Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 4
www.hafkalk.is Fæst í lyfja- og heilsubúðum um land allt Slakandi steinefnablanda - Náttúrulega ■ Haf-Ró inniheldur magnesíum extrakt unnið úr sjó og Hafkalk sem unnið er úr kalkþörungum úr Arnarfirði. Haf-Ró inniheldur einnig B6 (P5P) og C vítamín sem styðja við virkni efnanna. Magnesíum úr hafinu ■ Magnesíum sem notað er í Haf-Ró er ein sterkasta náttúrulega uppspretta magnesíums sem völ er á. Þetta gerir það kleift að hafa mikið magn virkra efna í hverju hylki. ■ Magnesíum er líkamanum nauðsynlegt til að viðhalda jafnvægi í vöðva- og taugakerfinu. Magnesíumskortur getur lýst sér í þreytu og streitu en leiðrétting á þeim skorti getur því gefið slakandi áhrif, samhliða aukinni orku. Safnað fyrir nýju hjartaþræðingartæki veður Föstudagur laugardagur sunnudagur NA 5 til 13 m/S. Skúrir eðA rigNiNg eN úrkomulítið SV-til. Hiti 2 til 8 Stig. HöfuðborgArSVæðið: NA 3-8 m/s og skýjAð. Hiti 3 til 8 stig. Hæg Suðlæg átt. ÞykkNAr upp V-til með úrkomu eN bjArtViðri A-til. Hiti 1 til 6 Stig. HöfuðborgArSVæði: Breytileg átt 3-5 m/s og skýjAð. Hiti 3 til 6 stig. SuðAuStAN eðA AuStAN átt og rigNiNg, eN úrkomulítið NV-til. Hiti 2 til 7 Stig. HöfuðborgArSVæði: s 3-5 m/s og skýjAð. Hiti 4 til 7 stig. Norðlæg átt og kólnandi veður Norðlæg átt með úrkomu austantil en úrkomulítið sV-lands. Úrkomu- minna og hægviðri á laugardag en suðlæg átt á sunnudag og úrkomu- lítið NA-til en súld eða rigning með köflum annars staðar. kólnar og hiti oft 2 til 6 stig. 6 2 2 3 8 4 2 1 1 5 5 4 2 2 6 elín björk jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is  JaFnréttismál Konur eru í miKlum meirihluta í hásKólanámi Konur taka við stjórn­ inni í Ísafjarðarbæ konur voru nýverið ráðnar í þrjár af æðstu stöðum Ísafjarðarbæjar. Bæjarstjórinn segir karlmenn í minnihluta þegar kemur að sviðsstjórum bæjarins. konur eru einnig í meirihluta þegar kemur að kjörnum bæjarfulltrúum, forseti bæjarstjórnar er kona og nýskipaður dómari við Héraðsdóm Vesturlands er kvenkyns. Konur eru bara orðnar mun betur menntaðar en karl- menn. K onur voru nýverið ráðnar í þrjár af æðstu stöðum Ísafjarðarbæjar; starf fjármálastjóra, mannauðs- stjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjár- málasviðs. „Ég er bara kominn í algjöran minnihlutahóp,“ segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri. „Það hefði raunar verið æski- legra að einhver karl hefði verið ráðinn því hér eru konur í miklum meirihluta. Af fimm sviðsstjórum er nú einn karlmaður. En það var einfaldlega þannig að það komu miklu betri umsóknir frá konum en körlum í öll þessi störf,“ segir hann. Nýr sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármála- sviðs er Þórdís Sif Sigurðardóttir. Hún starfaði síðast sem sviðsstjóri lögfræði- sviðs Háskólans á Bifröst. Meistararit- gerð Þórdísar í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík fjallar um kynjakvóta í hluta- félögum. Nýr fjármálastjóri Ísafjarðar- bæjar heitir Edda María Hagalín. Hún er með meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík og hefur síðustu átta ár unnið við ársreikn- ingagerð, endurskoðun og tengd störf hjá Deloitte í Reykjavík. Herdís Rós Kjartans- dóttir hefur verið ráðin sem mannauðs- stjóri hjá bænum. Hún er með MBA gráðu og lýkur í desember meistaranámi í mannauðsstjórnum. Hún hefur starfað sem leikskólastjóri í Mosfellsbæ í áratug og þekkir því vel til opinberrar stjórnsýslu, kjarasamninga og fjárhags- áætlanagerð. Þessi tíðindi koma framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, Kristínu Ástgeirsdóttur, lítið á óvart. „Konur eru bara orðnar mun betur menntaðar en karlmenn. Þær eru í miklum meirihluta í háskólanámi,“ segir hún. Þessar þrjár konur voru ráðnar nú á haustmánuðum en þeim til viðbótar skip- aði innanríkisráðherra nýverið Sigríði Elsu Kjartansdóttur í embætti dómara við Hér- aðsdóm Vestfjarða en hún er dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og áður saksókn- ari hjá embætti ríkissaksóknara. Þegar kemur að bæjarstjórn Ísafjarðar eru konur í meirihluta, sex konur og þrír karlmenn. Þá er forseti bæjarstjórnar kona. Spurður hvort konur séu að taka yfir í bæjarfélaginu segir bæjarstjórinn: „Já, og ekki bara hér heldur alls staðar. Þær fá hærri einkunnir og eiga þess vegna erfið- ara með að komast inn í suma skóla,“ segir hann og vísar til þess að meðal annars í Verzlunarskóla Íslands eru þurfa strákar lægri einkunnir en stelpur til að komast inn til að jafna kynjahlutfallið í skólanum. „Konur ná alls staðar góðum árangri nema í Gettu betur,“ segir hann en mikil um- ræða hefur verið að undanförnu um hversu fáar stelpur taka þátt í spurningakeppni framhaldsskólanna. Honum finnst mjög skemmtilegt að fá þessar konur til starfa og bendir á að þær verði einnig nýir íbúar í bæjarfélaginu því allar eru þær búsettar á höfuðborgar- svæðinu þó Edda María sé raunar uppal- in á Ísafirði. „Það er gaman að fá nýtt fólk í bæinn og flott að það séu svona öflugar konur,“ segir Daníel. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Daníel jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Þórdís Sif Sigurðardóttir, nýráðinn sviðsstjóri- stjórnsýslu og lögfræðisviðs. edda maría Hagalín nýr fjármálastjóri. Herdís rós kjartansdóttir, nýráðinn mannauðsstjóri. Hjartaheill og Neistinn hrinda um helgina af stað átaki til söfnunar fyrir nýju hjartaþræðingartæki. Í dag eru 260 manns á biðlista eftir hjarta- þræðingu en um 200 aðgerðir eru framkvæmdar í hverjum mánuði. Biðlað er til landsmanna um að leggja fé til söfnunar- innar, en það er hægt með þrennum hætti; greiða valgreiðslu í heimabanka, hringja í styrktarsíma, eða leggja beint inn á reikning söfnunarinnar ef um hærri fjárhæðir er að ræða. Valgreiðslan er, að sögn ásgeirs Þórs árnasonar, fram- kvæmdastjóra Hjartaheilla, hófleg, eða 1000 krónur „Við höfum leitað til fjölskyldnanna í landinu til þess að leggja okkur lið. stofnuð hefur verið valgreiðsla á hverja fjölskyldu í landinu og að sjálfsögðu er öllum í sjálfsvald sett hvort þeir vilji styðja átakið eða ekki. Hverja fjölskyldu munar kannski ekki svo mikið um 1000 krónur en það safnast þegar saman kemur, segir Ásgeir. einar guðmundsson, grafískur hönnuður, útfærði gjörning ásamt góðum gestum á miðvikudaginn en gjörningurinn markaði upphaf söfnunarinnar. Festur var rauður þráður á stóran flöt, og úr því varð merki söfnunarinnar „STYRKJUM HJARTAÞRÆÐINA“ til. Verkið er hátt í tveir metrar á hæð og um hálfur annar metri á breidd. rúmlega 700 Íslendingar látast árlega af völdum hjarta- og æða- sjúkdóma. Þá fæðast árlega 50 til 70 börn með hjartagalla. -jh merki söfnunar- innar. safnað er fyrir nýju hjarta- þræðing- artæki. safna fyrir Hagbarð og börnin kirkjukór lágafells- sóknar heldur sína árlegu styrktartónleika á morgun, laugardaginn 28. septem- ber. tónleikarnir fara fram í grafarvogskirkju og hefjast klukkan 16. Allur ágóði af miðasölu mun renna til Hagbarðs Valssonar, fjögurra barna föður sem búsettur er í Noregi. síðastliðið sumar lést eiginkona hans eftir að hafa fengið hjartastopp, þrjátíu og fjögurra ára gömul. Þá var hún gengin sjö mánuði með fjórða barn þeirra hjóna. Lífi barnsins var bjargað með keisara- skurði á stofugólfinu heima hjá þeim en hefur það þurft á sólarhrings umönnun að halda. guðrún heitin sigurðardóttur var ættuð úr Mosfellsbæ og er afi hennar einn söngvara kirkjukórs lágafellssóknar. meðal þeirra tónlistar- manna sem koma fram á tónleikunum eru kk, ragn- heiður gröndal, karlakórinn Þrestir, undir stjórn jóns kristins Cortez, jóhann Frið- geir Valdemarsson, Hulda Björk garðarsdóttir, Vox Populi, undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og strengjasveit undir stjórn Hjörleifs Valssonar, bróður Hagbarðs. Fyrir og eftir tónleikana og í hléi mun kári sigurðsson myndlistar- maður selja myndir sem munu kosta eitt þúsund til fimmtán hundruð krónur. Þá mun Súfistinn bjóða upp á kaffi og súkkulaðiskeljar á fimm hundruð krónur og mun allir ágóði af sölu á tónleikunum renna til Hag- barðs og fjölskyldu. miðaverð er þrjú þúsund krónur og er ókeypis fyrir börn, tólf ára og yngri. 4 fréttir Helgin 27.-29. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.