Heimilisritið - 01.08.1943, Page 26

Heimilisritið - 01.08.1943, Page 26
„Allt annað en hvað?“ „Eigum við ekki að ganga inn 'og fá okkur einn cokctail“, sagði hann. „Mig langar í eitthvað sem getur læknað áhyggjur“. Áhugi hennar á þessum unga manni jókst. Hún hafði grun um að hann lægi á einhverju leyndarmáli. Ef til vill átti hann við þungbæra sorg að stríða. En henni var orðið svo umhugað um hann, að hún ætl- aði sér að gera allt, sem hún gæti, til þess að fá að vita yfir hverju hann byggi og það áður en þau næðu höfn. Nokkuð gestkvæmt var í barnum. „Halló, Bobby Lee!“ var hrópað rámri röddu. „Gott kvöld, Bishop", svaraði Lee hóglátlega. „Þjónn! komið þér með whisky handa Bobby Lee!“ hrópaði Bishop, sem var feitur og kubbslegur með fagurrauðan skalla og andlit. Lee bað um tvo Manhattan, án þess að virða þann feita frekara við- lits. „Heyrið þér mig Lee!“ sagði Bis- hop og dró pappirsræmu upp úr vasa sínum. „Þér hafið víst lesið símskeytið, sem nýlega er komið frá „Zeelandia?" Það er svona: „Kom- um klukkan ellefu stundvislega" — Það eru góðar fréttir fyrir yður, ha! Yðar farmur nær höfn klukkan ell- efu. En minn kemst líka, því má treysta! Eg var að enda við að tala við skipstjórann — og hann segir, að við komum til New York í síð- asta lagi tíu mínútur f.vrir tólf. — Skál Lee!“ Bob Lee drakk út úr glasi sínu. Andlitsdrættir hans voru skýrari en fyrr. „Getið þér ekki anzað, þegar þér eruð ávarpaður?" sagði sá feiti. „Hvers vegna eruð þér með æsing. Bishop?“ sagði Lee stuttur í spuna. ..Athugið að það eru konur nær- staddar". Bishop varð enn rauðari í fram- Félagar hans reyndu að sefa hann. „Nei, látið þið mig vera!“ hrópaði hann. „Þessi snáði ætlar að hefja samkeppni við mig. — Samkeppni! En honum skal ekki takast að selja nokkurn skapaðan hlut. Það ábyrg- ist ég, þó að ég þurfi að leggja tíu þúsund dollara á borðið hjá skip- stjóranum, svo að hann láti kvnda undir kötlunum þar til þeir springa þá skal það takast!“ „Já, já“, sagði einn af félögum Bishops og gekk til Lee. „Verið þér ekki lengur hérna. Hann hefur drukkið meira en hann hefur gott af“. „Viljið þér gjöra svo vel og leiða mig út?“ sagði Dorothy. Hann hik- aði en tók svo undir arm hennar og leiddi hana út á þilfar. Þau gengu góða stund um þilfarið steinþegj- andi. „Jæja“, sagði Dorothy loks: „Seg- ið þér mér nánar frá þessari sögu“. „Það er ekki löng eða merkileg saga“, svaraði hann þunglyndislega. „Eg er verzlunarmaður og hef ný- lega stofnað sjálfstætt fyrirtæki. „Zeelandia" hefur vörur frá mér inn- anborðs. Þetta er í fyrsta sinn, sem 24 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.