Heimilisritið - 01.10.1945, Side 49

Heimilisritið - 01.10.1945, Side 49
Briissel öðru sinni og hafa á- hyggjur af því, að Þjóðverjar taki nú af þeim herfangið í tollstöðinni, sem þeir hafa enn á hinum gömlu landamærum Belgíu og Þýzkalands. En þeir gera það ekki. Orðið of seint til að útvarpa, svo að ég skrifa fréttaþátt, síma hann til Berlínar, fæ hann sendan í símskeyti þaðan til New York og útvarpað þar. Ég er ekki fyrr seztur niður við skrifborðið en Bretar eru komn- ir í flugárás. Ég flý úr herbergi mínu á næst efstu hæð og skrifa þáttinn í borðstofunni á neðstu hæð. Loftvamabyssur af öllum stærðum þruma látlaust. Öðru hverju finnst titringur, þegar sprengja springur. Bret- arnir eru auðvitað að reyna að hitta járnbrautarstöðina og skiptisporin. Gjörla má heyra gnýinn í hinum miklu sprengju- flugvélum þeirra, og öðru hverju þytinn í þýzku orustu- flugvélunum. Árásin stóð í fjórar stundir og létti rétt eftir klukkan fjög- ur. Berlín, 24. maí 1940 Þó að ekið sé liðlangan dag- með fjörutíu mílna hraða á klukkustund, er stöðugt farið fram hjá óslitinni lest af vél- knúnum herflokkum. Hún tek- ur yfir Belgíu þvera. Og hratt fer hún, þrjátíu til fjörutíu míl- ur á klukkustund. Maður furð- ar sig á, hvemig séð er fyrir benzínbirgðum handa öllum þessum farartækjum. En ekki skorti þær. Bílar með benzín- geyma fylgja lestinni, og hver ökumaður veit, hvar hann get- ur fengið nýjar birgðir, þegar hann þrýtur eldsneytið. Hvílík skotmörk þessar lestir væru, ef Bandamenn hefðu nokkuð af flugvélum! Eða hvílík stórfengleg skipu- lagsvél, þar sem allt gengur svo árekstralaust. í raun og vem er það stórfenglegast, þegar horft er á þýzka herinn að starfi. Þessi tröllaukna og ópersónulega hemaðarvél knýst með samskonar ró og risaaf- köstum og til dæmis bílasmiðj- umar miklu í Detroit. Rétt aftan við víglínuna balda jafnt foringjar sem örþreyttir liðs- menn sinni köldu kaupsýslu- mannsró, þó að fallbyssumar þrumi heljarsöng sinn myrkra á milli, flugvélar kljúfi loftið yfir höfðum þeirra með dynj- andi gný og jörðin duni undir þúsundum vélknúinna hjóla á rykugum vegunum. Ekki vottur af æsingu né óró. Foringi, sem stjómar fallbyssuskothríð, hættir í hálfa stund til þess að útskýra fyrir mér, hvað hann HEIMILISRITIÐ 47

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.