvöru árangri Markverðir draumar Sagan segir að mikið sé að marka drauma á nýársnótt. alltz FRETTABLAÐIÐ Föstudagur 30. desember 2011 305. tölublað 11. árgangur Sími: 512 5000 \\ 10 ÁRA 2 0 0 1 - 2 0 1 1 bmMmmmn Bylting á Egilsstöðum Pór Ragnarsson opnar herrafataverslun á Austurlandi. f Ólk 30 Ofstæki gegn erfðatækni Rœktun ORF Líftœkni á erfðabreyttu byggi er örugg og hefur enga hœttu ífór með sér, segir Eiríkur Sigurðsson. skoðun 15 Á leið til Svíþjóðar Kristinn Steindórsson samdi við sœnska félagið Haimstad. sport 26 veðrið í daq VAXANDIVINDUR af suðaustri og verða 10-18 m/s og snjókoma sunnan til en slydda eða rigning síðdegis. Úrkomulítið norðanlands. Dregur úrfrosti um allt land. VEÐUR4 ðO allir FYRIR EINN Hjallabakki í Breiðholti var eins og fjallvegur yfir að líta í gærmorgun. Allir lögðust á eitt við að greiða götu samborgara sinna. fréttablaðið/cva Snjórinn hægir á borgarlífinu Allt tiltækt lið var í snjóhreinsun í Reykjavík í gær. 33 sentimetra snjódýpt var í höfuðborginni. Pað er met í desember. Víða voru ökumenn í ógöngum. Jón Gnarr borgarstjóri lagði hönd á plóg. Áfram snjóar í dag. umferð Daglegt líf á höfuðborgar- svæðinu fór nokkuð úr skorðum í gær eftir óvenjumikla snjókomu í fyrrinótt. í Reykjavík mældist 33 sentimetra snjódýpt, sem er það mesta í desember síðan mæling- ar hófust á þriðja áratug síðustu aldar. „Ég er búinn að ýta tíu bílum í dag og hef reynt að leggja mitt af mörkum,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri þegar rætt var við hann síðdegis í gær. Frá því fyrr um daginn hafði allur tiltækur mannskapur staðið í snjóhreins- un á vegum Reykjavíkurborgar. Jón sagði borgina gera sitt besta til að ryðja götur bæjarins. „Fyrst sinnum við forgangsakstri og helstu samgönguæðum en við reynum líka að taka aðrar götur og göngustíga. Þetta er bara svo Þetta er bara svo svakalega mikill snjór. JÓN CNARR BORGARSTJÓRl svakalega mikill snjór,“ sagði borgarstjóri. Björgunarsveitarmenn stóðu í ströngu. Einnig nutu fjölmargir aðstoðar samborgara sinna í ófærðinni. Sorphirða er komin nokkuð á eftir áætlun og er brýnt fyrir fólki að moka frá tunnum við hús sín. Veðurstofan spáir áfram snjó- komu í dag. Síðdegis hlýnar þó á öllu landinu og ofankoman breyt- ist í slyddu. Útlit er fyrir rigningu á gamlársdag. - gar, kóp / sjá siðu 6 Fólkið í landinu les Fréttablaðið Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. 18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á tölublað, júlí-sept. 2011. Ráðherrum fækkar og unnið er að breytingum á skipan ráðuneyta: Jón og Árni Páll á leiðinni út STJórnmál Jón Bjarnason og Árni Páll Árnason munu yfirgefa ríkis- stjórnina um áramótin, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Breyt- ingarnar verða kynntar þing- flokkum stjórnarflokkanna í dag. Ráðherrum mun fækka um tvo við þetta, þar sem aðrir verða ekki skipaðir í staðinn. Óljósara er hvað verður um þau verkefni sem nú er sinnt í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðu- neytinu. Stefnt hefur verið að því að sam- eina iðnaðarráðuneyti og sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneyti í atvinnuvegaráðuneyti. Eins hefur verið stefnt að stofnun umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Þessar breytingar eru, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins, ekki það langt á veg komnar að hægt verði að koma nýjum ráðu- neytum strax á laggirnar. Aðrir ráðherrar munu líklega bæta verk- efnum þeirra við sig tímabundið. Stjórnarflokkarnir hafa átt í við- ræðum við þingmenn Hreyfingar- innar um að verja stjórnina van- trausti og styðja í ákveðnum málum, gegn því að ná hluta stefnumála Hreyfingarinnar fram. Ekki hefur náðst niðurstaða í þær viðræður, en reiknað er með að þær haldi áfram á nýju ári. - kóp / sjá siau 4 Allt fyrir áramótin Hattar, kórónur, gleraugu hálsfestar, glös, borðbúnaður, borðar, hengi, o.fl. o.|É Knöll, lúðrar, ýlur og innisprengjur í stykkjataíi á smáhlutabar. Faxafeni 11 • sími 534 0534 Opið til kl. 21 í kvöld

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.