Heimilisritið - 01.10.1945, Side 60
þessi maður, sem þama liggur
dauður, hefur spunnið upp,
hvaða ástæðu sem hann kann
að hafa haft til þess. Ég vil
fuilyrða við yður að þessi
stúlka — hvað heitir hún nú
aftur —“
„Lesley Grant“, stakk Midd-
lesworth inn í.
„Já, alveg rétt“. Gideon Fell
varð rauður í framan af ákafa.
„Lesley Grant er ekki eitur-
byrlari. Hún á ekki, svo mér sé
kunnugt um, sökótt við nokk-
um mann. Ég skal skýra þetta
nánar“. Hann þrýsti fingurgóm-
unum saman.
„Hún hefur hvorki gifzt né
myrt, eða yfirleitt haft nokkur
kynni af amerískum lögfræð-
ingi, sem heitir Burton Foster,
blátt áfram af þeirri ástæðu að
hann hefur aldrei verið til —“
„Ha?“
Fell bandaði frá sér hendinni.
„Hún er saklaus af því að
hafa myrt þennan Davies í
Liverpool í aflæstu herbergi
eða hvar sem er, vegna þess að
sá maður hefur he'ldur ekki
verið uppi. Og hún bauð Martin
Belford heldur ekki til kvöld-
verðar í París, hvað þá að hún
hafi átt sök á þvi, að hann
dræpi sig á eitri síðar um kvöld-
ið. Sá maður er sem sé líka að-
eins hugarfóstur. í stuttu máli,
þá eru þær sakir, sem bornar
hafa verið á Lesley Grant, við-
bjóðs'legur uppspuni, alveg frá
rótum“.
Dick Markham hrökk upp af
hugsunum sínum við það, að
sígarettan, sem hann hélt á milli
fingra sér, var farin að svíða
gómana. Hann leit í glóðina og
■kastaði svo sígarettunni frá sér.
Ýms smáatriði komu í hug
hans, sem hann hafði ekki
'hugsað út í áður. Hann leit til
Middlesworths.
„Hélduð þér, strax frá byrjun,.
að hann .væri lygari?“
„Ja“, svaraði Middlesworth,
„ekki segi ég það. En hef hugsað
margt. Þegar Price kynnti hann
fyrir mér fyrst og sagði, að Sir
Harvey bæði okkur um að halda
hinu rétta nafni sínu leyndu,
vaknaði áhugi minn fyrir hon-
um. Ég spurði hann um eitt af
hinum mörgu glæpamálum,
sem hann var þekktur fyrir að
hafa afhjúpað. Það var ekkert
við svör hans að athuga, bein-
línis. Þó furðaði ég mig á því,
þegar hann fór að tala um
hjartahólfin eins og þau væru
tvö, því að hver maður, að
minnsta kosti þeir, sem eru eitt-
hvað menntaðir og inni í morð-
málum, vita, að- hjartahólfin eru
fjögur“.
Gideon Fell varð ákaflega
æruverðugur og hugsandi á
svip. „Nú skulum við koma að
58
HEIMILISRITIÐ