Fréttatíminn - 13.09.2013, Blaðsíða 62
62 bíó Helgin 13.-15. september 2013
Hjónin Hal
og Jasmine
eru mold-
ríkir New
York-búar
sem njóta
ljúfa lífsins
ásamt
auðugum
vinum
sínum.
Frumsýnd Blue Jasmine
l eikstjórinn Woody Allen hefur átt góðu gengi að fagna á þessu ári með gaman-mynd sinni Blue Jasmine. Myndin fór
vel af stað þegar hún var frumsýnd í Banda-
ríkjunum í sumar og seldi fleiri miða en
Midnight in Paris sem er tekjuhæsta mynd
leikstjórans til þessa. Vinsældir myndar-
innar í miðju stórmyndafári sumarsins komu
nokkuð á óvart en framleiðendur hennar
þóttust vita hvað þeir voru að gera þegar þeir
sendu hana í hasarinn. Hún myndi koma sem
ferskur andblær, alvarleg og góð mynd, og
kærkomin tilbreyting.
Leikarar sækjast jafnan eftir því að fá að
vinna með Allen og sem fyrr hefur hann
úrvalslið á sínum snærum. Cate Blanchett
er í aðalhlutverkinu og hefur verið hrósað í
hástert fyrir frammistöðu sína. Alec Baldwin
er einnig í fremstu víglínu og grínarinn Louis
C.K. þykir standa sig með prýði í litlu hlut-
verki. Svo vel fór á með honum og Allen að
þeir hafa hug á að gera aðra mynd saman.
Gamli uppistandsgrínistinn og sorakjaftur-
inn Andrew Dice Clay, sem lék Ford Fairlane
á sínum tíma, kemur síðan skemmtilega á
óvart. Hann sýnir á sér nýja hlið og hefur
fengið mikið lof fyrir leik sinn í myndinni.
Hjónin Hal og Jasmine eru moldríkir
New York-búar sem njóta ljúfa lífsins ásamt
auðugum vinum sínum. Þau líta hins vegar
systur Jasmine og eiginmann hennar horn-
auga, enda ekki fólk af sama sauðahúsi og
þau. Glansmyndin fölnar þó hratt þegar Hal
fer fram á skilnað vegna þess að hann er ást-
fanginn af annarri konu. Jasmine bregst hin
versta við og hefnir sín með því að afhjúpa
Hal sem spilta fjármálaskúrkinn sem hann í
raun og veru er.
Og þar með er tilvera Jasmine hrunin til
grunna og hún á ekki annan kost en að flytja
inn á systur sína og mág, sem Sally Hawkins
og Dice Clay leika, og sætta sig við milli-
stéttarheimili þeirra. Jasmine myndast síðan
við að koma sér aftur á réttan kjöl en þar sem
hún siglir undir fölsku flaggi eiga endur-
reisnartilraunir hennar eftir að draga dilk á
eftir sér.
Gagnrýnendur hafa sem fyrr segið ekki
síður tekið Blue Jasmine fagnandi en áhorf-
endur og á vefnum Rotten Tomatoes, sem
safnar saman kvikmyndadómum og reiknar
meðaltal þeirra, þykir myndin brakandi fersk
með 89%.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,9, Rotten Tomatoes: 89%,
Metacritic: 77%
Sá aldni meistari Woody Allen er við sama heygarðshornið og dælir út bíómyndum, einni á ári,
þrátt fyrir að vera farinn að nálgast áttrætt. Allen er mistækur í samræmi við afköstin en þegar
honum tekst vel upp standast fáir honum snúning. Hann hefur verið á góðri siglingu undanfarið
og nýjasta mynd hans, Blue Jasmine, hefur fengið prýðilega dóma og þykir vera hans besta mynd
um langt árabil.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Besta mynd Allens í mörg ár
Cate Blanchett þykir sýna stórleik í Blue Jasmine og er sjaldan sögð hafa verið betri í mynd þar sem Woody Allen nær að halda
jafnvægi milli gríns og dramatíkur.
Ofurpabbinn Gru snýr aftur
Ofurglæponinn Gru var kynntur
til sögunnar í teiknimyndinni
Despicable Me fyrir þremur
árum og sló hressilega í gegn.
Þá ætlaði Gru sér að nota þrjár
munaðarlausar stúlkur sem
peð í vélabrögðum sínum en
varð fyrir því óláni að ást þeirra
á honum breytti honum til hins
betra.
Nú býr Gru með stelpunum,
Margo, Edith og Agöthu, í
úthverfi og unir hag sínum
vel. Hann hrekkur þó í gamla
gírinn eftir að fulltrúi samtaka
sem berjast gegn ofurskúrkum
Fleiri Frumsýningar malick og mud
Spennandi bland í poka
Spennumyndirnar Paranoia og Malavita
eru á meðal frumsýningarmynda helgar-
innar. Í Paranoia lendir Liam Hemsworth
í hættulegri klemmu á milli tveggja ófyr-
irleitinna iðnjöfra sem Harrison Ford og
Gary Oldman leika. Persóna Oldmans vél-
ar unga manninn til þess að stunda iðnað-
arnjósnir um Ford en slíkt veit ekki á gott.
Þungavigtarliðið Robert De Niro, Mic-
helle Pfeiffer og Tommy Lee Jones fara
með aðalhlutverkin í Malavita sem segir
frá fjölskyldu mafíuforingja sem gengur
illa að fara huldu höfði í vitnavernd í Frakk-
landi. Fyrirferðin í þeim verður til þess að
gamlir félagar úr mafíunni renna á slóð
þeirra og þá hitnar heldur betur í kolunum.
Þessa dagana sýnir Kringlubíó þrjár at-
hyglisverðar myndir. Mud skartar Matt-
hew McConaughey í hlutverki manns sem
felur sig við Mississipi-fljót. Hann er grun-
aður um morð en nýtur aðstoðar tveggja
stráka sem rekast á hann. Mud var tilnefnd
til Gullpálmans á kvikmyndahátíðinni í
Cannes.
To The Wonder er nýjasta mynd leik-
stjórans Terrence Malick en myndir hans
teljast alltaf til tíðinda. Hér teflir hann fram
þeim Ben Affleck, Olga Kurylenko, Javier
Bardem og Rachel McAdams.
Þriðja myndin á kvikmyndadögum í
Kringlubíói er Midnight's Children sem
er gerð eftir skáldsögu Salmans Rushdie
sem einnig skrifar handritið. Sagan hefst
árið 1949, nánar tiltekið á þeirri stundu
sem Indverjar fá sjálfstæði frá Bretum. Þá
fæðist lítill drengur sem gæddur er óvenju-
legum hæfileikum.
Frumsýnd despicaBle me 2
Matthew McConaughey þykir fara á kostum í Mud.
kemur á hans fund. Eftir smá
snerru áttar Gru sig á því að
heimsbyggðin þarfnast hans í
baráttunni gegn nýju illmenni
og ofurpabbinn ákveður að
láta ekki sitt eftir liggja.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,7,
Rotten Tomatoes: 76%,
Metacritic: 62%
SKÓLANEMAR: 25% AfSLáttuR gEgN fRAMvíSuN SKíRtEiNiS!
EvRÓpSK KviKMyNdAhátið 19 - 29 SEptEMbER
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
NO(14)
13. sept: 17.40 - 20.00 14. sept: 20.00
thE KiNgS Of SuMMER (14) SýNiNgARtíMAR A biOpARAdiS.iS
EVRÓPSK
K V I K
MYNDA
H Á T I Ð
European Film Festival Iceland
19 - 29 september 2013
AðEiNS SýNiNAR
þESSA hELgi
Sykurlaus og náttúrulegur staðgengill flórsykurs!
Hefur ekki áhrif á blóðsykur og insúlín líkamans