Heimilisritið - 01.08.1950, Page 6

Heimilisritið - 01.08.1950, Page 6
um við nú ákveðið að snúa sam- an bökum og stinga við fótum, bæði sjálfum okkur til lífsbjarg- ar og einnig til að losa hina kyn- hreinu Evrópumenn við að þurfa að búa með okkur. Við, sem hér erum myndum einfald- lega allir verða drepnir ef styrj- öldin tapaðist og að engu gerðar vonir allra þeirra, sem bíða þess að koma hingað, en sigurinn hins vegar trygging fyrir tilveru okkar og frelsi í eigin landi. Þetta vita hermenn okkar. Þess vegna berjast þeir eins og ljón — og sigra.“ „En Arabarnir, sem hér hafa verið og þið læsið nú inni í fangabúðum?“ „Þeir geta sjálfum sér og vin- um sínum um kennt. Þeir hófu styrjöldina, en við ljúkum henni. Við vildum aldrei ófrið við Araba. Óvinir okkar segja að við séum landræningjar, en það er rangt. Jafnvel þótt hinn eldforni réttur okkar til þessa lands væri að engu metinn, þá ber þess að minnast, að öll sú jörð, sem við erjuðum hér fyrir stríð var keypt fullu verði af Aröbum, en hitt, sem við höfum nú tekið, er goldið með blóði okkar og allt þetta land munum við gera að þeim aldingarði, sem það var áður en akrarnir huldust sandi og fákænn Araba- lýður strengdi sultarólina í pest- arbælum, þar sem áður var frjó- söm jörð. Þú hefur sjálfur séð ávaxtaekrurnar, akrana og býl- in, sem eru hér milli Tel Aviv og Haifa. Fyrir 50 árum voru þar sams konar sandauðnir og þær, sem við berjumst nú um í Negev, eða mýrarflákar, þar sem malarían drap allt kvikt. Við erum þó rétt að byrja. Enn erum við ekki nema 800 þús- undir á þessu landsvæði, sem ekki er stærra en um f jórði hluti ættlands þíns, en þúsundir eru í dag á leiðinni til okkar frá öll- um löndum heims og aðrir taka sig upp á morgun. Aldagamall draumur rætist. ísrael verður stórveldi.“ Hann þagnaði og fór að skrifa tölur og draga línur á borð- þurrkuna, Bandaríkjamannin- um til skýringar á þeirri full- yrðingu, að sú litla skák, enn ó- unnin á vegi ísraelsmanna til Rauðahafsins, væri þröskuldur, sem nauðsyn bæri til að yfir- stíga, því þar yrði að rísa ný og mikil stórborg, fegurri og öfl- ugri en Tel Aviv. Þeir ræða og reikna, en Jak- ob, sem lengi hefur ekkert lagt til málanna segir: „Stundum finst mér eins og þetta geti alls ekki verið raun- veruleiki, því hraðinn er svo mikill. Hið eiginlega landnám okkar hér er ekki eldra en 30— 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.