Heimilisritið - 01.08.1950, Blaðsíða 8
„Kína? Eru líka Gyðingar
þaðan?“
„Já. Því ekki það? Einn af
þeim spádómum, sem öruggleg-
ast hefur rætzt er sá að við eig-
um að dreifast um jörðina. Það
höfum við sannarlega gert. Við
eigum t. d. einn hér frá Græn-
landi.“
, Frá Grænlandi? Nei. Nú
skrökvar þú Jakob, vinur minn,
þótt aldrei hafir þú sagt ósatt
fyrr “
„Ónei. Ég er meira að segja
málkunnugur honum. en ef þú
trúir mér ekki þá spurðu lækn-
inn hérna. Þeir eru í sömu her-
deild.“
Læknirinn staðfestir þetta,
en virðist annars ekki telja það
sögu til næsta bæjar þótt einn
hermannanna sé frá Grænlandi.
Ég vík mér þá aftur að hinum
alvísa Jakob og bið hann að
segja mér allt af létta um
þenna fyrrverandi nágranna
minn. Jakob segir frá á þessa
leið:
„Á stríðsárunum dvaldi ung-
ur Eskimói frá Grænlandi í
Kaupmannahöfn og nam þar
skipasmíði. Hann lagði sig all-
an fram við námið, vann hylli
yfirboðara sinna og skipti sér
ekkert af stjómmálum. Dag
einn var hann handtekinn og
ákærður fyrir hlutdeild í spell-
virkjum. Hann fékk aldrei
sannanir fyrir því hver kærði
hann en sagðist þó vera viss
um að þar hefði verið að verki
námsbróðir hans, sem undi því
illa að yfirmennimir settu hann
skör lægra en kynblendinginn.
Nú fór svo, að sakleysi Græn-
lendingsins varð ljóst og hefði
honum því verið sleppt, ef ann-
að og verra hefði ekki komið
til. Er grafizt var fyrir um upp-
runa hans kom í Ijós, að faðir
hans, danskur sjómaður, hafði
verið hreinræktaður Gyðingur.
Nú þegar hér var komið sögu
hofðu allir þeir danskir Gyðing-
ar sem til náðist fyrir löngu ver-
ið hnepptir í varðhald, en vor
vinur þá sloppið, enda jafn ó-
vitandi um sitt austræna blóð
og landhreinsunarmennirnir.
Þóttust Þjóðverjar nú hinn und-
arlegasta ódrátt fangað hafa
þar, sem Júðinn var í Eskimóa-
hamnum og léku hann því grátt.
Var hann svo fluttur í Gyðinga-
búðir. Þar kynntist hann mönn-
um, sem umgengust hann,
fyrstir allra, eins og jafningja
og þar tengdi hann vináttu-
bönd, sem ollu því, að hann á-
kvað í stríðslokin að gera hlé á
bátagerðinni í Danmörku.
Komst hann svo hingað með
tveim vinum sínum. Hann er
búinn að vera alllengi hér í
hernum, talar nú orðið sæmi-
lega hebresku og er vinsæll
6
HEIMILISRITIÐ