Heimilisritið - 01.08.1950, Síða 25

Heimilisritið - 01.08.1950, Síða 25
Mig langar meira til þess að vera kyrr heima.“ Hann varð fyrir ofurlitlum vonbrigðum; hann kærði sig ekki alltaf um að vera í návist Nancy — það var dagsatt. En hingað til hafði hann svo mjög tamið sér þá hugsun, að tilfinn- ingar hennar í sinn garð væru algerlega óumbreytanlegar, að tilhugsunin um það, að hún gæti vel verið án hans, kom dálítið flatt upp á hann. ,.Nú-jæja,“ svaraði hann. „Eins og þú vilt. Ég sigli eftir þrjár vikur.“ „Ég vona að það verði skemmtilegt ferðalag,“ sagði Nancy. „Það ætti það sannar- lega að verða ... Ég hef höfuð- verk í kvöld, svo að ég held að það sé bezt að ég fari að hátta núna. Góða nótt, Hugh.“ „Góða nótt, vina mín.“ Hann vissi ekki, að hún þurfti að flýta sér upp í herbergið sitt til þess að hann sæi hana ekki tárfella. ENNÞÁ leið eitt ár. Hugh Warren gekk á land í Southampton — sólbrenndur, hraustur og frískur. Hann hafði sent símskeyti á undan sér um komu skipsins, og hann gekk heim að hótelinu, þar sem hann hafði beðið Nancy að hitta sig. Hann var jafn HEIMILISRITIÐ hreykinn og skóladrengur, þeg- ar hann hefur fengið leyfi. En Nancy var þar ekki — og það hafði enginn komið, sem lýs- ingin á henni gat átt við um. Hugh fannst hann vera eins og blaðra, sem loftinu hefur verið hleypt úr. Þetta var ekki reglulega fallegt af henni! Svo datt honum í hug, að hún hefði máske tafizt á leiðinni---------- hann símaði heim. Nei, — frú- in var ekki heima. Frúin var að horfa á veðreiðar. En það var búizt við frúnni heim til hádeg- isverðar. Hugh lagði heyrnartólið nið- ur. Allur ljóminn af heimkomu hans var rokinn út í veður og vind. Hafði Nancy engan skiln- ing á því, hvað það þýddi að koma heim til Englands eftir heils árs fjarveru, og hversu mikil vonbrigði það hlutu að verða fyrir hann, að eitthvert kunnugt andlit skyldi ekki bjóða hann velkominn heim? Fjandinn hafi það — hún hefði vel getað hætt við að fara til þessara veðreiða! Það voru sannarlega nógu margir veð- reiðadagar í vikunni. Hann fór með lestinni til London. Tilfinningalíf hans var í syngjandi ringulreið. Hann var móðgaður, enda þótt hann við- urkenndi, að til þess var ekki mikil ástæða, þegar tillit var 23

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.