Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 22
4 I Líkamsrækt og næring
I KYNNING - AUGLÝSiNG
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011
GÖNGUM, GÖNGUM
Göngur úti við eru góðar bæði fyrir líkama og sál. Þær efla þol, auka
brennslu, lækka blóð-
þrýsting og styrkja
hjartað. Ekki þarf
heldur að vera mikið
mál að fá sér göngutúr,
bara skella sér í skó og
koma sér út um dyrnar.
Ef hálka erájörð eru
mannbroddar málið.
Þeir broddar sem líta
út eins og tátiljur eru
handhægir og það
tekur lítinn tíma að smeygja sér í þá.
Til að láta verða af því að hreyfa sig úti við er ágætt að nota þær ferðir sem
við ætlum hvort sem er að fara, í heimsóknir, verslanir, skóla og vinnu eða
í hver önnur erindi sem við eigum út af heimilinu. Þá hefur ferðin tilgang
og gangan bætist við sem heilsubótarbónus. Ef tekið er á í göngunni er
hressandi að gera teygjuæfingar á eftir.
SAGA STREITUHUGTAKSINS
Læknaneminn Hans Selye var að læra um
einkenni hinna ýmsu sjúkdóma á bandarísku
sjúkrahúsi árið 1926. Hann leit svo á að
það sem sjúklingarnir ættu sammerkt væri
máttleysi, kvíði og lystarleysi og rakti það
til álagsins sem sjúkdómurinn olli þeim,
hvað svo sem hann hét. Eftir það varði hann
löngum tíma í að rannsaka áhrif álags á dýr
og menn og fann að yfirálag veldur streitu,
sem leiðir til sjúkleika sé-það langvarandi.
Síðar á ævinni lagði Selye áherslu á
jákvæðar hliðar streítu í mannlífinu. Hann taldi að ef álagið samræmdist
markmiðum fólks og það fengi nægilega hvíld gæti streita verið heilsu-
samleg og sannkallað„krydd lífsins" svo að notuð séu hans eigin orð.
Heimild/persona.is
SftiS
' Listdansskgíi dCafnarfjarðar
Kennarar skólans eru velmenntadir og með alþjódlega reynslu.
> Barnadans 2-5 ára
> Barnadans 6-7 ára
> Barnadjassdans 7-8 ára
• Klassiskur ballett 9 ára +
• Djassdans 9 ára +
Hipp Hopp 9 ára +
Nútimadans 14 ára +
Skvisutímar og
fullorðins ballett
Afró 16 ára +
BerglincTTTgurvegari Cu
Dans Dans Dans
mun kenna hjá okkur á vorönn.
danskennari úr Dans Dans Dans
mun kenna hjá okkurá vorönn
Skráning isima 894 0577/listdansskoli.is
Þrjú myndbönd með nyjum
lögum Páli Óskari á vísir.is/popp
DÞÚ KOMSTVIÐ HJARTAO í MÉR
□ ÞORSLÁKSMESSUKVÖLD
□ BETRA LÍF
TÓNLISTARTÍMARITIÐ
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
visir
Afslappandi herðanudd
AÐ LOKINNI ÆFINGU
Hot Yoga tímar og þrjú spennandi námskeið: Insanity, Velkomin í núið og Goran
súperform eru að hefjast hjá líkamsræktarstöðinni Nordica Spa & Gym. Gefum Bjargeyju
Aðalsteinsdóttur íþróttafræðingi orðið.
Nordica Spa & Gym er vönd-
uð og elegant líkamsrækt-
arstöð, spa, nuddstofa og
snyrtistofa," byrjar Bjargey mál
sitt og segir nýbúið að taka stöð-
ina í gegn, breyta og laga og bæta
einum hóptímasal við. „Nýjung-
arnar hjá okkur í janúar eru þær
að við byrjum með hot yoga sem
ég tel að passi mjög vel okkar stöð
og svo er Goran jijálfari kominn
aftur. Hann verður með lokuð
námskeið sem heita Goran súper-
form. Það eru fjögurra vikna hóp-
tímar með lokuðu aðhaldsnám-
skeiði og hægt er að fá matartösku
með frá Vox."
í Nordica Spa er alltaf þjálf-
ari í sal, að sögn Bjargeyjar. „Það
er búið til prógramm fyrir hvern
og einn sem hann fylgir í hvert
sinn sem hann mætir," lýsir hún
og segir þetta fyrirkomulag hafa
reynst vel.
Bjargey byrjaði að kenna þol-
fimi árið 1982 á líkamsræktarstöð
í Bandaríkjunum, kom heim og
kenndi á flestum líkamsræktar-
stöðvum í Reykjavík í gegnum árin
og stofnaði stöðina Þokkabót árið
1996, ásamt manni sínum. I dag
er hún tekin við rekstri Nordica
„Það er ekki nóg að einblína bara á þyngd og fituprósentu, fólki verður að líða vel," segir
Bjargey Aðalsteinsdóttir, þjálfari í Nordica Spa & Gym. mynd/valu
a a Vió byrjum mcð
y y hol yoga sem ég
tcl að passi rnjög vcl
okkar stöð. Svo er Goran
þjálfari koniinn aflur.
Spa & Gym ásamt Kristínu Guð-
jónsdóttur. „Sérstaða Nordica
Spa er afslappað andrúmsloft og
persónuleg þjónusta, að ógleymdu
hinu margrómaða herðanuddi
í pottinum eftir æfingar," segir
Bjargey. „Hingað kemur fólk jafn-
vel í hádeginu og notar sér nudd-
ið í pottinum. Þá fer það afslapp-
að út og tekst á við afganginn af
deginum af endurnýjuðum krafti.
Við kappkostum að horfa á heild-
armyndina. Það er ekki nóg að
einblína bara á þyngd og fitupró-
sentu, fólki verður líka að líða vel."
SKORTURGETUR
TAFIÐ FYRIR BATA
Bæklunarskurðlæknar við
læknadeild Washington-háskól-
ans í St. Louis í Bandaríkjunum
greindu nýlega frá rannsókn
sem þeir gerðu á sjúklingum
sem undirgengust aðgerð á
hrygg. Komust þeir að því að
sjúklingar sem gengjust undir
aðgerð, þar sem tveir eða fleiri
hryggjarliðir væru festir saman,
þjáðust oft af D-vítamínskorti
og það gæti tafið fyrir bata.
Skoðaðir voru 313 sjúklingar,
en rúmlega helmingur þeirra
var undir mörkum f D-vítamíni
og einn fjórði hlutur þeirra
þjáðist af alvarlegum skorti á
vítamíninu.
D-vítamín hjálpar líkamanum
að taka upp kalk og sjúklingar
sem skortir D-vítamín geta því
étt í erfiðleikum með að mynda
nýjan beinvef. Læknarnir sem
komu að rannsókninni telja
þvi þess virði að kanna ávallt
D-vítamínbúskap sjúklinga
áður en þeir fara í aðgerð á
hrygg. Þannig sé hægt að
gefa þeim sem þjáist af skorti
stóra skammta af vítamíninu
til að hjálpa til við batann eftir
aðgerðina.
if 'hj&lZL 1 1
1 vetrarfærð er illmögulegt fyrir marga eldri borgara að fara út að spóka sig.
Eldri borgarar hafa að-
gang að íþróttahúsum
Þegar snjórinn liggur yfir göngu- |
stígum verður illfært fyrir eldra
fólk að komast leiðar sinnar,
hvað þá að fara í gönguferðir sér
til heilsubótar. Nokkur íþrótta-
hús hafa brugðið á það ráð að
opna aðstöðu sína fyrir eldri
borgara.
í Fífunni í Kópavogi eru tart-
anbrautir opnar almenningi I Fífunni geta eldri borgarar komið alla virka
alla virka daga frá klukkan 8 til morgna til að ganga.
12. Þangað sækja allt að hundr-
að eldri borgarar daglega en auk hreyfingarinnar getur fólk sest niður,
spjallað og ræktað þannig vináttuna. Aðgangur er ókeypis en gestir
eru beðnir að skrifa í gestabókina við Hliðarlínuna, þar sem fólk hefur
aðgang að vatns- og kakóvél.
í Risanum í Kaplakrika í Hafnarfirði eiga eldri borgarar þess einnig
kost að ganga inni alla virka daga milli klukkan 9 og 10.
f Egilshöllinni í Grafarvogi hafa eldri borgarar fengið að nýta sér að-
stöðuna frá átta á morgnana og fram undir hádegi. Þangað sækja um
þrjátíu til fjörutíu manns að meðaltali. Fólkið getur tyllt sér í stúlk-
urnar til að spjalla en enn sem komið er er enginn veitingasalur á
staðnum. Það stendur þó til bóta með tilkomu Keiluhallarinnar sem
verður opnuð innan tíðar.
Þetta var aðeins stikkprufa á nokkrum íþróttahúsum, en vafalaust
eru fleiri sem bjóða upp á svipaða þjónustu fyrir eldri borgara sem
vilja huga að heilsunni.