Heimilisritið - 01.10.1945, Side 38
Ttiilli vonar og ótta. En svo
heyrðist röddin aftur, og nú
diannst honum hún vera fjörleg
•og glettnisleg. Hún spurði:
„Hvað getið þér sagt mér
meira um mig sjálfa?“
„Ég þori ekki að fara út í þá
,sálma“.
„Jú, jú, það getur ekki verið
neitt ljótt við að lýsa mér eftir
röddixmi að dæma, það er bara
;gaman að því, finnst mér“.
„Mér væri það ekki nokkur
leið“, sagði Robert. Hann hafði
vjt á því að leggja ekki út í
slíkt áhættuspil.
„Ég bíð og hlusta“, sagði
röddin ísmeygilega. „Hugsið yð-
ur, hvað margir möguleikar eru
til. Ég gæti verið áttræð, fer-
tug eða tvítug. Ég gæti verið
gömul piparkerling eða tíu
bama móðir. Ég gæti verið rík
eða fátæk, fögur eða hræðilega
ljót“.
„Já, greip Robert fram í „og
í þvá liggur einmitt gamanið“.
„Ekki er nú alveg víst, að ég
'hafi svo gaman af því“, sagði
röddin.
„Jú, það hugsa ég, því annars
mynduð þér hafa hringt af fyr-
ir löngu síðan“, svaraði hann
af karlmannlegri dirfsku.
„Ég vorkenndi yður“, sagði
röddin, „og þess vegna fékk ég
mig ekki til þess. En nú verð ég
að slíta, og þér megið ekki
hringja til mín aftur. Ég hélt
fyrst að þér væruð veikur
frændi minn, sem er á sjúkra-
húsi“.
„Langar yður ekki vitund til
að vita eitthvað um mig?“
spurði Robert.
„Ekki vitund“, sagði röddin.
Og svo heyrði hann að símtólið
var lagt á.
Aftur var hann orðinn einn
með lögbókum sínum, leður-
klædda armstólnum og les-
lampanum, en samt var hann
ekki eins einmana og áður.
Hjarta hans sló örara en fyrr.
Hann skrifaði símanúmer
hennar, þetta dularfulla númer,
í vasabók sína. Andartaki síðar
datt honum í hug að fletta upp
í símaskránni, til þess að reyna
að komast eftir því, hver hún
var. En einhverskonar nær-
gætni hélt aftur af honum og
auk þess fannst honum, að ef
hann kæmist að nafni hennar og
vissi deili á henni, myndi dular-
blærinn hverfa af viðkynningu
þeirra. Hann naut þessa atviks,
og hann taldi sér trú um, að
þegar hún sleit sambandið,
hefði verið sá hljómur í rödd
hennar, sem vogaður maður gat
vogað að' túlka sér í vil. Hann
grúfði sig aftur yfir bókina og
fór að lesa.
KVÖLDIÐ eftir um sama
36
HEIMILISRITIÐ