Heimilisritið - 01.10.1945, Page 48

Heimilisritið - 01.10.1945, Page 48
'Steypiflugvélarnar hafa dregið mesta athygli að sér. En það er auðsætt, að þessi vélknúðu stórskotatól Þjóðverja, sem þeir geta flengekið í sóknar- :stöðu rétt aftan við stálfylk- ingar skriðdrekanna, eru tröll- aukin árásartæki. Nú skutu Þjóðverjar allt í kringum okkur af sex þumlunga byssum og 105 mm. Hávaðinn var ekki eins ægilegur og ég 'bjóst við. Eyrun venjast hon- um ef til vill. Ég tek eftir því, að allan síð- ari hluta dagsins svífa tvær njósnarflugvélar yfir víglín- unni, auðsjáanlega þýzkar, til þess að leiðbeina stórskotalið- inu. Þær hnita hringa yfir or- ustusvæðinu óáreittar. En eng- ar flugvélar eru á lofti til þess að vísa Bandamannaskyttunum á skotmörkin, enda virðast þær miða öllum skeytum á fram- •stöðvar Þjóðverja en ekki fall- byssustöðvar, og er það skrítið. Skortur Bandamanna á flugvél- •um gerir þeim erfitt fyrir. Satt að segja sjáum yið enga flu'gvél frá Bandamönnum lið- langan daginn. Dagurinn líður við dynjandi fallbyssuhríð, og loks fær stór- skotaliðið skipun um að færa ■sig til nýrra stöðva framar. Og geta má nærri, að í framsókn- inni er farið eftir fyrirfram gerðri áætlun. í einu vetfangi spretta upp í skóginum í kring- um okkur menn og ökutæki, sem við höfðum ekki séð, og þeir svipta burt trjágreinum, sem allt var falið undir, og halda af stað. Við lítum í síð- asta shjini yfir Scheldedalinn, þar sem reykjarmekkir sprengj- anna rísa handian árinnar. Sjálf- sagt hefur allt þetta ákveðna þýðingu í augum þýzku liðs- foringjanna í kringum okkur. Hver hvínandi sprengjukúla rekur ákveðið erindi. Hver byssa og flutningsbíll, sem þýt- ur áfram eftir veginum er á leið til síns ákvörðunarstaðar, hver og einn allra þessara þús- unda. Öll ringulreið vígvallar- ins, sem mér sýnist vera svo, er í raun og veru svipmynd af hjólliðugu hervélabákni, sem æðir fram í eyðandi orustu. Við ökum aftur til Briissel. Þýzkar steypiflugvélar þjóta í gagnstæða átt til vígstöðvanna, til þess að ljúka einhverjum erindum dauða og tortímingar fyrir nóttina. Þýzkar sprengju- flugvélar og orustuflugvélar svífa ögrandi yfir Briissel. Þetta er aðferð Þjóðverja til þess að hafa áhrif á íbúana. Við komum ekki til Aachen fyrr en um miðnætti. Flestir’ samferðamenn mínir hafa látið greipar sópa um 46 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.