Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 19
JJJT FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011 LIKAMSRÆKT &NÆRING Kynningarblað Hreyfing, heilsa, matur, rannsóknir, góð ráð, fæðubótarefni, hlaup, markmið. Átak með alvöru árangri Hreyfing hefur staðið fyrir geysivinsælum átaksnámskeiðuin sem verið hafa í stöðugri þróun í 22 ár. Lykilþættir átaksnámskeiðanna eru fræðsla, aðhald og fjölbreyttar æfingar. Ágústa Johnson Arangurinn lætur ekki á sér standa enda hafa nám- skeiðin skapað sér traust- an sess með þátttöku tugþús- unda kvenna í gegnum árin," segir Ágústa Johnson, framkvæmda- stjóri Hreyfingar, um átaksnám- skeiðin Árangur sem breytt hafa lífi kvenna til hins betra í rneira en tvo áratugi. „Námskeiðin eru í stöðugri þróun og reglu- lega uppfærð svo æfingakerfið skili þátttakend- umsem mestum árangri. Æfingarnar eru einfaldar en markvissar og fjölbreyttar, og það tryggir góðan árangur," segir Ágústa. í Árangri eru mismunandi áherslur eftir hópum til að mæta ólíkum þörfum kvenna. „Við höfum hópa fyrir konur sem hafa ekki stundað reglu- lega þjálfun í langan tíma en vilja taka átak sitt föstum tökum, auka styrk sinn og þol og komast í gott form, og annan hóp fyrir þær sem eru orðnar vanari þjálfun. Nýlega buðum við svo upp á skemmtilega nýjung sem við köllum Árangur- Dans-Fitness og er fyrir þær sem vilja dansa sig í flott form. Á öllum átaksnámskeiðum tekst líkaminn á við nýjar áskoranir, sem tryggir hámarks árangur, og útkoman er ætíð sú sama; konurnar styrkjast, ná tökum á neysluvenjum sínum og losna við óvelkomna líkams- fitu," upplýsir Ágústa. Annað árangursríkt námskeið sem hefur heldur betur slegið í gegn hjá Hreyfingu er Fantagott form, fyrir bæði kynin. „Það er sérsniðið fyrir þá sem Fantagott form er námskeið fyrir bæði kynin sem er sérsniðið fyrir þá sem vilja taka verulega á og komast í fantagott form. vilja taka verulega á og komast í fantagott form," segir Ágústa. „Áhersla er lögð á snerpu og kjarnavöðva líkamans, með ein- földum æfingum sem tryggja há- marks brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skjótan og hnitmiðað- an hátt. Grunnbrennsla líkam- ans eykst og í hverjum tíma verð- ur til hinn eftirsónarverði eftir- bruni sem veldur áframhaldandi brennslu hitaeininga á auknum hraða klukkustundum eftir að æfingu lýkur." Ágústa hvetur alla landsmenn til að hugsa vel um sál og líkama á komandi ári. „Það er nefnilega aldrei of seint að skora á sjálfan sig og komast í sitt besta form." Innifalið í ofangreindum nám- skeiðum er fjölbreytt þjálfun í lok- uðum tímum þrisvar í viku, ótak- markaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum, aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu, jarðsjávar- potti og gufuböðum, vigtun, fitu- mælingar, hvatning, fróðleikur og uppskriftir. Sjá nánar á www.hreyfing.is CLUBFIT-ÁHRIFARÍKT, KREFJANDI OG EINFALT Club Fit er nýtt, þrususkemmtilegt og áhrifaríkt æfingakerfi í Hreyf- ingu. Það er þróað úr mörgum af bestu og vinsælustu æfingakerfum veraldar og byggir á þolþjálfun á hlaupabretti og styrktaræfingum með lóðum. Æfingar Club Fit henta flestum og eru sérvaldar með öryggi og árangur að leiðarljósi. Þær eru einfaldar en samsettar á þann veg að grunnbrennsla líkamans eykst, sem og mikill eftirbruni. Þátt- takendur ná því hörkubrennslu í hverjum tíma, sem er .45 mínútur og stýrt af öflugum þjálfurum sem halda fólki vel við efnið með hvatningu og fjöri. Club Fit er kennt í sér sal þar sem lýsing og tónlist skapa skemmti- lega stemningu og hvetjandi orku. Þátttakendur komast í þrumugott form og tíminn flýgur því Club Fit er skemmtilegt. í Club Fit eru engin flókin spor til að læra; bara þjálfun á hlaupabretti, lyftingar, stemning og árangur. Club Fit-tímar eru opnir fyrir með- limi Hreyfingar og kosta ekkert aukalega. Vinsæl Wellness-námskeið Hot Fitness er nýjasta æfingakerfið í Hreyfingu og kemur í kjölfar námskeiðanna IID Fitness, Hot Yoga og Pilates Filness, sem slegið hafa rækilega í gegn hjá Hreyfingu. „Margir tala um að vera orðn- ir háðir því að stunda HD Fitness og Hot Yoga í Hreyfingu, og Hot Fitness er því næsta skref," segir Ágústa Johnson um nýjasta æf- ingakerfi Hreyfingar, sem kallar á aðeins meira krefjandi æfingar í 35 °C heitum æfingasal. „f Hot Fitness vinnum við með eigin líkamsþyngd en notum líka litla lóðabolta sem auka enn á styrk efri hluta líkamans. Æfing- ar eru allar hnitmiðaðar og róleg- ar, og vandlega hugsað um að þátt- takendur fái sem mest út úr þeim," útskýrirÁgústa um nýja námskeið- ið sem er í senn spennandi og lær- dómsríkt og tryggir flott form með fallega tónuðum vöðvum, auknum styrk og liðleika. „Lifandi markað- ur sér um fræðslu á heilnæmu og hreinu mataræði og kennir leiðir til að innleiða meiri hollustu í dagleg- ar neysluvenjur og versla úr heilsu- hillum verslana. Þá hafa þátttak- endur aðgang að lokuðu svæði Lifandi markaðar, með fræðslu, upplýsingum og uppskriftum," upplýsirÁgústa. Námskeiðið HD Fitness stendur fyrir „heitu djúpvöðva fitness" og er sérhannað af Ágústu Johnson, Önnu Ein'ksdóttur og Helgu Lind Björgvinsdóttur. „HD Fitness hent- ar þeim sem sækjast eftir tónuð- um líkama og tígulegu fasi. Það fer fram í heitum sal og byggir á róleg- um styrktaræfingum ásamt djúp- um teygjuæfingum. Eingöngu er unnið með eigin líkamsþyngd og sérstakar áherslur á styrkingu djúpvöðva í kvið og baki, og djúpar teygjuæfingar sem lengja og styrkja helstu vöðva líkamans," útskýrir Ágústa. Pilates Fitness er einnig vandað æfingakerfi sem nýtur gríðarlegra vinsælda um allan heim. Ágústa segir það sameina líkama og sál í áhrifaríkri þjálfun og styrkja helstu vöðva líkamans án þess að stækka þá. Æfingar eru rólegar og hnitmið- aðar og fara fram í 28 °C heitum sal. „Pilates Fitness er fullkomin blanda hreýfingar og styrktar- og liðleikaæfinga. Með því er hægt að endurmóta líkamann með lengri, grennri og fallegar mótaðri vöðv- um, um leið og þátttakendur læra að losa um streitu, verki og stíf- leika, og að beita líkama sínum með afslappaðri hætti," segir Ágústa og bætir við að Pilates Fit- ness henti jafnt byrjendum sem lengra komnum. Ofangreind námskeið eru sex vikna. Innfalið er lokaðir tímar tvisvar í viku og ótakmarkað- ur aðgangur í tækjasal og opna tíma, ásamt aðgangi að glæsi- legri útiaðstöðu, jarðsjávarpotti og gufuböðum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.