Fréttatíminn - 13.09.2013, Blaðsíða 29
Björt og alsystkini hennar með
skólabíl í grunnskólann í Reyk-
holti í tveggja kílómetra fjar-
lægð. Mamma hennar er kennari
og kenndi hinum börnunum á
heimilinu. „Svo komum við heim
úr skólanum og fórum í útigallann
og sinntum útiverkunum og svo
voru kannski bakaðar kökur fyrir
síðdegiskaffið. Það þurftu alltaf
að vera tvær því við vorum svo
mörg. Ég hef sagt það áður að til-
finningin hjá mér er sú að mamma
og pabbi hafi sofið með annað
augað opið í tuttugu til þrjátíu
ár. Það voru ekki neinar dag- eða
næturvaktir heldur sáu þau um öll
börnin, alltaf.“
Formannstíðin í Geðhjálp
lærdómsríkur tími
Björt lauk BS gráðu í sálfræði
frá Háskóla Íslands og MA gráðu
í mannauðsstjórnun frá háskól-
anum í Lundi í Svíþjóð og hafði
starfað á geðdeildum í nokkurn
tíma þegar hún tók við stöðu for-
manns Geðhjálpar sem eru frjáls
félagasamtök og vann Björt þar í
sjálfboðavinnu. „Á þessum tíma
var ég nýbúin að fá vinnu hjá
Capacent en svo eftir að hafa öðl-
ast reynslu af störfum á geðdeild-
um ákvað ég að bjóða mig fram
sem formaður Geðhjálpar.“ Björt
sinnti formannsstarfinu í tæp
tvö ár. Hún lét af störfum eftir að
hún tók sæti á lista Bjartrar fram-
tíðar. „Fljótlega eftir að ég tók þá
ákvörðun að bjóða mig fram komu
fram ásakanir um ólýðræðisleg
vinnubrögð innan Geðhjálpar. Ég
mat það þannig á þessum tíma að
það væri samtökunum fyrir bestu
að ég sjálf gerði hlutina ekki upp í
fjölmiðlum og stigi til hliðar. Það
er unnið mjög gott og þarft starf
þarna sem byggir á því að sátt
ríki og að fólk úti í samfélaginu sé
óhrætt að leita sér þar aðstoðar.
Ósætti getur alltaf komið upp þar
sem ólíkir einstaklingar koma
saman og vinna að hugðarefnum
sínum.“ Á sínum tíma hafi stjórn-
in verið ósammála um hvort selja
ætti húsnæði Geðhjálpar við Tún-
götu í Reykjavík. „Svo var það selt
um daginn á hærra verði en okkur
bauðst á þessum tíma sem er
mjög ánægjuleg niðurstaða,“ segir
Björt sem kveðst ánægð með að
hafa verið staðföst meðan mesti
stormurinn reið yfir því það hafi
verið Geðhjálp fyrir bestu. „Þetta
var lærdómsríkt en það er gott að
hafa farið í gegnum svona reynslu.
Maður lærir að þekkja styrkleika
sína og hvers maður er megnugur.
Það er ákveðinn léttir að vera búin
að átta sig á því og sjálfstraustið
eflist í leiðinni. Kannski bíður
þingmannsstarfið upp á eitthvað
svipað, maður veit ekki.“
Fann eiginmanninn
á Bókhlöðunni
Síðasta sumar giftist Björt unn-
usta sínum til tíu ára, Birgi Viðars-
syni en þau kynntust í gegnum
sameiginlega vini þegar hún
var að lesa fyrir stúdentsprófin
í MH. „Ég sá hann fyrst á Bók-
hlöðunni og sagði vinkonu minni
frá þessum sæta strák í rauða
anorakknum sem ég hafði komið
auga á. Þá kom í ljós að hann var
vinur kærasta hennar sem hún var
nýbyrjuð með og svo kynntumst
við í framhaldi af því. Pabba leist
ekki vel á hann í byrjun því hann
var úr Breiðholtinu og það sem
verra var, með ofnæmi fyrir öllum
dýrum. „Ertu viss,“ spurði pabbi.“
Björt veit fátt betra en að fara í
sveitina til foreldra sinna og segist
gjörsamlega elska að moka skít.
„Eftir að þinginu lauk í sumar
fórum við fjölskyldan þangað og
ég var þyljandi upp þingræður í
hausnum í skítagallanum á meðan
ég var að moka. Það er mjög góð
leið til að fá útrás,“ segir hún af
miklum sannfæringarkrafti. Í júlí
héldu þau Björt og Birgir stórt
brúðkaup að Torfastöðum sem
stóð yfir heila helgi. Tíu dögum
áður þegar hún var í óða önn að
undirbúa brúðkaupið datt hún nið-
ur af húsþaki og lenti á stétt með
þeim afleiðingum að allar fram-
tennurnar í efri gómi brotnuðu.
„Ég var uppi á þaki að þrífa renn-
ur svo við gætum farið að mála.
Á leiðinni niður þegar ég steig í
fyrsta þrepið á stiganum datt hann
undan mér og ég féll niður. Ég
lenti á stéttinni og svo frussuðust
tennurnar út úr mér en þær brotn-
uðu alveg við rótina.“ Við fallið
brotnuðu fjórar tennur en Björt
slapp við önnur teljandi meiðsli.
Fólkið í kringum Björtu fékk áfall
við að sjá hana blóðuga og tann-
lausa á stéttinni en fyrst um sinn
var hún róleg og tók stjórn ina í
sínar hendur og lét hringja í vin
bróður síns, Jón Steindór Sveins-
son, tannlækni á Selfossi. „Hann
var upptekinn á fundi svo við
náðum ekki í hann en ákváðum að
bruna samt á Selfoss og treysta á
að hitta hann. Þá var hann á leið-
inni í ferðalag með fjölskylduna en
var boðinn og búinn að hjálpa mér,
en ferðalagið þeirra frestaðist því
miður um nokkra klukkutíma.“
Á leiðinni á Selfoss gerði Björt
sér grein fyrir því að sennilega
þyrfti að fresta brúðkaupinu og
fékk þá áfall því búið var að bjóða
hundrað og sjötíu manns. „Þegar
ég áttaði mig á þessu féllu nokkur
tár, ég varð svo hrikalega svekkt
og þetta var alls ekki skemmtileg
reynsla. Við búin að vera saman í
tíu ár og stóri dagurinn að nálgast
svo þurfti þetta akkúrat að gerast
á þessu augnabliki.“
Við komuna til Selfoss var
eiginmaðurinn tilvonandi búinn
að jafna sig á sínu sjokki og stóð
eins og klettur við hlið Bjartar.
„Þetta var ágætis áminning um
það hvers vegna ég vildi giftast
honum því þarna sýndi hann
enn og aftur hvað hann er mikill
klettur þegar á reynir.“ Hrakfalla-
sagan endaði þó eins vel og hægt
er því nýju tennurnar eru alveg
eins og þær sem fyrir voru og hafa
haldist á sínum stað síðan. „Hefði
ég farið til einhvers annars sem
hefði ekki þekkt mig er ekki víst
að þær væru eins því ég var auð-
vitað ekki með mynd af tönnunum
á mér þegar ég mætti á stofuna.
Tannlæknirinn vissi að ég var með
frekjuskarð fyrir og það fékk sem
betur fer að halda sér. Ekki þurfti
að fresta brúðkaupinu og dagana
fram að því tók Björt því rólega og
gerði gott úr orðnum hlut. „Birgir
keypti djúsvél og ég fór bara á
safakúrinn. Það var fínt að af-
stressa sig svona fyrir brúðkaupið
og slappa af heima. Svo var slysið
líka efni í marga góða brandara í
brúðkaupinu sem var ein af stóru
stundunum í mínu lífi. Dásam-
legur dagur alveg hreint.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Sölusýning á morgun frá
kl. 10 til 16.
Á morgun, laugardag, efnum við til
sölusýningar í verslun okkar að
Nóatúni 4.
Þar gefst tækifæri til að skoða allt það
nýjasta sem við bjóðum, m.a. eldunar-
tæki, kæli- og frystitæki, þvottavélar,
þurrkara, uppþvottavélar, ryksugur,
smátæki, rakatæki og mikið úrval af
alls kyns lömpum til heimilisnota.
Fjöldi tilboða í tilefni dagsins.
Veittur verður afsláttur af
öllum vörum.
Látið sjá ykkur og njótið dagsins
með okkur.
Það verður heitt á könnunni!
Sölusýning
viðtal 29 Helgin 13.-15. september 2013