Heimilisritið - 01.10.1945, Síða 29

Heimilisritið - 01.10.1945, Síða 29
Fimm árum síðar varð hund- urinn veikur, og eitt kvöldið hljóp hann í burtu. Dag nokk- urn, skömmu eftir hvarf hunds- ins, var vörður kirkjugarðsins þar í héraðinu að ganga um garðinn og sá þá sér til undr- unar hvar hundshræ lá á einu leiðinu. Það var Skotti, sem lá þar dauður — á leiði fyrri hús- bónda síns. Af tilviljun er þessi saga vottfest af tólf áreiðanlegum vitundarvottum. Þeir tóku það allir fram, að hundurinn hefði uldrei áður komð í námunda við kirkjugarðinn, enda var hann 1 þrettán kílómetra fjar- lægð frá heimili hundsins. . . . Ógift stúlka, sem Magda Rumsey hét og bjó í Pennsyl- vaniu, hafði sofið skamma stund kvöld eitt, þegar hún hrökk upp með andfælum. Hana hafði dreymt illa, og hélt hún fyrst að hinn ljóti draumur stafaði af meltingaróreglu eða einhverju slíku. Henni hafði fundizt sem hún væri stödd á baðströnd, skammt frá heimili Kay systur sinnar. Þótti henni þá sem hún sæi Kay vaða út í sjóinn og svo allt í einu fara að brjótast tryllingslega um í vatninu og hrópa á hana sér til hjálpar. Magda reyndi litla stund að hrista af sér áhrif þessa skelfi- lega draums. En svo tók hún ákvörðun. Hún klæddi sig í flýti og fór með miðnæturlest- inni til þeirrar borgar, sem syst- ir hennar bjó í. Hún kom þang- að um morguninn, og án þess að fara til herbergis eða skrif- stofu Kays hélt hún rakleiðis niður að ströndinni, sem hún hafði séð í draumnum. Það mótaði fyrir hreyfingar- litlu höfði langt úti á sjó. Magda smeygði af sér kjólnum, sparkaði af sér skónum og steypti sér í sjóinn. í fylgd með sundverðinum synti hún út þangað sem systir hennar barðist hálfdrukknuð við að 'fialda sér uppi. Eftir að stúlkan var komin á þurt land og hafði náð sér dá- lítið eftir volkið, skýrði hún frá því, að hún hefði ætlað að fremja sjálfsmorð. Þegar hún hefði verið búin að synda svo langt út, að engin leið var fyr- ir hana að ná landi aftur af sjálfsdáðum, hefði hún séð að sér, þótt seint væri, en kvaðst alveg hafa verið búin >að missa alla von um björgun. ENDIR HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.