Heimilisritið - 01.10.1945, Side 32
Sfiömuspáin
Hvenær er fæðingardagur þinn? Ef
hann er á tímabilinu 23. okt.—23. nóv.
(báðir dagar meðtaldir), þá ertu í
heiminn borin undir stjömumerki
sporðdrekans. Hér geturðu lesið,
hvað stjömuspámennimir hafa að
segja þeim, sem fæðst hafa á þess-
um tíma árs.
23. október - 23. nóvember
#
Ltíf þitt verður laust við sljó-
leika og deyfð. Strax frá barn-
æsku er þér eðlilegt að berjast
hraustlega, þegar því er að
skipta, elska af heilum hug og
lifa lífinu út í yztu æsar. Þótt
líf þitt sé viðburðaríkt er ekki
þar með sagt, að það sé alltaf
hamingjusamt. Þú verður að
temja þér að hafa hemil á þér
á sumum sviðum, ef ekki á illa
að fara fyrir þér.
Fyrst og fremst þarftu að.
læra að stjórna skapi þínu. Ef
þú gerir það ekki muntu ekki
einungis eiga í erjum við þá,
sem þú umgengst í daglegum
störfum, heldur einnig þá sem
þér eru hjartfólgnastir. Þér er
hætt við að reiðast við menn
meira en góðu hófi gegnir. Ef
þú venur þig ekki af þessum
skapbresti muntu eitra líf þitt,
spilla hamingju þinni og eyði-
leggja hugarró þína. Svo kann
þá að fara, að þú gerir fram-
tíðarmöguleika þína að engu,
með þvi að fæla frá þér velvilj-
aða menn eða hafna öllum
skynsamlegum rökum af ein-
berri þrjózku. Þú mátt ekki
láta tortryggni eða afbrýðis-
semi ná tökuin á þér, og ef
þú lætur hefndarhug fá yfir-
höndina hið innra með þér, þá
geturðu átt von á því, að það
30
HEIMILISRITIÐ