Fréttablaðið - 31.12.2011, Page 48
36
FRÉTTABLAÐIÐ
31.desember 2011 LAUCARDACUR
iNNLENDAR FRÉTTAMYNDIR 2011
GRÍMSVÖTN YGGLA SIG Síðdegis 21. maí bárust fregnir af því að eldgos vaeri hafið í Grlmsvötnum í Vatnajökli með óhemju öskufalli um nóttina og dagana á eftir. Var öskufall mikið allt frá Öræfum að Kirkjubaejar-
klaustri. Gosinu fylgdi nokkur truflun á flugi og þjóðvegur 1 var lokaður fyrstu daga gossins. Um viku síðar voru goslok staðfest. fréttablaðið/eciuabalsteinsson
Augnablik fryst í tíma
Ársins 2011 verður minnst sem umbrotaárs og
lagði náttúran, jafnt sem mannfólkið, sitt á
vogarskálarnar. Merkum áföngum var náð með
opnun tónlistarhússins Hörpu og komu Pórs,
nýs varðskips Landhelgisgæslunnar. Grímsvötn í
Vatnajökli áttu sviðið nokkra daga í maí og Katla
minnti á sig um sumarið. Gleði og sársauka má
því finna stað í þeim myndum sem Ijósmyndarar
Fréttablaðsins völdu sem lýsandi vitnisburð fyrir
árið sem er að kveðja.
ÚRARÁN Þrír vopnaðir menn réðust inn í verslun Franks Michelsen við Laugaveg
að morgni 17. október og höfðu með sér úr fyrir milljónir. Ránið var þaulskipulagt
og lengi vel leit út fyrir að þjófarnír, sem voru fjórir, myndu ekki finnast. Hendur
voru hafðar í hári þeirra nokkru síðar og þýfið komst í réttar hendur. Ræningjarnir
reyndust allir vera Pólverjar en lögum verður ekki yfir þrjá þeirra komið. Sá fjórði
gistir fangaklefa á (slandi. fréttabladid/vilhelm
FRAMHALD Á SÍÐU 26
DAGUR SEM DIMM NÓTT Mannlíf í Skaftárhreppi lamaðist í öskubylnum frá Grímsvötnum fyrstu daga gossins. Bylurinn breytti
degi ( dimma nótt og einhverjir íbúar á svæðinu sáu sig tilneydda til að yfirgefa heimili sín. Þegar allt er talið sluppu menn og dýr
ótrúlega vel frá hamförunum. FRÉnABLAÐiÐ/viLHELM
FÖLSKVALAUS GLEÐI Alþingi samþykkti I lok nóvember að fela ríkisstjórn (slands að viðurkenna Palestlnu sem sjálfstætt og full-
valda ríki. Tillaga þess efnis var samþykkt með 38 atkvæðum þingmanna allra flokka nema Sjálfstæðisflokks sem tóku ekki þátt 1
atkvæðagreiðslunni. Á þingpöllum ríkti gleði sem fslendingar eiga kannski ekki gott með að skilja. fréttablaðið/gva