Heimilisritið - 01.08.1943, Blaðsíða 28

Heimilisritið - 01.08.1943, Blaðsíða 28
Gat það verið, að Dorothy væri þannig stúlka, að hún áliti það ó- fyrirgefanlega ósvífni, ef maður mundi það daginn eftir, að hún hefði sýnt — dálítil blíðuhót? Hann gat ekki trúað því, að hún væri ein af þeirri tegund. En hver var þá ástæð- an fyrir þessari kuldalegu fram- komu hennar? I fyrsta sinn um æv- ina, var Bob gjörsamlega örvinglað- ur. Dorothy var orðin honum svo hjartfólgin, að hann hafði næstum því gleymt þeim hörmungum, sem myndu dynja yfir hann í New York, þegar hann missti aleigu sína, og Bishop stæði með pálmann í hönd- unum. Hann hafði tapað bæði í spil- um og ást. Líklega væri happasælast að stökkva fyrir borð. þá yrði maður laus við. . . .“ „Maður fyrir borð“, heyrðist hróp- að skyndilega. Einni sekúndu síðar var merki gefið í vélarúminu og áð- ur en varði hömuðust hinar fjóru skrúfur risaskipsins í gagnstæða átt og smátt og smátt tók skipið að hægja á sér, þar til það að lokum skreið aftur á bak, þangað, sem mannshöfuð sást á sjávarfletinum. Hásetar hlupu fram hjá hópum af æstum farþegum. Konur hljóðuðu og voru náfölar af skelfingu. Bishop hljóp um, baðaði út hönd- unum og hrópaði: „Eruð þið vitlausir? Þið megið ekki stöðva skipið!“ Björgunarbátur var settur út skip- aður sex mönnum. Áður en hann hafði snert hafflötinn var utanborðs- mótor hans kominn í gang. Þegar hann brunaði frá skipinu, var Bishop búinn að hafa upp á skipstjóranum sem stóð á stjórnpallinum —. „Skipstjóri! Eg krefst þess, að skipið haldi áfram. Hver mínúta er dýrmæt. — Ef við verðum ekki kom- in inn i höfn í New York klukkan tólf, tapa ég þrjú hundruð þúsund dollurum!“ „Þér verðið að fara af stjórnpall- inum“, sagði skipstjórinn, án þess að taka sjónaukann frá augunum. „Eg krefst. . .“ „Farið strax af stjórnpallinum — með góðu eða illu“. Bishop bölvaði, en fór. „Þér verðið látnir sæta ábyrgð fyrir þetta, skipstjóri“, hrópaði hann og skók hnefana í áttina til skip- stjórans. Skipið tafðist í rúma klukkustund við björgunina. Það var erfitt fvrir björgunarmennina að ná í þann, sem dottið háfði fyrir borð, því að hann sökk venjulega, þegar bátur þeirra nálgaðist, og skaut svo aftur upp á ólíklegustu stöðum. eins og straumar væru þarna miklir. Bob skipti sér ekki af þessu, heldur fór hann inn í káetu sina og tók að ganga frá farangri sínum. Hann fann, að skipið hélt brátt á- fram aftur. og svo að það hægði á sér. Þá hlaut það að vera komið inn i höfnina. Hann hlakkaði sízt af öllu til þess að ganga í land, því að þá átti hann von á því, að dagar hans sem sæmilega efnaðs og sjálf- stæðs kaupsýslumanns væru á enda. Hans beið þar naumast annað en gjaldþrotið. 26 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.