Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 4
GENGIÐ 29.12.2011 4 FRÉTTABLAÐIÐ 30. desember 2011 FÖSTUPACUR Um 500 fjölskyldur í Grikklandi hafa þurft að láta börn frá sér vegna kreppunnar: Geta ekki séð börnum sínum farborða crikkland Dimitris og Christina Gasparina- tos, foreldrar sex sona og fjögurra dætra í Grikklandi, áttu í erfiðleikum með að láta enda ná saman fyrir kreppuna. Þau skulduðu slátraranum, bakaranum og kaupmanninum í nýlenduvöruversluninni. Þau höfðu ekki getað greitt húsaleigu mánuðum saman fyrir litlu íbúðina þar sem þau sváfu á dýnum á gólfinu. Aðstæður þeirra urðu enn verri eftir að kreppan skall á með fullum þunga og á aðventunni sá heimilisfaðirinn engin önnur úrræði en að biðja yfirvöld um að taka að sér þrjá drengjanna og eina af stúlkunum, að því er kemur fram á vef breska blaðsins The Guardian. Saga Gasparinatos-fjölskyldunnar er ekki einsdæmi. Gríska dagblaðið Kathimerini hefur greint frá því að 500 fjölskyldur hafi nýlega beðið um að fá að koma börnum sínum fyrir á heimilum sem rekin eru af SOS barna- þorpunum. Fjöldi fjölskyldna er að bugast vegna fátæktar og margar hafa sundrast. Lítil stúlka kom nýlega í leikskólann sinn með miða um hálsinn sem á stóð: „Ég kem ekki til að sækja Önnu. Ég á enga peninga og get ekki séð um hana. Mér þykir það leitt. Mamma hennar.“ Gasparinatos fékk góðar fréttir í síðustu viku. Eiginkona auðugs kaupsýslumanns í Aþenu gaf honum fé svo að hann gæti flutt í nýtt húsnæði með eiginkonu sinni og tíu börnum. ibs MÓTMÆLI Hjálparsamtök í Grikklandi segja að þeim fjölgi sífellt sem lifi í sárri fátækt. nordic photos/afp Ráðherrum fækkað og stuðnings leitað Stefnt er að því að sameina ráðuneyti og stofna tvö ný á næsta ári. Jón Bjarna- son og Árni Páll Árnason hverfa úr ríkisstjórn um áramótin. Óvíst er hvernig verkefnum þeirra verður fyrirkomið. Pingflokkar funda um breytingar í dag. RÍKISSTJÓRN KYNNT Samfylkingin og Vinstrihreyfingin - grænt framboð fengu meirihluta að loknum kosningum í maí 2009. Flokkarnir höfðu setið í minnihluta- stjórn síðan í febrúar það ár. fréttablaðið/vilheim Rætt við Hreyfínguna um stuðning Viðræður hafa verið í gangi við þingmenn Hreyfingarinnar um stuðning við ríkisstjórnina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snúa þær að því að Hreyfingin verji stjórnina vantrausti. IVleð því lægi þær öldur sem stjórnin hefur þurft að velkjast í og frekari vinnufriður skapist til að vinna að stefnu- málum. Ríkistjórnin hefur nú eins manns meirihluta á þingi og má því fátt út af bera ætli hún að koma stefnu sinni í lög. Ekki náðist niðurstaða í við- ræðurnar, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins réði því fyrst og fremst tímaskortur og til stendur að taka viðræður upp að nýju eftir áramót. GJALDMIÐLAR KAUP SALA Hfe: Bandarikjadalur 123,1 123,68 Sterlingspund 189,17 190,09 F*1 Evra 158,69 159,57 55 Dönsk króna 21,342 21,466 =t== Norsk króna 20,441 20,561 JJJJ Sænsk króna 17,795 17,899 • Japanskt jen 1,5807 1,5899 SDR 188,42 189,54 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 217.7965 HEIMILD: Seðlabanki íslands Skuldabréfaútboð Ítalíu: Lægri vextir en lítil eftirspum ítalía, ap Útboð ítalskra ríkis- skuldabréfa í gær gekk ekki eins vel og vonir höfðu staðið til, þrátt fyrir lækkandi vaxtaálag. Skuldabréf seldust fyrir um sjö milljarða evra, á lægri vöxtum en ítalir hafa fengið undanfarið, en eftirspurnin var minni en vonast var eftir. Mario Monti forsætis- ráðherra fagnaði lækkandi vöxt- um en sagði margt óunnið. „Við erum alls ekki þeirrar skoðunar að óstöðugleikinn sé að baki.“ Heildarskuldir Ítalíu eru nú 1.900 milljarðar evra og koma 330 milljarðar til greiðslu á næsta ári. - þj LEIÐRÉTT Fyrir mistök féllu út nöfn meðlima dómnefndarinnar sem valdi viðskipta- mann ársins og fleira í Markaðnum sem fylgdi Fréttablaðinu í gær. í dóm- nefndinni sátu: Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Islands, Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAM Management, Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri DataMarket, Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá Markó Partners, Vilhjálmur Bjarnason, lektor við hag- fræðideild Háskóla íslands, Páll Harð- arson, forstjóri Nasdaq OMX lceland, Eggert Þór Aðalsteinsson, sérfræðing- ur hjá Virðingu, Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr, Friðrik Guðjónsson, framkvæmdastjóri Keldunnar, Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri Markó Partners, Magnús Halldórsson, frétta- stjóri viðskipta hjá Vísi og Stöð 2, og ritstjórn Markaðarins. í aðsendri grein Leifs Runólfssonar lögmanns á bls. 24 í Fréttablaðinu í gær um ólögmæltar refsilækkunar- ástæður hafði orðinu ólögmæltar fyrir mistök blaðsins verið breytt í ólögmætar, sem breytti merkingu orðsins. stjórnmál Margboðaðar breyting- ar á ríkisstjórninni verða að veru- leika á morgun, en þá fækkar ráð- herrum í ríkisstjórn íslands um tvo. Óvissa hefur ríkt um hverjar breytingarnar yrðu, en ljóst var að Jón Bjarnason væri á leið út úr ríkisstjórn. Á reiki hefur verið hvort einhver fylgdi honum eða hvort aðrar breytingar yrðu gerð- ar á stjórninni. Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins er nú ljóst að Árni Páll Árnason er einnig á leið út úr ríkisstjórninni. Þingflokkar stjórnarflokkanna funda um málið í dag þar sem þeim verða kynntar breytingarn- ar. Samkvæmt lögum Samfylk- ingarinnar þarf flokksstjórn að samþykkja breytingar á starfandi ríkisstjórn. Flokksstjórnin veitti hins vegar formanni flokksins, Jóhönnu Sigurðardóttur, umboð á fundi í maí 2009 til að gera breyt- ingar á ráðherraliði flokksins á tímabilinu. í skeyti Jóhönnu til fulltrúa í flokksstjórn segir að þrátt fyrir þetta umboð hafi hún ákveðið að kalla flokksstjórnina saman til að bera þær breytingar sem standa fyrir dyrum undir hana. Sá fundur verður klukkan 18.30. Við þessa breytingu verða ráð- herrar átta, en ekki er stefnt að því að aðrir setjist í sæti þeirra Jóns og Árna Páls. Hvað um verkefni ráðu- neyta þeirra verður er enn óljóst. Stefnt hefur verið að því að sam- eina iðnaðarráðuneyti og sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðu- neyti í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Að auki á að sameina málaflokka í nýju umhverfis- og auðlindar- áðuneyti. Þá hefur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra talað fyrir því að öll stjórn efnahags- mála verði á einni hendi - hendi fjármálaráðherra. Ljóst er að breytingar í þessa veru eru skammt á veg komnar og ekki verður farið í þær nú um ára- mótin. Nú er fyrst og fremst hugað að því að fækka ráðherrum, hvern- ig verkefnum þeirra verður fyrir- komið er óljósara. Miðað við áherslur flokkanna er ekki óvarlegt að álykta að Vinstri græn fái umhverfis- og auðlinda- ráðuneyti og Samfylkingin atvinnu- vegaráðuneyti. kolbeinn@frettabladid.is 44 morð í Danmörku í ár: Aðeins eitt mál ennþá óupplýst danmörk Alls hafa 44 verið myrt- ir í Danmörku það sem af er ári. í dönskum miðlum kemur fram að þetta sé svipaður fjöldi og síðustu ár, en í fyrra komu 43 morðmál til kasta lögreglu og árið 2009 voru þau 49. Aðeins í einu tilfelli hefur lögregla ekki enn handtekið neinn, en þar er um að ræða mál þar sem kornabarn fannst látið í stöðuvatni í upphafi mánaðarins. í fimm tilfellum svipti morð- inginn sig lífi eftir verknaðinn. Það mál sem vakti hvað mesta athygli var þegar hjón í Óðins- véum voru myrt á göngu um skóg- lendi í nágrenni borgarinnar. - þj Vorboðar láta á sér kræla: Óvenjulega hlýtt í Svíþjóð svípjóð Desember hefur verið sérlega hlýr í Svíþjóð. Mánuður- inn er einn af tíu hlýjustu des- embermánuðum síðustu 250 ára. Hitinn hefur verið í kringum tíu gráður í austur- og miðhluta landsins síðustu daga. í Stokk- hólmi hefur hitinn verið þremur gráðum yfir meðaltali, en mest hafa frávikin verið í Norðurbotni í norðurhluta landsins, þar sem hiti hefur verið sjö til tíu gráðum yfir meðaltali. Fréttir hafa borist af ýmsum vorboðum í kjölfar hlýindanna. Kantarellusveppir hafa vaxið, jarðarberjaplöntur blómstrað og tré eru farin að bruma. . þeb Sýslumaður skipaður Innanríkisráðherra hefur skipað Svavar Pálsson sýslumann á Húsavik til fimm ára. Svavar hefur starfað hjá embætti sýslumannsins á Húsavík frá 2004 og verið settur sýslumaður þar siðan 2009. Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - benni@benni.is - www.benni.is Nesdekk - Fískislóð - sími 561 4110/ Nesdekk - Reykjanesbœ - sími 420 3333 ravo tires Harðskeljadekk Frábær ending - Minna svifryk - Mjög hljóðlát VEÐURSPA Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður ÁRAMÓTAVEÐRIÐ Þegar líður á dag- inn dregur úr frosti á landinu og hlánar við suðurströndina og má búast við blautri úrkomu síðdegis. Skúrir eða slydduél sunnan og vestan til á morgun og él annað kvöld en vindur verður tiltölulega hægur um allt land þegar nýtt ár heilsar. Á MORCUNI 8-13 m/s SV-til, annars hægari. bÖí 4'Ðö mo ■S? b<£í NÝÁRSDAGUrH /p-v 5-10 m/s. HEIMURINN Alicante 12° Basel 1° Berlín 5° Billund 6° Frankfurt 4° Friedrichshafen 0° Gautaborg 5° Kaupmannahöfn 5° Las Palmas 20° London 11° Mallorca 16° New York 10° Orlando 22° Ósló 3° Parls 6° San Francisco 14° Stokkhólmur 4° Vindhraði er I m/s. Hitastig eru I °C. Gildistlmi korta er um hádegi. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS - AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdai jonl@frettablodidJs ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davlðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@Z65.is, Hjördís Zoéga hjordis@jrettabiadid.is. Hlynur Steingrfmsson biynurs@Z65.is, Laila Awad laila@Z65Js, Öm Geirsson om.geirsson@365Js ALLTSÍMI512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir/mð@365is, Brynja Gunnarsdótlir brynjag@Z65Js, Snorri Snonason snorris@365Js SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@Z65.is, Sigrlður ^gurb\ömsdóttitsigridurdagny@Z65.is, Ivar Hansen ivarom@Z65.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SlMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@Z65.is, l/iðar Pétursson vip@Z65Js WÓNUSTUAUGLÝSINGAR SlMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir siguriaug@Z65Js, Ama Kristinsdóttir amarut@Z65Js, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@Z65.is, Sigrún Guðmundsdóttirsigrunh@Z65.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einarskulason@365.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.