Fréttatíminn - 13.09.2013, Blaðsíða 42
42 ferðalög Helgin 13.-15. september 2013
Borgarheimsókn staðsetning hótelsins skiptir máli
Búa miðsvæðis
Það getur verið freistandi að bóka gistingu í
úthverfum og lækka hótelreikninginn um þús-
undir króna. Kostnaður við að koma sér inn í
borgina að morgni og heim að kveldi gengur þó
fljótt á sparnaðinn. Svo ekki sé minnst á tímann
sem fer í ferðalögin. Í stórborgunum skiptir líka
máli að velja hótel í þeim borgarhlutum sem
þykja mest spennandi.
Bóka borð
Það er uppskrift að misheppnaðri veitingahúsa-
ferð að rölta sársvangur um ókunnuga borg í
leit að spennandi matsölustað. Það er því ágætt
að kynna sér matarmenningu borgarinnar áður
en lagt er í hann og bóka borð á áhugaverðum
veitingastöðum. Það er líka um að gera að nýta
hádegið til að borða á betri stöðunum því þá eru
verðin oftast nær lægri en þau eru á kvöldin.
Sveigjanleiki
Það er oft dýrast að fljúga út á föstudegi og
heim á sunnudegi. Þeir sem geta verið fram á
mánudag eða jafnvel ferðast í miðri viku geta
því stundum fengið ódýrari farmiða og gist-
ingu. Í sumum borgum lækka hótelstjórarnir
hins vegar verðið um helgar þegar viðskipta-
fólkið og erindrekarnir halda heim. Þetta á til
dæmis við um Frankfurt og Brussel.
Kortleggja daginn
Í þriggja daga borgarferð getur verið gott að
hafa drög að dagskrá. Til dæmis er heppilegt að
heimsækja vinsæla ferðamannastaði að morgni
til því raðirnar lengjast þegar líður á daginn.
Flakk á milli hverfa getur verið tímafrekt og
því fínt að gera hverjum borgarhluta góð skil á
einu bretti. Ferð upp á hótel til að skipta um föt
fyrir kvöldið tekur sinn tíma og því skynsam-
legt að skilja flíspeysuna eftir heima og vera
heldur í hlýjum fötum sem hægt er að fara í út
um kvöldið.
Vita hvað er frítt
Það kostar ekkert að heimsækja mörg af bestu
söfnum í heimi og önnur hleypa frítt inn einu
sinni í viku. Á góðum degi getur líka verið
gaman að rölta um fallegan skrúðgarð og taka
aðeins upp veskið til að kaupa sér hressingu.
Nýta almenningssamgöngur
Það er þægilegt að setjast upp í leigubíl og láta
keyra sig upp að dyrum. En neðanjarðarlestir
eru oftast fljótasti ferðamátinn þó það taki
smá tíma að átta sig á kerfinu. Og auðvitað
kostar lestarmiðinn miklu minna en bílstjórinn
rukkar.
Kristján Sigurjónsson heldur úti ferðavefnum Túristi.is
Svona færðu meira út
úr borgarferðinni
Sex heilræði fyrir þá sem vilja nýta tímann og peningana vel í næstu stórborgarreisu.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Þó gistingin sé almennt dýrari í miðborgum þá borgar það sig oft að
búa nálægt aðalstöðunum. Mynd visitlondonimages/ britainonview/ Pawel Libera
Túr í
leigubíl
kostar sitt
og getur
tekið mun
lengri tíma
en ferð í
neðan-
jarðarlest.
Mynd Jen
Davis/NYCgo.
com
Það kostar
ekkert inn
á British
Museum í
London og
því kjörið
að kíkja
við. Mynd
visitlond-
onimages/
britainonview
Fáðu meira
út úr Fríinu
Viltu afslátt af hótelgistingu,
ókeypis morgunmat eða Frítt
Freyðivín upp á herbergi?
bókaðu sértilboð á gistingu,
ódýr hótel og bílaleigubíla
út um allan heim á túristi.is
T Ú R I S T I
Sérblöð Fréttatímans
Fylgstu með - láttu sjá þig!
Hafðu samband við auglýsingadeild Fréttatímans.
Síminn er 531 3310 eða sendu okkur póst á auglysingar@frettatiminn.is
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
Sérblöð Fréttatím ns
Fylgstu með - láttu sjá þig!
Hafðu samband við auglýsingadeild Fréttatímans.
Síminn er 531 3310 eða sendu okkur póst á auglysingar@frettatiminn.is