Heimilisritið - 01.10.1945, Page 12

Heimilisritið - 01.10.1945, Page 12
sinni fyrstu ást og haldið fram af öllum kröftum vali sínu og á- gæti manns síns, bæði við sjálfar sig og allan heiminn. Það má segja að maður slíkrar konu sé öruggari en maður, sem valinn er eftir geð- þótta konunnar og a'lltaf á það á hættu að hverfa með tímanum í skugga einhvers annars geðþekk- ari meðbiðils, því sjálfur elskhugi konu hans leggur honum lið og leiðir konu hans með styrkri hendi hinn rétta veg. •— Því fastar sem slíkur skuggi ásækir konuna, því erfiðara sem hún á með að gleyma elskhuganum, því ákafari verður liún í hinum heiðarfega hjóna- bandsmetnaði sínum og því ötulli í kvenlegum fagurgala og kven- legri þjónustu. Fleiri en ein Kaup- mannahafnarkona hefur villzt á þessari braut og loks týnt sjálfri sér, hætt að geta greint satt frá lognu og flögrað og skva'ldrað gegmum allt Mfið fótfestu- og þýð- ingariaus á heimili sínu og í sínu glæsilega hjónabandi. Emilía frelsaðist frá þessum ör- lögum, ef svo mætti segja, fyrir afskipti látinna ættmenna Vand- amættarinnar, eða vegna þeirrar erfðavenju og eðlisávísunar fyrir staðreyndum og sannri kaup- mennsku, sem þeir hötfðu gefið' þessari ungu dóttur ættarinnar í arf. Þessir gömlu atorkusömu út- gerðarmenn höfðu aldrei svikizt undan merkjum eða gabbað sjálfa sig, þegar þeir gerðu upp reikn- inga sína. A erfiðum tímum höfðu þeir horfzt beint í augu við gjaldþrot — þeir voru í hegðun og fram- ferði trúir og ómútuþægir þjónar staðreyndanna. Að þeirra hætti fór Emilía gegnum taps- og gróða- reikning síns unga lífs. Hún hafði elskað Charley, en hann ekki ver- ið verður ástar hennar, og hún rnundi aldrei framar elska á sama hátt. Hún hafði staðið á tæpasta barmi hyldýpisgjár, og það var ekki fyrir eigin atbeina, heldur hafði tilviljun ráðið þvi, að hún var nú ekki fallin kona og óverð- ug þess að kallast dóttir föður síns og að heiðra sitt eigið gamla heimili. Heimurinn skyldi aldrei fá að vita þetta, en sjálf ætlaði hún aldrei að gleyma því. Mað- urinn hennar var góður, og mundi bera hana á höndum sér, ef hún sjálf leyfði honum það og gæti þolað það. Hann var líka svo feit- laginn, barnalegur og ólíkur henni sjálfri. Það, sem hún bar úr být- um í lífinu, var fallegt hús eftir hennar smekk og ástríki og örugg staða í fjölskyidu og vinahópi. Hún mat þessi gæði að verðleikum og lofaði sjálfri sér því að gæta þeirra vel. Þessar raunir hefðu vel getað ’firrt han*a vitinu, en í þeim tileinkaði hún sér einlæglega liina ströngu trú á staðreyndirnar eins og forfeður hennar. 10 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.