Heimilisritið - 01.10.1945, Síða 44
Spurningar og svör - E
FRÓÐLEIKSFÚS
Ksera Eva Adams: Viltu vera svo
góð að svara fyrir mig nokkrum
spurningum.
1. Hvað er hárgreiðslukonum,
með sveinspróf, borgað mikið kaup
í Reykjavík?
2. Eru haldin námskeið í Hand-
íðaskólanum og hvað standa þau
lengi yfir?
3. Hvað getur þú sagt mér um
skriftina?
Vonast eftir svari í næsta blaði.
Með fyrirfram þökk,
Mínerva.
Sv.: 1. Kaupið er nokkuð mis-
jafnt, því að aldrei hefur Vhrið sam-
ið um fast kaup í þessari iðn-
grein, þótt gerðar hafi verið ítrek-
aðar tilraunir til þess af hálfu Al-
þýðusambandsins. Yfirleitt munu
þó , hárgreiðslukonur með sveins-
prófi fá 1000—1100 krónur á mán-
uði hér í bæ.
2. Já, Handíðaskólinn starfar frá
1. okt. og þangað til í apríl ár hvert.
Er kennt í tveim flokkum, síðara
hluta dags og á kvöldin. Kennslu-
stundir annars flokksins eru um
það bil 100 en hins 50 og er kennslu
í þeim flokki lokið um áramót. Að-
alkennslugreinar eru bókband og
teikning. Skólinn er fullskipaður
fyrir nokkru, en reynandi mun að
láta skrá sig á biðlista fyrir næsta
kennslutímabil.
3. Mér lízt ágætlega á hana.
LÍTIL VON
Sp.: Kæra Eva. Við kynntumst
tveimur piltum í vetur, og urðum
hrifnar af þeim og éins þeir af okk-
HiVa Zldams svarar
ur. En svo urðu þeir allt í einu
móðgaðir og hafa varla litið við
okkur síðan. Tilfinningar okkar í
þeirra garð hafa þó sízt minnkað
við það. Þeir eru báðir laglegir
með hrafnsvart hár. Sá, sem ég er
hrifin af, er brúneygður, en hinn
er gráeygður. Við erum báðar há-
ar og grannar með kastaníubrúnt
hár, fremur laglegar, en samt ó-
líkar. Heldurðu að það geti orðið
nokkuð úr þessu?
Hvað lestu úr skriftinni?
Tvær vinkonur.
Sv.: Hvernig vitið þið að þeir
hafi orðið hrifnir af ykkur, eins
og þið fullyrðið? Ég efast ekki um
að þeim hafi litizt vel á ykkur, a.
m. k. fyrst í stað, en það er ekki
þar með sagt að þeir hafi orðið
gripnir „ódauðlegri ást“ við nánari
viðkynningu. Þótt ungt fólk kynnist
— og jafnvel hrífist hvort af öðru
— þá þykir það varla tiltökumál
nú á dögum, þótt sú kynning standi
stuttan tíma. Og af útlitinu einu
saman er oftast engar ályktanir
hægt að draga í þessum efnum
— þar kemur margt fleira til
greina. Yfirleitt gef ég ykkur litla
von nema þið séuð því slyngari í
að koma ár ykkar fyrir borð.
Skriftin er fyrirtak.
SÖNGLAGATEXTAR
Svar við mörgum bréfum, þar
sem beðið er um tiltekna enska
sönglagatexta. Mér finnst óþarfi að
birta þessi bréf. Ég læt þau ganga
rétta boðleið, en get engu lofað um
það, hvort umbeðnir textar verða
birtir fyrr eða síðar.
42
HEIMILISRITIÐ