Heimilisritið - 01.10.1945, Blaðsíða 64
SAMVIZKUSPURNING
Leggðu eftirfarandi spurningu
fyrir þig og kunningja þína. Vafa-
laust verða svörin á marga vegu.
Setjum sem svo, að eftirfarandi
menn væru að reika um á víðlendri
eyðimörku: — Clark Gable, Magnús
Sigurðsson, Alda Möller, Sveinn
Björnsson, Gunnar Huseby, Eva
Adams, Helgi Hjörvar, Hitler, Errol
Flynn, Ann Sheridan, Ragnar í
Smára, Stalin, Sigurgeir Sigurðsson,
Hannes á Hominu, Tómas Guð-
mundsson og Alfreð Andrésson.
Nú vill svo til að þú hefur vald
til þess, að láta fjögur þeirra (og að-
■ eins fjögur) halda áfram að reika um
eyðimörkina endalaust.
Hver þeirra myndirðu velja?
ÓSJÁLFRÁÐ HREYFTNG
Stattu á þrepskildi í opnum dyr-
um af venjulegri stærð. Ýttu fast
með. handarbökunum á sinn hvorn
dyrastaf í nokkra stund. Gakktu
svo úr dyrunum og hafðu hand-
leggina máttlausa. Brátt muntu
finna, að handleggirnir lyftast ó-
sjálfrátt út frá hliðunum.
HVAÐA DAGUR?
Hvaða dagur er næstur á eftir
deginum á undan deginum á morg-
un?
SMÁPENINGUR HVERFUR
Þetta er einfalt og auðvelt töfra-
bragð. Þú biður einhvern viðstadd-
an um að lána þér smápening.
Leggðu svo peninginn í lófa þinn
og krepptu hnefann þéttingsfast
saman. Þegar þú opnar lófann og
sýnir hann, er peningurinn horfinn.
TALNAÞRAUT
Biddu einhvem kunningja þinn um
að hugsa sér einhverja lága tölu.
Biddu hann svo um að margfalda
hana með tveimur og margfalda út-
komuna með 5. Þetta er allt og
sumt. Nú geturðu sagt honum hvaða
tölu hann hugsaði sér, þegar hann
hefur sagt þér endanlega útkomu.
ÖNNUR TALNAÞRAUT
Einhver hugsar sér tölu og þú
segir honum að draga einn frá,
margfalda útkomuna með tveimur
og bæta svo upphaflegu tölunni við
þá útkomu. Þér er nú sögð niður-
stöðutalan og þá geturðu sagt með
vissu hvaða tölu maðurinn hugsaði
sér fyrst.
KLUKKUÞRAUT
Hvað er langt þangað til klukk-
an verður sex, ef hún var, núna fyrir
fimmtíu mínútum, fjórum sinn-
um fleiri mínútur yfir þrjú?
Svör á bls. 64.
•62
HEIMILISRITIÐ