Fréttablaðið - 31.12.2011, Síða 6
FRÉTTABLAÐIÐ
Ætlar þú að sækja útsölur þetta
árið?
mmm 43.4%
KJÖR
56,6% i
SPURNING DAGSINS f DAG:
Kaupir þú flugelda fyrir
áramótin?
>
Segðu skoðun þína á visir.is visir í
....................................
Fátt um hátíðarhöld í tilefni af tíu ára afmæli evrunnar nú um áramótin:
31.desember 2011 LAUGARDAGUR
Fagna afmæli á tímum öngþveitis
evrópusambandið. ap Á morgun verða
liðin tíu ár frá því að evran var tekin í
notkun í aðildarríkjum myntbandalags
Evrópusambandsins.
Tíu ára afmælið markast af mikilli
óvissu um nánustu framtíð og hávær-
um röddum um að hún nái varla ellefta
árinu, hvað þá öðrum áratug í viðbót.
Þótt fáir Evrópubúar vilji reyndar
kasta evrunni - af augljósum ótta við
öngþveitið sem við tæki, þá er eftirsjá
að þeim myntum sem lagðar voru niður
fyrir tíu árum nokkuð útbreidd í evru-
ríkjunum. Ekki síst nú þegar umrótið
í efnahagslífi evruríkjanna er storma-
samara en nokkru sinni.
„Lífið var betra hér áður fyrr,“ segir
til dæmis Mamia Zenak, 52 ára læknir í
París, þar sem margir sakna enn franska
frankans. „Evran er ömurleg fyrir alla.“
Aðeins fáein ár eru þó síðan evran
þótti heldur betur hafa sannað sig og
lífskjör í evruríkjunum virtust ætla að
batna endalaust.
Leiðtogar evruríkjanna eru þó engan
veginn búnir að gefa þessa sameiginlegu
mynt upp á bátinn. Wolfgang Scháuble,
fjármálaráðherra í stjórn Angelu Merkel
Þýskalandskanslara, segist sannfærður
um að á árinu 2012 muni loks sjá fyrir
endann á þeim vandræðum, sem íþyngt
hafa ríkjunum nú síðustu misserin. - gb
ÓLGA f EVRURfKJUM íbúar evruríkjanna sakna margir gömlu
myntanna. nordicphotos/afp
Sérfiæðingan bilum
Bilabúö Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - www.benni.is
POLARN O. PYRET
KRINGLAN OG SMÁRALIND
Gleðilegt ár!
Þökkum viðskiptin á árinu
Utsalan
hefst
mánudaginn
2. janúar
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJONVARP
TAKTU VISIA
HVERJUM MORGNI!
visir
Sautján brennur á
höfuðborgarsvæðinu
Áramótabrennur verða víða á landinu á gamlárskvöld. Alls 17 brennur verða
á höfuðborgarsvæðinu og 14 til viðbótar á Vestfjörðum. Veðurfræðingur segir
ekkert benda til annars en að hægt verði að halda gleðileg áramót.
Kléberg
20.30
tt
KJALARNES
Á bökkunum
Mj við Tröð
20.30
ÁLFTANES
Tjarnavellir 7
20.30 fo f
HAFNARFJÖRÐUR
Valhúsahæð
2030
Ægisiða(
20.30 '
Laugarásvegur Gufunes
20.30 /, 20.30/1
Skerjafjörðúr
2030 Tfc
Geirsn
20.30
Suðurhlíðar
20.30 A
4
Kó'pavogsdalur
20.30 /&.
Sjávargrund/Arnarnesvogur
21.00 é
Fylkisbrenna
20.50 £
Suðurfell
20.30%
ELLIÐAVATNl
Boðaþing
20.30
Áramótabrennur á
höfuöborgarsvæöinu
V' áramótin 2011-2012
Fisfélagið /
’. ,5'°”
C ÚLFARSFELL
Ullarnésbrekka
20.30 ^
MOSFELLSBÆR .
skemmtun Áramótabrennur
verða venju samkvæmt haldnar
víða um land á gamlárskvöld.
Eldvarnareftirlit Slökkviliðs-
ins á höfuðborgarsvæðinu hefur
veitt leyfi fyrir sautján brennum
á starfssvæði sínu og þá verða
brennur í flestum öðrum bæjar-
félögum.
Kveikt verður á fyrstu brenn-
unni á höfuðborgarsvæðinu
klukkan þrjú á gamlársdag
en það er lítil brenna á vegum
Fisfélagsins. Verður brennan
við Úlfarsfell skammt ofan við
Bauhaus-húsið.
Veðurspá fyrir áramótin er
hin ágætasta þótt skúrir og élja-
gangur gætu gert vart við sig á
suðvesturhorni landsins. Árni
Sigurðsson, veðurfræðingur hjá
Veðurstofu fslands, segir ekk-
ert benda til annars en að hægt
verði að halda gleðileg áramót.
„Veðrið verður tiltölulega milt
miðað við árstíma þannig að fólk
ætti ekki að forðast það að fara
út í þessu veðri, alls ekki,“ segir
Árni. „Á höfuðborgarsvæðinu er
spáð suðvestanátt sem verður þó
ekki mjög stíf. Þá gæti gengið á
með éljum og skúrum þar sem
spáð er hita yfir frostmarki yfir
daginn.“
Spurður hvernig veðrið verði
með tilliti til flugeldaspreng-
inga svarar Árni: „Ég held að
það verði alveg þokkalegt. Það
er sérstaklega gott um landið
norðan- og austanvert þar sem
verður bjart yfir og tiltölulega
hægur vindur. En það ætti líka
að vera fínt hér í borginni. Það
Veðrið verður tiltölu-
lega milt miðað við
árstíma þannig að fólk ætti
ekki að forðast það að fara út
í þessu veðri, alls ekki.
ÁRNI SIGURÐSSON,
VEÐURFRÆÐINGUR
hefur í það minnsta oft verið
verra.“
í Reykjavík verða á gamlárs-
dag tíu brennur á sínum hefð-
bundnu stöðum. í Kópavogi
verða tvær brennur en ef vindátt
verður óhagstæð þá kann brenn-
an í Boðaþingi við Elliðavatn að
falla niður. Þá verður ein brenna
hver í Garðabæ, Hafnarfirði,
Mosfellsbæ, á Álftanesi og Sel-
tjarnarnesi, á sínum hefðbundnu
stöðum.
Á Akranesi verður brenna í
Kalmansvík og þá verða fjórtán
brennur á Vestfjörðum, þeirra
stærst við Hauganes í Skutuls-
firði.
Á Akureyri verður brenna við
Réttarhvamm og á Egilsstöðum
verður brenna á nesinu norðan
við Blómabæ.
í Árborg verða þrjár brennur,
þeirra stærst við Selfossflug-
völl. Þá heldur ÍBV sína árlegu
brennu í Vestmannaeyjum.
magnusl@frettabladid.is
Innflytjendur hafa framvísað staðfestingu á hreinleika flugeldanna:
Rannsalca eiturefni í flugeldum
umhverfismál Umhverfisstofnun
hefur til rannsóknar hvort þrávirka
eiturefnið hexaklórbensen (HCB) er
að finna í flugeldum sem seldir eru
hér á landi. Efnið greindist í óvenju-
miklu magni í andrúmsloftinu um
síðustu áramót en innflytjendur
segja að gripið hafi verið til ráð-
stafana fyrir þessi áramót.
„Nú í seinni hluta desember
fórum við safna saman flugeldum
til að taka sýni úr. Tímasetningin
miðast við að innflutningur þeirra
fer fram ansi stuttu fyrir áramótin.
Því starfi er nýlokið og næsta skref
er að senda þetta til Danmerkur
þar sem efnagreiningin fer fram,“
segir Haukur R. Magnússon, á sviði
umhverfisgæða hjá Umhverfisstofn-
un. Þá segir Haukur að niðurstöður
ættu að liggja fyrir eftir einhverjar
vikur.
Eins og áður sagði greindist hexa-
klórbensen í talsverðu magni í and-
rúmsloftinu um síðustu áramót.
Efnið hefur verið bannað um langt
skeið vegna alvarlegra áhrifa þess
FLUGELDAR Hexaklórbensen er þrávirkt eiturefni sem er notað í sumum flugeldum
til að magna upp liti. fréttablaðið/pjetur
á umhverfið og heilsu manna. Efnið
er notað í sumum flugeldum til þess
að magna upp liti við sprengingu.
Að sögn Hauks kann Umhverfis-
stofnun að grípa til einhverra ráð-
stafana komi í ljós að efnið leynist
í flugeldum hér á landi. Hann segir
hins vegar að allir innflytjendur
sem Umhverfisstofnun hafi rætt
við fyrir þessi áramót hafi fram-
vísað staðfestingu frá sínum fram-
leiðendum á því að þetta efni væri
ekki að finna í þeirra flugeldum í ár.
- mþl