Heimilisritið - 01.08.1943, Side 23
Hugaræfingar
Grein þessi er þýdd úr tímaritinu Your
Life og gefur vísbendingar um, hvernig
hægt er að vekja hinar sofandi heilasell-
ur okkar til starfa. Höfun«lur greinarinn-
ar er William F. French.
EF TIL VILL ert þú einn þeirra ör-
fáu manna í veröldinni, sem sál-
fræðingarnir tala um — maðurinn,
sem nýtir heilann til fulls. Og hins-
vegar ertu ef til vill eins og við hin-
ir. sem lofum þrem fjórðu heila-
sellna okkar að sofa í friði qg ró.
Prófaðu hugarorku þína með því
að gera eftirfarandi æfingar. Ef þú
vilt halda áfram æfingum til þess að
skerpa og temja hugann, mun hálf-
tíma æfing, sem gerð er af alúð á
hverju kvöldi, veita þér nýjan og
endurbættan andlegan þrótt.
Æfingainar eru flokkaðar eftir
þroska þeirra, sem iðka þær. Þær
eru ekki prófsteinn á minni þitt
upplestrarhæfileika þína, þekkingu
þína á sviði vísinda eða stærðfræði,
né kunnáttu þína í sögu. En þær eru
óskeikull mælikvarði á starfshæfni
heilans, harðfylgi hugans og snerpu.
Á meðan þú iðkar æfingarnar
muntu finna hvernig heilinn erfiðar
og stritar við að komast í sitt rétta
horf. Og með áframhaldandi æf-
ingum munu ný hugarsvið komast
undir yfirráð þín og veita þér auk-
inn andlegan fimleika.
Byrjaðu á fyrsta flokki og æfðu
síðan hina í réttri röð. En hættu
samt ekki við neinn æfingaflokk fyrr
en þú ert orðinn leikinn í honum.
A-flokkur.
(Gerið æfingarnar hratt og án
nokkurs hiks).
Segðu A, B, C, D, E, F, G, H, I, J
og um leið og þú gerir það
skrifaðu 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10.
Teldu 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10
og um leið og þú gerir það
skrifaðu 10, 9, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.
Hugsaðu þér einfalda setningu,
eins til dæmis „Eg ætla heim á
morgun". Skrifaðu hana og stafaðu
aftur á bak þannig:
„nugrom á mieh altæ gE“.
Síðan hugsarðu þér aðra stutta
setningu og ferð eins að með hana
— án þess að nokkurt hik verði á
þegar þú skrifar hana.
B-flokkur.
Teldu 1, 3, 5, 7, 9, 13, 15
og um leið og þú gerir það
skrifaðu 16, 14, 12, 10, 8, 6, 4, 2.
Skrifaðu fimm þriggja stafa tölur
hverja undir annarri eins og
693
472
841
HEIMILISRITIÐ
21