Fréttablaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 25
30. DESEMBER 2011 FÖSTUDAGUR
I KYNNING - AUGLÝSIN6 |
hg/lsubi
Maríanna Csillag hjúkrunarfræðingur framkvæmir heilsumat hjá Heilsuborg.
MYND/HAG
Heilsumat fyrir alla
Heilsuborg er líkamsræktarstöð með öðruvísi áherslur. Þar er hægt að l'á svokallað heilsu-
mat hjá hjúkrunarfræðingi, sem segir meðal annars til um grunnbrennslu líkamans.
Heilsumat er framkvæmt
af lækni eða hjúkrun-
arfræðingi, en með því
er staða einstaklingsins
metin," útskýrir Maríanna Csillag,
hjúkrunarfræðingur hjá Heilsu-
borg í Faxafeni.
„Við mælum blóðþrýsting og
mittismál, viðkomandi fer svo
upp á sérstakt tæki sem gefur upp
fituprósentu, fitumassa í kílóum
og svo vöðva, bein, bandvef, vökva
og annað. Síðast en ekki síst gefur
tækið okkur upp grunnbrennslu
sem miðast við vöðvamassa ein-
staklingsins," segir Maríanna.
Upplýsingarnar eru síðan notaðar
til að reikna út kaloríuþörf.
„Grunnbrennsla er einstak-
lingsbundin og með henni finn-
um við út hversu margar kaloríur
viðkomandi á að borða á hverjum
degi, annaðhvort til að viðhalda
kjörþyngd sinni eða til að ná kjör-
þyngd," segir Maríanna, en hún
aðstoðar viðkomandi við finna út
viðeigandi mataræði. „Við erum í
góðu samstarfi við Reykjalund og
þaðan kemur bókin Næringartöfl-
ur. Þar er að finna skammtastærð-
ir svo hver og einn átti sig betur á
hvað hann má borða, miðað við
þær hitaeiningar sem hann á að
innbyrða. Ég hjálpa honum að
finna þetta út með ákveðnu stiga-
kerfi sem er mjög einfalt. Við leggj-
um áherslu á að viðkomandi reyni
að finna út hvað honum sjálf-
um finnst gott og er hollt og gæti
hugsað sér að borða það sem eftir
er ævinnar. Öll erum við mismun-
andi og því ekki hægt að gefa eina
uppskrift, fólk gefst fljótlega upp á
því."
Maríanna segir öllum opið
að koma í heilsumat hjá Heilsu-
borg, hvort sem einstaklingur er
of þungur eða nálægt kjörþyngd.
Heilsumatið sé einfaldlega sniðug-
ur kostur fyrir alla til að átta sig á
ástandi líkamans.
Ef einstaklingur er í ofþyngd
býður Heilsuborg upp á sérstaka
meðferð.
„Ef um ofþyngd er að ræða erum
við með ársprógramm sem við
köllum Heilsulausnir. Þá er tekið
á mataræðinu og hreyfingunni og
leiðsögn veitt í hugrænni atferlis-
meðferð, því allt hangir þetta
saman. Þá bjóðum við einnig upp á
almenna líkamsrækt hér í Heilsu-
borg, hér er tækjasalur og salur þar
sem boðið er upp á ýmis námskeið,
svo sem 60 ára og eldri, zumba,
mömmumorgna, þjálfun fyrir golf-
ara og fleira," segir Maríanna og
lýsir Heilsuborg sem líkamsræktar-
stöð með öðruvísi áherslum.
„Hún er lítil og heimilisleg og
hér er enginn hávaði eða læti.
Hérna vinna hjúkrunarfræðingar,
læknar, sjúkraþjálfarar og íþrótta-
fræðingar svo í Heilsuborg fær fólk
leiðbeiningar fagfólks hvað varðar
heilbrigðan lífsstíl."
Nánari upplýsingar eru á www.
heilsuborg.is.
Framhaldshópur í Fleilsulausnum tekur vel á því í stöðvaþjálfun. Þau æfa saman þrisvar í viku en hafa æft mislengi. Allir sem Ijúka
tveggja mánaða grunnnámskeiði koma inn í framhaldshópinn. Þessi hópur er samkvæmt þjálfurunum einstaklega áhugasamur og
hefur náð góðum árangri, sem mælist í því að léttast, styrkjast, auka þol, bæta svefn og almennt öðlast aukin lífsgæði. mynd/hag
Ekki hlaupa
í spik - hlauptu
í Heilsuborg!
Ný námskeið að hefjast
Heilsulausnir. Hentar þeim sem glíma við offitu,
hjartasjúkdóma og/eða sykursýki.
Stoðkerfishópur. Hentar þeim sem glíma við
verki frá stoðkerfi t.d. í hálsi, baki eða hnjám.
Zumba og Zumba toning. Dansaðu þig í
form með einföldum sporum!
Morgunhanar. Góð blanda af þol- og
styrktaræfingum kl. 06.10 á morgnanna.
Kvennaleikfimi. Góð leikfimi fyrir allar konur
sem vilja styrkja sig og líða betur.
60 ára og eldri. Hentar þeim sem vilja auka styrk
og bæta jafnvægið.
í form fyrir golfid. Styrktar-, þol-, liðleika- og
jafnvægisæfingar sem miða að því að bæta sveifluna.
Stafganga. Hressandi útiganga með stafi í góðum
félagsskap.
Vilt þú breyta um lífsstíl en veist ekki
hvar þú átt að byrja?
Pantaðu tíma í Heilsumat og við
leiðbeinum þér með næstu skref.
Verð kr. 6.900,-
í Heilsuborg starfa m.a. hjúkrunarfræðingar,
íþróttafræðingar, læknar, næringarfræðingar,
sálfræðingar og sjúkraþjálfarar
HEIL5UBORG
Faxafeni 14 •www.heilsuborg.is
www.heilsuborg.is • heiisuborg@heiisuborg.is