Heimilisritið - 01.10.1945, Síða 24

Heimilisritið - 01.10.1945, Síða 24
að maðurinn myndi hinsvegar áreiðanlega ekki fara út úr búð- inni, án þess að hafa keypt sér föt. Ananiassen benti með öllum handleggnum á fataslána. „Þér viljið kanski máta önn- ur?“ Maðurinn gekk meðfram fiata- röðinni og athugaði og þuklaði á efninu, en varð sýnilega engu vísari. „Hér eru ein, sem ég gæti selt fyrir 150 krónur“. Anan- iassen kom með dökkgræn föt og sneri þeim í hringi fyrir framian manninn, svo að hann gæti virt þau vel fyrir sér og notið þeirra sem bezt. „Já, þau eiga sína sögu. Eins og þér skiljið, þá er maður ekki alltaf eins heppin með við- skiptavinina. — Hingað kom Nilsen bankagjaldkeri fvrir skömmu og keypti sér föt, en hann borgaði ekki nema lítið í þeim þá, — eftirstöðvarnar átti ég að fá eftir viku. En áð- ur en vikan var á enda sat harfn í steininum, fanturinn sá. Það vantaði næstum því hundr- að þúsund krónur í kassann hjá honum, — og peningar fundust ekki heldur. — Sumir segja, að hann hafi komið þeim undan og ætli að eiga þá til góða, þegar hann kemst út aft- ur“. 22 Ananiassen andvarpaði mjög hnugginn. „Og ég varð að taka fötin aft- ur, en þá voru þau farin að óhreinkast, og satt að segja hef ég ekki haft tímia til að koma þeim í hreinsun, — en ég skal að mér heilum og lifandi muna eftir því á morgun“. Síðustu setninguna sagði hann fremur við sjálfan sig en viðskiptavin- inn. „Þau eru víst ulveg mátuleg yður, og ef þau hefðu verið hreinsuð mynduð þér kanski hafa mátað þau, en . . . .“ Ananiassen yppti öxlum og bjóst til að hengja þau upp aftur. — En nú var áhugi skiptavin- arins vaknaður. Hann gat ekki betur séð en að innri brjóstvas- inn væri úttroðinn. Bankagjald- keri — peningar, — þessi orð tóku hug hians allan. Hann var fljótur að taka ákvörðun. „Hm — ja — það sakaði nú samt varla að maður mátaði þau“, hann reyndi að vera eins kæruleysislegur í röddinni og honum var unt, þótt eftirvænt- ingin væri alveg að tryllia hann. Ananiassen hjálpaði honum í jakkann og gekk nokkur skref aftur á bak til þess að geta séð betur, hvemig hann færi á mianninum. „Augnablik, ég ætla að sækja HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.