Heimilisritið - 01.10.1945, Qupperneq 40

Heimilisritið - 01.10.1945, Qupperneq 40
einn um borgina. Hún spurði, hvað hann hefði séð markvert. Hann skýrði henni frá því, að hann hefði komið inn í West- minster Abbey og Pálskirkj- una af því það voru byggingar, .sem varð að skoða. „Þér eruð víst óttalegur skrælingi“, sagði hún. „Farið jþér aldrei á málverkasöfn?“ Hann viðurkenndi, að hann færi þó nokkrum sinnum að skoða málverkasöfn, en það væri leiðinlegt að fara þangað einn síns liðs. ELIZABETH Hamilton stóð íyrir framan spegilinn sinn og reyndi að horfa á sig með aug- um karlmanns, en árangurs- laust. Hvemig getur kona nokkru sinni komizt að sann- leika, með því að líta í spegil? Hún gat að minnsta kosti von- að. Ef hún skyldi hitta hann, þá var ekki alveg óhugsandi að honum litist vel á hana, þótt hún væri ekki falleg, og þó að hún væri ekki lengur komung. Hún hugsaði mikið um þetta. Hún átti gnægð af viðkvæmni og ástarþrá í hjarta sínu, en hingað til hafði kærleikurinn gengið fram hjá dyrum hennar, án þess svo mikið sem líta þangað sem hún beið. Hún var lengi að búa sig undir að fara út og vandaði klæðnað sinn vel. Það var rign- ihg úti, svo að hún tók regnhlíf með sér. Þjónn, niðri í anddyri hússins, útvegaði henni bíl og hélt stórri regn'hlíf yfir henni, þegar hún gekk yfir gangstétt- ina út í bílinn. „Listasafn Guildhallar“, sagði hún við bílstjórann. Hún hallaði sér aftur og til hliðar í sætinu, á meðan bíllinn ók henni áleiðis til City. Ró- bert hafði sagt, að hann ætlaði að skoða málverkin í Guild- höllinni í dag. Hvernig skyldi hann líta út? hugsaði hún. Mér finnst ég þekkja hann svo vel, en ég þori naumast að hugsa um það. Hún minntist hinnar djúpu raddar hans, með skozka mál- blænum og hinum fastformuðu setningum. Henni datt í hug, að ef til vill væri hann druslu- legur að sjá, og það fór ofur- lítill kvíða'hrollur um hana. Það var bót í máli, að hann þekkti hana ekki. Þau myndu aldrei hittast, aldrei talast við nema gegnum símann. En hana langaði til að sjá framan í hann rétt sem snöggvast. Hann hafði þrábeðið hana um að segja nafn sitt. En hann var h'áttprúður. Henni féll vel sú nærgætni, sem hann hafði sýnt með því að leita hana ekki uppi. Það var merkilegt, að 38 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.