Fréttablaðið - 30.12.2011, Qupperneq 46
ÁRAMÓTAHEITIÐ
30
FRÉTTABLAÐIÐ
30. desember 2011 FÖSTUDACUR
<
\ „Eg œtla að lœra á harmonikku
\ eða á brimbretti. Hefekki
\ ákveðið hvort verðurfyrir valinu \
i ennþá. “
Vera Sölvadóttir, dagskrár- og kvikmynda-
gerðarkona.
VICKY Rokksveitin Vicky gaf út
plötuna Cast a Light í október.
FRÉTTABLAÐIBA'ALLI
Fjallað um Vicky í Rolling
Hin íslenska Vicky er ein af þeim níu hljómsveit-
um sem fóru undir radarinn á árinu og fáir tóku
eftir samkvæmt blaðamanninum virta, David
Fricke hjá bandaríska tónlistartímaritinu Rolling
Stone.
Vicky gaf út sína aðra plötu, Cast a Light, í
október síðastliðnum. Fricke, sem var einn af
gestum Airwaves-hátíðarinnar, virðist hafa
heillast upp úr skónum af gripnum. „Ég sá bara
hluta af einum af tónleikum þessa íslenska
kvartetts á Airwaves. En það var nógu mikið til
að heyra How Do You Feel? sem er núna eitt af
uppáhaldslögum mínum á árinu," skrifar Fricke
og segir lagið minna á bandaríska tónlistarmann-
inn Johnny Thunders og ensku söngkonuna Sioux-
sie Sioux. „Afgangurinn af Cast a Light, sem var
gefin út af hljómsveitinni sjálfri, er alveg jafn
kraftmikill og heillandi. Það er vel
þess virði að kynna sér sveitina og
þú getur byrjað á iTunes."
Vicky hefur stundum verið köll-
uð stúlknarokkhljómsveit. Hana
skipa þær Ástrós Ósk Jónsdóttir
bassaleikari, Eygló Scheving Sig-
urðardóttir söngkona, Karlotta
Laufey Halldórsdóttir gítar-
leikari og trommuleikarinn
Orri Guðmundsson. -<b t
ÁNÆGÐUR David Fricke er mjög
ánægður með nýjustu plötu Vicky.
Atli Óskar Fjalarsson, sem vakti athygli í kvikmyndinni
Órói í fyrra, leikur í nýju myndbandi hljómsveitarinnar
Úlfur Úlfur. Myndbandið var unnið við lagið Á
meðan ég er ungur þar sem Emmsjé Gauti
er gestasöngvari. Mikill metnaður var
lagður í myndbandið, sem er nokkurs
konar tónlistarstuttmynd, og var
það framleiðslufyrirtækið lllusion
sem bjó það til. Það hefur áður
gert myndbönd fyrir Friðrik Dór,
Emmsjé Gauta og hljómsveitina
Elektra. - fb
ALLIR VÖÐVAR SPENNTIR
í AFSLÖPPUÐU UMHVERFI
í GOTT FORM MEÐ SÓLEYJU
POWER PILATES
jafnvægi - stjórn - einbeiting -
flæði - öndun - nákvæmni
8 vikna byrjendanámskeið
í gólfæfingum hefst
12. janúarnk.
Kennt þriðjudaga og fimmtudaga.
Hádegistímar fyrir karla og konur.
FIT-PILATES
Námskeiðin hefjast 10. janúar nk.
Byrjenda- og framhaldsnámskeið.
Kennt þriðjudaga og fimmtudaga.
Skráning hafin í síma
892-1598 eða
lovisa@heima.is
Líkamsrækt er árangursríkari
ef hún er skemmtileg
^A
KÓPAVOGI
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST
9. JANÚAR.
MÁNUD - MIÐVIKUD - FÖSTUD
KL. 08.45 (FULLT)
MÁNUD- MIÐVIKUD
KL. 13.30 (LAUST)
MÁNUD - MIÐVIKUD - FÖSTUD
KL. 17.00 (NOKKUR PLÁSS LAUS)
KÓPAVOG!
Vertu með
- og njóttu vel og lengi...
MECCA-SPA • NÝBÝLAVEGI 24 • 200 Kópavogur
sími 8921598 • lovisa@heima.is
Líkamsrækt er langhlaup
sem vinnst ekki með
stuttum sprettum.
Vertu með
- og njóttu vel og lengi...
MECCA-SPA • NÝBÝLAVEGI 24 • 200 Kópavogur
sími 8227772 • soley@studiosoleyjar.is
Með mér leggur þú grunn
að heilbrigðum og gefandi
lífsstíl sem getur orðið
förunautur þinn alla ævi.
ÞÓR RAGNARSSON: SÉR KARLMÖNNUM FYRIR GLÆSILEGUM FATNAÐI
Opnar fyrstu herrafata-
verslunina á Austurlandi
DRAUMURINN RÆTTIST Þór Ragnarsson hafði látið sig dreyma um að opna
herrafataverslun í rúman áratug áður en hann lét af því verða. Verslunin hefur vakið
talsverða athygli á Egilsstöðum síðan hún var opnuð fyrr í mánuðinum.
„Viðtökurnar hafa verið rosalega
góðar,“ segir Þór Ragnarsson,
sem opnaði nýja herrafataverslun
á Egilsstöðum í byrjun desember
og braut þar með blað í sögunni,
því aldrei áður hefur slík verslun
verið rekin á Austurlandi. Versl-
unin heitir Þór herrafataverslun,
í höfuðið á eigandanum.
„Þegar þetta var orðið þannig að
það var varla hægt að fá skyrtu á
sig varð maður að gera eitthvað.
Þetta hefur lengi verið draumur
hjá mér. Ég ákvað að láta hann
bara rætast og skella mér í rekst-
urinn,“ segir Þór, sem er alvanur
atvinnurekstri á Égilsstöðum.
„Þetta eru klassísk herraföt sem
ég er með, svona í fínni kantinum.
En auðvitað verður maður að átta
sig á hvað karlmenn eru að nota
hérna fyrir austan og rúlla svolítið
eftir þeirri línu,“ segir Þór, en ekki
er að búast við öðru en að karlpen-
ingurinn verði sérlega glæsilegur
til fara við þessa viðbót við versl-
anir á svæðinu. „Nú hafa menn
allavega ekki lengur ástæðu til að
segja að þeir geti ekki fengið neitt
hérna fyrir austan.“
Fréttablaðið ræddi nýlega við
þrjá unga athafnamenn sem opn-
uðu skemmtistaðinn Gömlu sím-
stöðina á Egilsstöðum í vetur, en
þá hafði í nokkurn tíma enginn
skemmtistaður verið starfræktur
í bænum. Á vetrarmánuðum hafa
því bæst bæði krá og herrafatabúð
í atvinnulífið eystra og mannlífið
virðist blómstra. Þór er ánægður
með athafnasemina. „Ég held að
menn séu bara bjartsýnir og mér
finnst svona eins og yngra fólk sé
að drífa sig i gang. Það er stórhug-
ur í fólki, mér líst alveg ótrúlega
vel á það,“ segir Þór, sem rak ein-
mitt bar um árabil í sama húsnæði
og Gamla símstöðin er.
í þá daga gátu karlmennirnir
á staðnum ekki lífgað upp á fata-
skápinn í þar til gerðri verslun
fyrir kvöldið, en nú er annað uppi
á teningnum. „Það er náttúrulega
alveg æðislegt að menn hafi mögu-
leikann á því að dressa sig upp
fyrir krána." bergthora@frettabladid.is
Tvö þúsund nafnatillögur bárust
Á Heimasíðunni.is fer fram nafnasamkeppni fyrir
nýtt stjórnmálaafl leitt af Guðmundi Steingríms-
syni og Heiðu Kristínu Helgadóttur og hafa um
2.000 tillögur borist nú þegar.
Að sögn Gauks Úlfarssonar, kvikmyndagerðar-
manns og eins aðstandenda nýja flokksins, kom
þessi mikla þátttaka töluvert á óvart. „Fólk virðist
hafa sterka skoðun á því hvað flokkurinn eigi að
heita. Flestar tillögurnar eru virkilega vel ígrund-
aðar og góðar og því verður það ærið verkefni að
velja sigurvegarann úr þessum stóra hópi. Við
bjuggumst engan veginri við svona góðri þátttöku og
hefðum verið rígmontin með tvö hundruð tillögur,
það er greinilega mikill þorsti eftir nýju og einlægu
framboði."
Sigurvegarinn verður tilkynntur á þrettándanum
og á heimasíðu framboðsins stendur að „möguleg
vegleg verðlaun" verði veitt fyrir bestu hugmynd-
ina. Inntur út í það segir Gaukur verðlaunin vera
samningsatriði sem allir aðilar ættu að geta náð
sátt um. „Verðlaunin verða fyrst og fremst heiður-
inn af því að eiga nafnið að nýjum og betri tímum.
Guðmundur minntist eitthvað á það að hann ætti til
mynd af sér berum að ofan sem hann gæti áritað
eða að sigurvegarinn fengi mögulega að fara út að
borða með Heiðu. Þetta á eftir að koma betur í ljós.“
Það verður ærið verkefni að fara í gegnum
VINSÆL Nýtt stjórnmálafl Guðmundar Steingrímssonar og
Heiðu Kristínar Helgadóttur þarf nafn og hafa þeim borist
2.000 nafnatillögur undanfarnar vikur. fréttablaðib/valli
tillögurnar tvö þúsund og velja vinningsnafnið en
Gaukur er hvergi banginn. „Stór hópur fólks mun
fara í gegnum þetta saman og það ætti ekki að vera
mikið mál að finna nafn sem allir eru sáttir um. Við
bíðum bara spennt eftir að geta hafist handa.“ - sir