Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2011, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 30.12.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 30. desember 2011 FÖSTUDAGUR SPURNING DAGSINS f DAG: Ætlar þú að sœkja útsölur þetta 1 árið? > Segðu skoðun þína á visir.is visir Breytingará húsaleigubótum: Bætur skerðast við hærri laun félagsmAl Skerðingarmörk húsa- leigubóta múnu hækka um 12,5 prósent um áramót. Húsaleigu- bætur munu því skerðast um eitt prósent af árstekjum umfram 2,25 milljónir króna á næsta ári. Þessi breyting mun vera fyrsta skrefið í átt að þvi að jafna hús- næðisstuðning hins opinbera milli ólíkra búsetuforma. Fleiri muni eiga rétt á húsaleigubótum en áður. Áætlað er að útgjöld ríkisins og sveitarfélaga aukist um 100 milljónir króna vegna þessara breytinga. - þeb Ágreiningur um 800 milljarða króna kröfur í bú Kaupþings Útistandandi ágreiningskröfur sem hefur verið hafnað í bú Kaupþings nema tæpum 800 milljörðum. Lang- stærst er 250 milljarða krafa Existu vegna afleiðusamninga. Þrotabú Baugs á bótakröfu upp á 32 milljarða. KAUPÞING Fréttablaðið greindi frá því í gær að til stæði að hefja formlegt nauða- samningsferli bankans á öðrum fjórðungi næsta árs. fréttablaðið/pjetur viðskipti Ágreiningur er uppi um 796,6 milljarða króna kröfur sem hefur verið hafnað í þrotabú Kaup- þings. í því felst að kröfuhafarn- ir sætta sig ekki við höfnunina og hafa í mörgum tilfellum ákveðið að leita réttar síns til að fá kröf- urnar viðurkenndar. Langstærst- ur hluti krafna sem ágreiningur er um hjá þrotabúi Kaupþings er vegna afleiðusamninga. Stærsta einstaka krafan er frá Klakka, sem áður hét Exista, vegna slíks samnings og skaðabóta. Heildar- upphæð kröfunnar er 250,7 millj- arðar króna. Þetta kemur fram í kynningu sem slitastjórn bankans hélt fyrir kröfuhafa hans hinn 14. desember. Klakki/Exista fór í gegnum nauðasamninga í fyrrahaust. Stærsti einstaki eigandi félags- ins er Arion banki með um 45% hlut. Þrír erlendir vogunarsjóð- ir eiga samtals 17,5% hlut. í árs- reikningi Klakka/Existu fyrir árið 2010 segir að félagið hafi átt „opna framvirka gjaldmiðlasamninga við Kaupþing banka og Glitni fyrir hrun þeirra í október 2008. Kaup- þing banki og Glitnir hafa ekki viðurkennt kröfu Exista vegna þessa samninga og standa yfir málaferli vegna þeirra". Drómi hf., eignarhaldsfélag sem tók við öllum eignum og tryggingaréttindum SPRON, á kröfu upp á 32,4 millj- arða króna vegna afleiðuviðskipta. Þrotabú fyrrverandi dóttur- félaga Kaupþings, Kaupthing Singer & Friedlander í Bretlandi og á Mön, eiga líka mjög háar kröfur. Samtals nema þær tæp- lega 167 milljörðum króna. Þá á sjóður sem hét Kaupthing Capital Partners II (KCPII) ágreinings- kröfu upp á 47,6 milljarða króna. KCPII var settur á fót í byrjun árs 2007 og var kynntur sem lokaður sjóður í eigu Kaupþings, fagfjár- festa og viðskiptavina bankans í einkabankaþjónustu hans. KCPII var tekinn til gjaldþrotaskipta 18. október 2008, níu dögum eftir fall Kaupþings, vegna greiðslufalls. Þrotabú Baugs á eina af stærstu kröfunum sem enn eru í ágrein- ingi, upp á 32,3 milljarða króna. Um er að ræða skaðabótakröfu sem tengist riftunarmáli sem þrotabúið hefur höfðað vegna söl- unnar á Högum til eignarhalds- félagsins 1998 á árinu 2008. Kaup- þing fjármagnaði þann gerning. Tveir stórir íslenskir lífeyris- sjóðir, Lífeyrissjóður Bankastræti 7 (lífeyrissjóðir starfsmanna rík- isins) og Lífeyrissjóður verslun- armanna, eiga samtals kröfu upp á 14,1 milljarð króna í búið vegna afleiðuviðskipta sjóðanna við Kaupþing fyrir bankahrun. Þá eiga stórir erlendir bankar á borð við Credit Suisse Internation- al (29,6 milljarðar króna krafa), DZ Bank (11,9 milljarða króna) og The Bank of Tokyo (7,5 milljarða króna krafa) einnig stórar kröfur sem eru enn í ágreiningi. thordur@frettab!adid.is nicorettef Nýárstilboö 20% afsláttur af öllum pakkningastærðum af: Nicorette fruítmint lyfjatyggigúmmí Tilboðið gildir til 31.01.2012 í öllum apótekum Lyíja & heilsu Nitorelte® nikótmlyf cru fáanlcg én lyficðils og eru notuð til meðferðar a nikótmflkn og til að draga ..—< þvrrtvi; mikiðpr raykt cn hámarksdagskammtar eru: forðapl/ ' 1 Nicorette invisi plástur Nicorette inhalator innsogslyf <^?Lyf&heilsa notii Nlcorette í samr< turidriir eftír, liýsingumum ,.... ing eða nýlegt víðlaokr * ' * fráhvarfseinkcnnum þcgar reykin^um er hætt cða þegar dreglð er úr þcim. ■ivc mikíö cr reykt cn hárriarksdagskammtar cru forðaplastur 1 ítk- lyfjatyggigummi 24 stk .inh sogslyf - -...._____________________ ti lyfin, Peir sem fengiö hafa ofnæmi fyrir nikótini eða öðrum mnihaldsefnum íýfsins, nýlegt hjartaáfaTl, óstöðuga versriandi hjartaöng, alvarlegar týleqt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn ynqri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaöar konur og konur meö barn á brjðsti að nota lyfið. Markaðsleyfishafi. McNeil Denmark ApS. Umboð á Islandi: Vistor hf , Horgat ni. Lesið alían fyfflheðilmn vandlega áöur en byrjað er ao nota lyfið Markaðsleyfishafi McNeil Denmark ApS. . m Skammtar stk. nikótlntappar. Leitlð til læknis eða lyfjafræöings -----------" *•' _ _ ''—‘-----hjartslatrartruflanir, skulu einqðnqu “ Garðabae. Horgatún 2. 210 G Kim Jong-un formlega nefndur æðsti leiðtogi í gær: Völd leiðtogans treyst NORÐUR-KÓREA. ap „Hinn virti félagi Kim Jong-un er æðsti leið- togi flokks okkar, hers og lands og hefur hlotið í arf hugmyndafræði, forystu, skapgerð, dyggðir, kjark og hugrekki hins mikla félaga, Kim Jong-il,“ sagði Kim Yong-nam, for- maður forsætisnefnar norður-kór- eska þjóðþingsins, í ræðu sem hann flutti á minningarathöfn um Kim Jong-il í gær. „Sú staðreynd að hann fann full- komna lausn á arftakavandamál- inu er göfugasta afrek hins mikla félaga, Kim Jong-il.“ „Kim Jong-il hafði lagt fyrir hann rautt silki- teppi og Kim Jong-un þarf ekki annað en að ganga á því,“ segir Jeung Yong-tae, sér- fræðingur við rannsóknar- stofnun í Suður-Kóreu. Kim Jong-un var formlega nefnd- ur æðsti leiðtogi landsins í fyrsta sinn í gær. - gb KIM JONG-UN Sérhönnuð 200 skota terta í íslensku fánalitunum, blá, rauð og hvít. STÆRSTU Bombur baeta e flugeldatertur landsins! Verðor á staðnum/ Opnunartímar Miðvikudagur 28. des. Finimtudagur29. des Föstudagur 30. des Laugardagur 31. des

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.