Heimilisritið - 01.08.1950, Page 23

Heimilisritið - 01.08.1950, Page 23
ÞREMUR klukkustundum síð- ar ók vagninn með brúðhjónin til villunnar, sem þeim hafði verið fengin til umráða hveiti- brauðsdagana. Ferðin þangað út eftir gekk vel. Hugh hafði set- ið við stýrið og ekki haft ann- að að gera en að hlusta á hug- fangið slúðrið í Nancy um gest- ina, gjafirnar og hárgreiðslu kvenfólksins. Síðar, þegar þau sátu inni í dagstofunni eftir miðdegisverð- inn, varð Hugh skyndilega grip- inn hræðslutilfinningu. Hann var enn afar taugaslappur og framúrskarandi viðkvæmur, og honum varð allt í einu ljóst, að hann var ekki maður til að rísa undir því, sem hann hafði tek- izt á herðar. Hann gat ekki fengið það sér af sér að mæta hinum einlægu tilfinningum Nancy með uppgerðar ástúð. „Nancy,“ sagði hann loksins. „Það er orðið framorðið — ertu ekki þreytt?“ „Jú, Hugh,“ svaraði hún og stóð upp. „Það mætti vel segja mér, að þú værir dauðþreytt,“ sagði hann blíðlega. „Þú munt sofa betur, ef þú sefur ein — svo að ég legg mig í búningsher- berginu." Nancy stanzaði í miðri stof- unni. Hún varð blóðrjóð í fram- an, og síðan náföl. „Fyrirtak, Hugh,“ svaraði hún aðeins, en svo lágt, að hann heyrði tæplega hvað hún sagði. „Góða nótt!“ Hann opnaði dymar fyrir henni og beygði sig klaufalega fram á við, alveg eins og hann vissi ekki hvort hann ætti að kyssa hana eða ekki, en hún lét sem hún tæki ekki eftir hreyfingu hans og gekk þvert yfir forstofuna og upp stigann. HVORUGT þeirra svaf vært þessa nótt. Stolt Nancy fyrir- bauð henni að leita athvarfs í grátkasti. En hvers vegna — hvers vegna hafði Hugh komið þannig fram? Hún minntist orða móður sinnar um áhrif stríðsins og reyndi að finna hon- um afsökun — en hann hafði alltof greinilega látið hana skilja, að hann elskaði hana ekki. Hún var umgengni við karlmenn algerlega óvön, og enda þótt hún teldi sjálfri sér trú um, að hún yrði að vera þolinmóð, þá leyfði hvorki stolt hennar né sjálfsvirðing henni að ganga einu skrefi til móts við hann. „Hann þarf ekkert að óttast,“ hugsaði hún með sjálfri sér. „Ég skal ekki þrengja mér inn á hann — ef hann þarfnast mín, verður hann að koma ótilkvadd- ur.“ HEIMILISRITIÐ 21

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.