Fréttablaðið - 30.12.2011, Page 20

Fréttablaðið - 30.12.2011, Page 20
Fjölþjálfar verð frá 89.900 Þrekhjól verð f rá 65.900 Fitmaster i Lyftingastöð með 60 kg t stafla. / 129.900 f rafmagns- stýrðu segulvið- námi. 12 æfínga l prógrömm og V púlsmælir. ' 139.900 ÞREK&ÞOL AURKIÐ www.markid.is . sími 553 5320 . Ármúla 40 KYNNING - AUGLÝSING I FÖSTUDAGUR 30. desember2oii Brynjar Þór á fjölþjálfa frá Kettler, en fyrir aftan hann má sjá hlaupabrettin sem einnig eru vinrsæl. mynd/gva Tækin spara bæði tíma og fyrirhöfn Sportvöruverslunin Markið að Ármúla 40 býður upp á gott úrval þrektækja frá Kettler. Merkið er eitt það stærsta í Evrópu og mjög góð reynsla hefur verið af því hér á landi. Þrekhjólin eru vinsæl, sérstaklega meðal eldra fólks sem fær góða hreyfingu án of mikils álags á líkamann. Kettler eryfir sextíu ára gam- alt merki og einn stærsti þrektækjaframleiðandi í Evrópu fyrir heimamarkað," segir Brynjar Þór Bragason fram- kvæmdastjóri Marksins. Þrek- tækin frá Kettler hafa fengist í Markinu í tæp þrjátíu ár og Brynj- ar segir reynsluna af þeim sérstak- lega góða. „Gæðin eru einstaklega mikil og tækin geta enst nánast endalaust," segir hann. Úrvalið af þrektækjum frá Kettler er þó nokkurt í Markinu. „Við erum með lyftingabekki, lyftingastöðvar, hlaupabretti, fjöl- þjálfa, þrekhjól og svo fullt af smá- hlutum allt niður í sippubönd," telur Brynjar upp, en öll eru þessi tæki ætluð til heimabrúks. Brynjar segir alltaf vinsælt hjá fólki að eiga slík tæki heima við, sérstaklega meðal fólks sem hafi ekki áhuga eða tíma til að nýta sér þjónustu líkamsræktarstöðva. „Það er auð- vitað mjög hentugt fyrir til dæmis barnafólk að eiga svona tæki heima hjá sér þegar lítill tími gefst til að fara á stöðvarnar," segir hann og bætir við að algengt sé að öll fjöl- skyldan nýti sér tækin. „Svo eru líka til þeir sem fara á stöðvarnar en eiga einnig tæki heima til að taka aukaæfingar." Brynjar segir algengast að fólk velji sér eitt tæki til að eiga heima þó að sumir innrétti vissulega heilt herbergi sem íþróttasal. „Þá er fólk kannski með eitt brennslutæki á borð við þrekhjól eða fjölþjálfa og svo lyftingatæki til viðbótar." Hann segir afar breiðan hóp fólks eiga þrektæki heima hjá sér. „Þetta er allt frá fólki sem vill halda sér í strangri þjálfun og upp í eldra fólk sem þarf á því að halda að hreyfa sig en kemst kannski ekki út í öllum veðrum." Hann segir þrek- hjólið vinsælast meðal eldra fólks þar sem það veiti þægilega hreyf- ingu en auki ekki álag á bak. „Svo eru fjölþjálfar og hlaupabretti vin- sælli hjá yngra fólki," segir Brynj- ar og bætir við að nokkuð sé um að fólk utan höfuðborgarsvæðisins fjárfesti í þrektækjum. Eins og áður sagði er ending þrektækjanna frá Kettler afar góð. Ef eitthvað kemur upp á og tækin bila er hægt að leita til Marksins sem er með verkstæði með öllum varahlutum sem til þarf. Þá býður Markið einnig upp á þá þjón- ustu að koma tækjunum heim til fólks fyrir sanngjarnt verð. „Síðan getur fólkvalið að fá tækin annað hvort samsett eða ósamsett," segir Brynjar. Hann bendir á að starfs- menn Marksins hafi góða reynslu og geti leiðbeint fólki um val á réttu tækjunum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Marksins á www.markid.is VÖNDUÐ BORÐTENNISBORÐ FRA KETTLER Borðtennis er afar skemmtileg íþrótt sem gaman er að stunda í heimahúsum. Borðtennis er ætlaður fyrir tvo eða fjóra leikmenn, þetta er hraður leikur og krefst einbeitingar en er ekki líkamlega erfiður og hentar því mjög breiðum hópi fólks. Þannig geta fullorðnir til dæmis spilað við börn. Markið hefur til sölu borðtennisborð frá Kettler en fyrirtækið er líka þekkt fyrir framleiðslu á vönduðum borðtennisborðum. Borðin eru til að mynda öll framleidd í Þýskalandi. Borðin sem Markið býður upp á eru öll í fullri stærð og auðvelt ér að leggja þau saman og j rúlla þeim út í horn til að spara pláss. Þeir sem hafa engan til að spila ^ við geta vel æft sig í borðtennis einir því hægt er að hafa aðra plötuna • uppi og spila við sjálfan sig. f Markinu er einnig hægt að kaupa spaða og borðtenniskúlur. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlið 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridur- dagny@365.is s. 512 5462 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.