Fréttatíminn - 27.09.2013, Síða 2
Mannréttindi Mótvægi við Hátíð vonar
Samtökin ´78 halda mannréttindahátíðina Glæstar vonir
Samtökin ´78 halda mannréttindahátíðina
Glæstar vonir í Þróttaraheimilinu á laugardag
til mótvægis við Hátíð vonar sem fer fram um
helgina í Laugardalshöll. Prédikarinn Frankl-
in Graham, sem þekktur er fyrir andúð í garð
samkynhneigðra og múslima, mun flytja
erindi á Hátíð vonar og biskup Íslands, Agnes
M. Sigurðardóttir, einnig. Graham var boðið
til landsins af Bænahópi kirkna á Íslandi.
Boð til prédikarans og þátttaka biskups Ís-
lands í hátíðinni hafa verið gagnrýnd á undan-
förnum vikum, meðal annars af formanni
Samtakanna ´78. „Ég hvet allt áhugafólk um
mannréttindi til að mæta á Glæstar vonir
og sýna að Ísland er í liði með sjálfsögðum
mannréttindum og mannlegri reisn fyrir allt
fólk,“ segir Anna Pála Sverrisdóttir, formaður
samtakanna. „Hér á landi ríkir tjáningar- og
fundafrelsi en mér þykir leitt að það frelsi sé
notað til að halda hátíð þar sem aðalstjarnan
er maður sem hefur atvinnu sína af því að pre-
dika hatursorðræðu í garð hinsegin fólks og
annarra hópa,“ segir Anna Pála. Laugarnes-
kirkja mun flagga regnbogafána allan sunnu-
daginn og halda Regnbogamessu um kvöldið
klukkan 20 þar sem yfirskriftin er Fögnum
fjölbreytileika – krefjumst mannréttinda.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Bandaríski
predikarinn
Franklin
Graham
mun halda
erindi á
Hátíð vonar
en hann
er þekktur
fyrir andúð
í garð
hinsegin
fólks og
annarra
hópa.
Anna Pála Sverris-
dóttir er formaður
Samtakanna ´78.
Atvinnuleysi
í ágúst 4,4
prósent
Atvinnuleysi í ágúst var 4,4
prósent samkvæmt vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofu
Íslands, að því er kemur
fram á vef stofnunarinnar.
Atvinnuleysi hefur minnkað
um 1,3 prósentustig frá
því í ágúst 2012 en þá var
atvinnuleysi 5,7 prósent.
Atvinnuleysi meðal kvenna
var minna í ágúst en meðal
karla en fyrir ári voru mun
fleiri konur án atvinnu en
karlar. Atvinnuleysi kvenna
í ágúst þessa árs var 4,2
prósent miðað við 6,7
prósent í ágúst á síðasta
ári. Hjá körlum var atvinnu-
leysi í ágúst síðastliðnum
4,6 prósent miðað við 4,9
prósent í ágúst 2012.
Í ágúst síðastliðnum voru
að jafnaði 188.300 manns á
vinnumarkaði. Af þeim voru
180.000 starfandi og 8.300
án vinnu og í atvinnuleit.
-dhe
Seðlabanki Íslands setur nýjan
tíu þúsund króna seðil í umferð
fimmtudaginn 24. október næst-
komandi. Seðillinn er tileink-
aður Jónasi Hallgrímssyni, en í
seðlinum má finna vísanir í störf
Jónasar sem skálds, íslensku-
manns, alþýðufræðara og nátt-
úrufræðings. Á framhlið er mynd
af Jónasi Hallgrímssyni, Háafjalli og Hraundranga. Þar eru einnig ljóðlínur úr kvæðinu
Ferðalok með rithönd Jónasar. Hæðarlínur fjallsins Skjaldbreiðs mynda grunnmynstur
bak- og framhliðar. Á bakhlið er blýantsteikning Jónasar af fjallinu Skjaldbreið ásamt
vetrarljósmynd af fönnum fjallsins. Hæðarlínum Skjaldbreiðs er varpað inn á myndina.
Einnig eru þar myndir af lóum og hörpuskel og ljóðlínur með rithönd Jónasar úr fyrsta
erindi kvæðisins Fjallið Skjaldbreiður.
Kristín Þorkelsdóttir hannaði seðilinn, en hún hefur stýrt hönnun íslenskra seðla frá
árinu 1981. Samstarfsmaður og meðhönnuður hennar er Stephen Fairbairn.
Nýi seðillinn er tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni.
Nýr tíu þúsund króna seðill
Gæti skapað 4 þúsund störf
Félag atvinnurekenda hleypti í vikunni formlega af
stokkunum átakinu Falda aflið en þar eru lagðar fram
tólf tillögur sem gætu skapað allt að 4000 störf í
samfélaginu næðu þær fram að ganga, að því er fram
kemur í tilkynningu félagsins.
Tillögurnar miða að því að bæta starfsumhverfi 90%
fyrirtækja landsins. Það er þau fyrirtæki sem eru minni
eða meðalstór en hjá þeim starfa 80-90 þúsund manns.
Undanfarin ár hafa sértækar aðgerðir verið reyndar með
litlum árangri, segir félagið, en það telur tíma til kominn
að beita almennum aðgerðum til að auka hagvöxt.
Markmið félagsins er að vinna tillögunum fylgis svo
hrinda megi þeim í framkvæmd fyrir þinglok næsta vor.
Meðal tillaga félagsins eru að skýrari takmörk verði á
eignarhaldi banka á fyrirtækjum, farið verði í markvissar
aðgerðir gegn kennitöluflakki og lækkun trygginga-
gjalds. Hægt er að kynna sér tillögurnar á atvinnurek-
endur.is. -jh
L eikskólakennari við leikskólann Öskju í Öskjuhlíð var í skógarferð með börnin þegar hann kom að
látnum manni sem hafði fyrirfarið sér.
„Kennarinn var fremstur í röðinni. Hann
sýndi afar fagleg vinnubrögð, snéri sér
við á punktinum og beindi börnunum
glaðlega á annan stað. Börnin urðu aldrei
vör við neitt,“ segir Dóra Margrét Bjarna-
dóttir, leikskólastjóri Öskju. Bæði leik-
skólinn og barnaskóli Hjallastefnunnar í
Reykjavík standa við skóginn og er hann
mikið nýttur í skólastarfinu. „Við teljum
það almennt mikinn kost að hafa þessa
útivistarparadís í túnjaðrinum. Börnin
fara hins vegar aldrei ein eða eftirlitslaus
í skóginn enda er hann utan við skólalóð-
ina,“ segir Dóra.
Atvikið átti sér stað á þriðjudag og
var leikskólakennarinn úti með þriggja
ára börnum. Eftir að hann hafði snúið
hópnum við gerði hann viðeigandi ráð-
stafanir og hringdi í lögreglu. „Við
hringdum í foreldra viðkomandi barna
og allir foreldrar barna í bæði leikskól-
anum og barnaskólanum fengu tölvupóst
um að slys hefði átt sér stað í skóginum
en að börnin hefðu ekki orðið vitni að
neinu,“ segir Dóra. Foreldrum var enn-
fremur bent á að skólasálfræðingur væri
til taks en ekkert barn hefur leitað til
hans vegna málsins.
„Eldri börnin voru að velta fyrir sér af
hverju það væri lögreglubíll á svæðinu
og við sögðum þeim þá að það hefði orðið
slys í skóginum,“ segir hún. Raunar var
þetta sama dag og umfangsmikil leit að
danska kettinum Nuk átti sér stað og
héldu sum börnin að björgunarsveitar-
mennirnir sem leituðu að kettinum væri
að leita að slösuðum manni í skóginum.
Þegar líkbíllinn sótti manninn fór hann
síðan að svæðinu frá Háskólanum í
Reykjavík en ekki frá skólunum. „Líkbíll-
inn kom aldrei hér. Lögreglan segir að
það hafi verið með vilja gert,“ segir Dóra.
Umræddur leikskólakennari var
skiljanlega miður sín eftir atvikið, fór
snemma heim þennan daginn og fékk
áfallahjálp. „Eðlilega kom þetta við allan
starfsmannahópinn. Það var eins og allt
púður úr fólki eftir daginn. En hugur
okkar er auðvitað hjá þeim sem tengjast
þessum manni. Þetta er virkilega sorg-
legt mál,“ segir Dóra. Leikskólakennar-
inn er kominn aftur til starfa og ekkert
barnanna hefur spurt um atvikið.
Fyrr í þessum mánuði kom hópur
barna að manni sem hafði fyrirfarið sér í
Skessuhelli í Reykjanesbæ sem er jafnan
fjölsóttur af börnum. „Við erum afskap-
lega þakklát fyrir að ekkert barnanna
kom að manninum hér. Þetta fór í raun
eins og best var á kosið miðað við þessar
aðstæður,“ segir Dóra.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
LögregLuMáL LeikskóLakennari Með barnaHóp gekk fraM á Lík
Hindraði að börnin
sæju lík í skógarrjóðri
Líkbíll-
inn kom
aldrei hér.
Lögreglan
segir að
það hafi
verið með
vilja gert.
Leikskólakennari sýndi fagleg viðbrögð þegar hann var í skógarferð í Öskjuhlíð með hóp þriggja
ára barna og kom að manni sem hafði fyrirfarið sér. Leikskólastjórinn segir að kennaranum hafi
tekist að hindra að börnin sæju líkið.
Leikskólinn Askja og barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík standa báðir nærri svæði þar sem maðurinn fyrirfór sér. Ljósmynd/Hari
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
2 fréttir Helgin 27.-29. september 2013