Heimilisritið - 01.10.1945, Side 5

Heimilisritið - 01.10.1945, Side 5
»Gerðist hann nú reglumaður og 'fékk svo embætti sem hringjari við kirkjuna. Aðeins ein manneskja af fjöl- iskyldunni, ung stúlka, losnaði ekki undan þeim örlögum, sem ættinni hafði verið spáð, heldur virtist svo sem allir brestir og óhamingja hennar yrði á vegi þessarar ungu stúlku. A hennar stuttu, rauna- degu ævi var hún rekin. úr sveit- inni til Kaupmannahafnar; þar andaðist hún innan við tvítugt og lét eftir sig lítinn son. Föður harnsins þekkti enginn, og hann íkemur heldur ekki við þessa sögu, en hann hafði gefið henni 50 rík- rsdali. Hin deyjandi, unga móðir afhenti nú barnið, ásamt þessari fjárhæð, roskinni þvottakonu, sem ~var eineygð og hét frú Mahler. Fól stúlkan henni að annast barn- íð, eins íengi og peningarnir entust til, og gerði sig ánægða með þenn- an gálgafrest eins og ættmenn hennar. Frú Mahler roðnaði í vöngum þegar hún sá peningana, hún hafði aldrei áður séð 50 ríkisdali sam- ankomna á einum stað. Þegar hún leit af blikandi silfrinu á barnið, andvarpaði hún djúpt, en svo tók hún á sig þessa byiði ásamt öðr- um, sem lífið hafði lagt henni á herðar. Litli drengurinn, sem hét Jens, fékk því sín fyrstu kynni af heim- inum og lífinu í gömlu fátækra- hverfi Kaupmannahafnar, í garði að húsabaki, sem var dimmur eins og djúpur brunnur, stór, daunill auðn, full af óhreinindum og sorpi. Smátt og smátt fór hann að þekkja sjálfan sig og sína einkenni- legu aðstöðu í lífinu. Það voru 'líka önnur börn í garðinum — urmull af þessum litlu borgurum Kaupmannahafnar, sem voru eins föl og óhrein og hann, en þau voru öll meðlimir einhverrar fjölskyldu í húsinu. Þar voru drengir og telp- ur á ýmsu reki, munnhvöt og með litla járnharða hnefa og útkljáðu með þeim deilumál sín á milli í garðinum. Jens fór smátt og smátt að hugsa um þá einkennilegu hlið til- verunnar, sem að honum sneri, og hversvegna hún væri svona. Eitt- hvað í umhverfinu jók þá grun- semd í hugskoti hans, að hér ætti hann ekki heima, heldur einhvers- staðar annarsstaðar. Á nóttunni dreymdi hann mikla drauma, ó- Ijósa en dásamlega fagra, og jafn- vel á daginn hurfu þeir ekki úr huga hans, svo að minningin um þá gladdi hann eins og hljómur frá smábjöllu, en frú Mahler leit á hann hvössum áhyggjufullum augum og hugsaði með sér, að drengurinn væri ekki með öllum mjalla. Einu sinni kom gestur til frú Mahler. Það var æskuvinkona hennar, lítil og skökk saumakona HEIMILISRITIÐ 3

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.